< Apostolska dela 3 >

1 Torej Peter in Janez sta ob uri molitve skupaj odšla gor v tempelj; bila je deveta ura.
Dag nokkurn fóru Pétur og Jóhannes upp í musterið til þess að taka þátt í hinni daglegu bænastund, sem var klukkan þrjú síðdegis.
2 Nekega moža, hromega od maternice njegove matere, pa so nosili in ga dnevno polagali pri tempeljskih velikih vratih, ki se imenujejo Lepa, da prosi miloščine od teh, ki so vstopali v tempelj,
Þegar þeir gengu inn, sáu þeir að lamaður maður var borinn þangað og lagður við eitt musterishliðið, sem kallað var Fögrudyr. Þarna var hann vanur að vera á hverjum degi.
3 ki je, ko je videl Petra in Janeza namenjena v tempelj, prosil miloščine.
Þegar Pétur og Jóhannes gengu fram hjá honum, bað hann þá um peninga.
4 In ko se je Peter z Janezom zazrl v njegove oči, je rekel: »Poglej naju.«
Þeir virtu hann fyrir sér og Pétur sagði: „Horfðu hingað.“
5 In ta jima je posvetil pozornost, ker je pričakoval, da bo od njiju kaj prejel.
Lamaði maðurinn einblíndi á þá í von um að fá eitthvað.
6 Potem je Peter rekel: »Srebra in zlata nimam, toda to, kar imam, ti dam: ›V imenu Jezusa Kristusa iz Nazareta vstani in hôdi.‹«
„Peninga á ég ekki, “sagði Pétur, „en ég skal gefa þér það sem ég hef. Í nafni Jesú Krists frá Nasaret, segi ég: Gakktu!“
7 In prijel ga je za desnico ter ga dvignil in takoj so njegova stopala ter kosti gležnja prejeli moč.
Pétur tók í höndina á lamaða manninum til að reisa hann upp. Um leið urðu fætur hans og ökklar styrkir og hann stökk á fætur. Hann stóð andartak kyrr, en fór síðan að ganga! Hann gekk, hljóp og lofaði Guð og fór svo með þeim inn í musterið.
8 In poskočil je pokonci ter hodil in z njima vstopil v tempelj, kjer je hodil in poskakoval ter slavil Boga.
9 In vsi ljudje so ga videli hoditi in slaviti Boga
Þegar fólkið, sem var inni í musterinu, sá manninn ganga um og lofa Guð,
10 in vedeli so, da je bil to ta, ki je zaradi miloščine sedel pri tempeljskih Lepih velikih vratih. In izpolnjeni so bili s čudenjem ter osuplostjo nad tem, kar se mu je zgodilo.
áttaði það sig. Þetta var lamaði betlarinn, sem það hafði séð svo oft við Fögrudyr. Allir urðu furðu lostnir.
11 In medtem ko se je hromi mož, ki je bil ozdravljen, držal Petra in Janeza, so vsi ljudje, ker so se silno čudili, skupaj stekli k njima v preddverje, ki se je imenovalo Salomonovo.
Fólk streymdi nú frá sér numið til súlnaganga Salómons, þar sem betlarinn hélt sig nærri Pétri og Jóhannesi.
12 In ko je Peter to videl, je ljudem odgovoril: »Vi, možje iz Izraela, zakaj se čudite nad tem? Ali zakaj tako iskreno gledate na naju, kakor da bi z najino lastno močjo ali svetostjo tega moža pripravila hoditi?
Pétur notaði tækifærið og ávarpaði mannfjöldann: „Ísraelsmenn, hvers vegna eruð þið svona undrandi og hví starið þið á okkur? Haldið þið ef til vill að við höfum í eigin krafti og guðdómleika gert þennan mann færan um að ganga?
13 Bog Abrahama in Izaka in Jakoba, Bog naših očetov, je proslavil svojega Sina Jezusa, ki ste ga vi izročili in ga zatajili v Pilatovi prisotnosti, ko je bil ta odločen, da ga izpusti.
Nei, það er Guð Abrahams, Ísaks og Jakobs – Guð forfeðra okkar, sem hefur gert Jesú, þjón sinn, dýrlegan á þennan hátt. Ég á við Jesú, sem þið höfnuðuð frammi fyrir Pílatusi, þrátt fyrir ásetning Pílatusar um að láta hann lausan.
14 Toda zatajili ste Svetega in Pravičnega ter prosili, da se vam zagotovi morilec;
Þið vilduð ekki að honum yrði sleppt, hann sem er heilagur og réttlátur. Í hans stað heimtuðuð þið morðingjann lausan,
15 ubili pa ste Princa življenja, ki ga je Bog obudil od mrtvih; o čemer smo mi priče.
og deydduð höfund lífsins, Jesú. En Guð reisti hann upp frá dauðum. Það getum við Jóhannes staðfest, því að eftir að þið líflétuð hann, sáum við hann lifandi!
16 In njegovo ime je po veri v njegovo ime tega moža naredilo močnega, ki ga vidite in poznate. Da, vera, ki je po njem, mu je dala to popolno zdravje v prisotnosti vas vseh.
Það er Jesús sem læknaði þennan mann, en hann var lamaður, það vitið þið. Trúin á mátt Jesú hefur gert þessa fullkomnu lækningu mögulega.
17 In sedaj, bratje, vem, da ste to storili po nevednosti, kakor so storili tudi vaši vladarji.
Kæru vinir, ég veit að það sem þið gerðuð við Jesú, var gert af vanþekkingu og sama má segja um leiðtoga ykkar.
18 Toda te besede, ki jih je Bog prej oznanil po ustih vseh svojih prerokov, da naj bi Kristus trpel, je on tako izpolnil.
En þessa leið fór Guð til að uppfylla spádómana um að Kristur yrði að þjást.
19 Pokesajte se torej in bodite spreobrnjeni, da bodo vaši grehi lahko izbrisani, ko bodo od Gospodove prisotnosti prišli časi osvežitve;
Breytið nú um hugarfar og gerið iðrun. Snúið ykkur til Guðs, svo að hann geti hreinsað burt syndir ykkar. Hann getur gefið ykkur endurnýjunartíma
20 in poslal bo Jezusa Kristusa, ki vam je bil prej oznanjen,
og sent ykkur Jesú á ný, konunginn, sem ykkur hafði verið heitinn.
21 ki ga morajo sprejeti nebesa do časov obnovitve vseh stvari, ki jih je Bog govoril po ustih vseh svojih svetih prerokov, odkar je svet nastal. (aiōn g165)
Jesús verður að dveljast á himnum uns allt, sem syndin eyðilagði, hefur verið endurnýjað, eins og lofað var í upphafi. Móse sagði til dæmis fyrir löngu: „Drottinn Guð mun vekja upp spámann líkan mér á meðal ykkar. Hlustið með athygli á orð hans, (aiōn g165)
22 Kajti Mojzes je očetom resnično rekel: ›Preroka vam bo Gospod, vaš Bog, vzdignil izmed vaših bratov, podobnega meni; njega boste poslušali v vseh stvareh, karkoli vam bo govoril.
23 In zgodilo se bo, da bo vsaka duša, ki ne bo poslušala tega preroka, uničena izmed ljudi.‹
því að þeim, sem óhlýðnast honum, verður tortímt.“
24 Da, in vsi preroki od Samuela in tisti, ki so sledili, kolikor jih je govorilo, so enako napovedali o teh dneh.
Samúel og allir spámennirnir, sem eftir hann komu, hafa rætt um það sem nú er að gerast.
25 Vi ste otroci prerokov in zaveze, ki jo je Bog sklenil z našimi očeti, rekoč Abrahamu: ›In v tvojem semenu bodo blagoslovljena vsa sorodstva zemlje.‹
Þið eruð afkomendur spámannanna og ykkur er einnig ætlað þetta loforð, sem Guð gaf forfeðrum ykkar. Hann ætlar að nota Gyðinga sem farveg fyrir blessun sína um allan heiminn – um það hljóðaði loforðið sem Guð gaf Abraham.
26 K vam je najprej Bog, ki je vzdignil svojega Sina Jezusa, njega poslal, da vas blagoslovi z odvračanjem vsakega izmed vas od njegovih krivičnosti.«
Þegar Guð hafði vakið þjón sinn aftur til lífsins, sendi hann hann til ykkar Ísraelsmanna til blessunar og til þess að leiða ykkur burt frá syndinni.“

< Apostolska dela 3 >