< Sálmarnir 12 >

1 Drottinn! Hjálpa þú! Hinum trúuðu fækkar óðum. Hvar eru þeir sem hægt er að treysta?
Help, Yhwh; for the godly man ceaseth; for the faithful fail from among the children of men.
2 Allir ljúga og iðka svik og pretti, en einlægnin virðist fokin út í veður og vind.
They speak vanity every one with his neighbour: with flattering lips and with a double heart do they speak.
3 En Drottinn mun ekki fara mjúkum höndum um þá sem iðka ranglæti.
Yhwh shall cut off all flattering lips, and the tongue that speaketh proud things:
4 Hann mun útrýma þessum lygurum sem segja: „Við skulum ljúga til um áform okkar, enda ráðum við sjálfir hvað við segjum!“
Who have said, With our tongue will we prevail; our lips are our own: who is lord over us?
5 Þessu svarar Drottinn: „Ég mun rísa upp og verja þá kúguðu, fátæku og hrjáðu. Ég mun frelsa þá samkvæmt bænum þeirra.“
For the oppression of the poor, for the sighing of the needy, now will I arise, saith Yhwh; I will set him in safety from him that puffeth at him.
6 Loforð Drottins eru áreiðanleg. Hvert orð á vörum hans er satt og rétt eins og marghreinsað skíragull.
The words of Yhwh are pure words: as silver tried in a furnace of earth, purified seven times.
7 Drottinn, við vitum að þú munt varðveita þitt fólk frá verkum illra manna,
Thou shalt keep them, O Yhwh, thou shalt preserve them from this generation for ever.
8 þó svo þeir vaði alls staðar uppi og njóti heiðurs í landinu.
The wicked walk on every side, when the vilest men are exalted.

< Sálmarnir 12 >