< 2 Tímóteusarbréf 1 >
1 Frá Páli, sem að vilja Guðs er sendiboði Jesú Krists, til að flytja öllum boðskapinn um eilífa lífið, sem fæst fyrir trúna á Jesú Krist.
Paul, an emissary of Yeshua the Messiah through the will of God, according to the promise of the life which is in Messiah Yeshua,
2 Til Tímóteusar, míns elskaða sonar. Guð, faðir, og Kristur Jesús, Drottinn okkar, veiti þér náð, miskunn og frið.
to Timothy, my beloved child: Grace, mercy, and peace, from God the Father and Messiah Yeshua our Lord.
3 Tímóteus, mikið er ég Guði þakklátur fyrir þig. Ég bið Guð dag og nótt að blessa þig og veita þér allt sem þú þarfnast. Eins og forfeður mínir, þjóna ég Guði og kappkosta að hafa hreina samvisku.
I thank God, whom I serve as my forefathers did, with a pure conscience. How unceasing is my memory of you in my petitions, night and day
4 Ég þrái mjög að hitta þig á ný. Mikið yrði það gaman! Ég man að þú táraðist þegar við skildum síðast.
longing to see you, remembering your tears, that I may be filled with joy;
5 Ég veit að þú treystir Drottni af heilum hug, rétt eins og móðir þín, hún Evníke, og Lóis amma þín, og ég held að traust þitt hafi ekki minnkað.
having been reminded of the sincere faith that is in you, which lived first in your grandmother Lois and your mother Eunice and, I am persuaded, in you also.
6 Þess vegna hvet ég þig til að efla með þér þá náðargjöf Guðs sem í þér býr – gjöfina sem þú fékkst þegar ég lagði hendur yfir þig og bað fyrir þér.
For this cause, I remind you that you should stir up the gift of God which is in you through the laying on of my hands.
7 Heilagur andi sem Guð gaf þér, vill ekki að við óttumst mennina, heldur vöxum í kærleika og krafti Guðs og gætum stillingar.
For God didn’t give us a spirit of fear, but of power, love, and self-control.
8 Ef þú endurnýjast í þessum krafti frá degi til dags, muntu aldrei blygðast þín fyrir vitnisburðinn um Drottin, eða fyrir mig, þótt ég sé í fangelsi vegna Krists. Þá muntu líka verða reiðubúinn að þjást með mér vegna Drottins, því að hann mun styrkja þig.
Therefore don’t be ashamed of the testimony of our Lord, nor of me his prisoner; but endure hardship for the Good News according to the power of God,
9 Það var hann sem frelsaði okkur og útvaldi til að vinna sitt heilaga verk, ekki vegna þess að við ættum það skilið, heldur vegna eigin ákvörðunar, löngu áður en heimurinn varð til. Hann ætlaði að auðsýna okkur kærleika sinn og gæsku í Kristi. (aiōnios )
who saved us and called us with a holy calling, not according to our works, but according to his own purpose and grace, which was given to us in Messiah Yeshua before times eternal, (aiōnios )
10 Nú hefur hann framkvæmt þessa áætlun sína og sent okkur Jesú Krist, frelsarann, sem braut vald dauðans á bak aftur og opnaði okkur veg til eilífs lífs fyrir trúna á hann.
but has now been revealed by the appearing of our Savior, Messiah Yeshua, who abolished death, and brought life and immortality to light through the Good News.
11 Síðan kaus hann mig til að flytja heiðingjunum þennan boðskap og uppfræða þá.
For this I was appointed as a proclaimer, an emissary, and a teacher of the Gentiles.
12 Þess vegna þarf ég að þjást hér í fangelsinu, en ég skammast mín ekkert fyrir það því ég veit á hvern ég trúi og er þess fullviss að hann megnar að varðveita allt það sem mér er trúað fyrir, allt til þess dags er hann kemur á ný.
For this cause I also suffer these things. Yet I am not ashamed, for I know him whom I have believed, and I am persuaded that he is able to guard that which I have committed to him against that day.
13 Haltu fast við sannleikann eins og ég kenndi þér hann, einkum það sem varðar trúna og kærleikann, sem Jesús Kristur gefur.
Hold the pattern of sound words which you have heard from me, in faith and love which is in Messiah Yeshua.
14 Varðveittu vel þá góðu og guðlegu hæfileika sem þér voru gefnir af heilögum anda sem í þér býr.
That good thing which was committed to you, guard through the Holy Spirit who dwells in us.
15 Eins og þú veist eru bræðurnir sem hingað komu frá Litlu-Asíu, allir farnir frá mér og meira að segja Fýgelus og Hermogenes.
This you know, that all who are in Asia turned away from me, of whom are Phygelus and Hermogenes.
16 Drottinn blessi Ónesífórus og alla hans fjölskyldu. Oft vitjaði hann mín og uppörvaði. Heimsóknir hans voru eins og ferskur andblær og aldrei blygðaðist hann sín fyrir fjötra mína.
May the Lord grant mercy to the house of Onesiphorus, for he often refreshed me, and was not ashamed of my chain,
17 Sannleikurinn er sá að þegar hann kom til Rómar, leitaði hann mín um allt og fann mig að lokum.
but when he was in Rome, he sought me diligently and found me
18 Guð blessi hann ríkulega þegar Kristur kemur aftur – þú veist manna best hversu hann hjálpaði til í Efesus.
(the Lord grant to him to find the Lord’s mercy in that day); and in how many things he served at Ephesus, you know very well.