< ಪ್ರೇರಿತಾಃ 14 >
1 ತೌ ದ್ವೌ ಜನೌ ಯುಗಪದ್ ಇಕನಿಯನಗರಸ್ಥಯಿಹೂದೀಯಾನಾಂ ಭಜನಭವನಂ ಗತ್ವಾ ಯಥಾ ಬಹವೋ ಯಿಹೂದೀಯಾ ಅನ್ಯದೇಶೀಯಲೋಕಾಶ್ಚ ವ್ಯಶ್ವಸನ್ ತಾದೃಶೀಂ ಕಥಾಂ ಕಥಿತವನ್ತೌ|
Páll og Barnabas fóru nú til samkomuhúss Gyðinga í Íkóníum og predikuðu með slíkum krafti að margir, bæði Gyðingar og heiðingjar, tóku trú.
2 ಕಿನ್ತು ವಿಶ್ವಾಸಹೀನಾ ಯಿಹೂದೀಯಾ ಅನ್ಯದೇಶೀಯಲೋಕಾನ್ ಕುಪ್ರವೃತ್ತಿಂ ಗ್ರಾಹಯಿತ್ವಾ ಭ್ರಾತೃಗಣಂ ಪ್ರತಿ ತೇಷಾಂ ವೈರಂ ಜನಿತವನ್ತಃ|
En þeir Gyðingar, sem höfnuðu og fyrirlitu boðskapinn frá Guði, töluðu illa um Pál og Barnabas og æstu heiðingjana gegn þeim.
3 ಅತಃ ಸ್ವಾನುಗ್ರಹಕಥಾಯಾಃ ಪ್ರಮಾಣಂ ದತ್ವಾ ತಯೋ ರ್ಹಸ್ತೈ ರ್ಬಹುಲಕ್ಷಣಮ್ ಅದ್ಭುತಕರ್ಮ್ಮ ಚ ಪ್ರಾಕಾಶಯದ್ ಯಃ ಪ್ರಭುಸ್ತಸ್ಯ ಕಥಾ ಅಕ್ಷೋಭೇನ ಪ್ರಚಾರ್ಯ್ಯ ತೌ ತತ್ರ ಬಹುದಿನಾನಿ ಸಮವಾತಿಷ್ಠೇತಾಂ|
Þarna dvöldust þeir þó í langan tíma og predikuðu djarflega og Drottinn sjálfur sýndi að hann var í verki með þeim – hann lét þá gera mikil kraftaverk.
4 ಕಿನ್ತು ಕಿಯನ್ತೋ ಲೋಕಾ ಯಿಹೂದೀಯಾನಾಂ ಸಪಕ್ಷಾಃ ಕಿಯನ್ತೋ ಲೋಕಾಃ ಪ್ರೇರಿತಾನಾಂ ಸಪಕ್ಷಾ ಜಾತಾಃ, ಅತೋ ನಾಗರಿಕಜನನಿವಹಮಧ್ಯೇ ಭಿನ್ನವಾಕ್ಯತ್ವಮ್ ಅಭವತ್|
Bæjarbúar skiptust í tvo hópa, sumir fylgdu leiðtogum Gyðinganna, en aðrir studdu postulana.
5 ಅನ್ಯದೇಶೀಯಾ ಯಿಹೂದೀಯಾಸ್ತೇಷಾಮ್ ಅಧಿಪತಯಶ್ಚ ದೌರಾತ್ಮ್ಯಂ ಕುತ್ವಾ ತೌ ಪ್ರಸ್ತರೈರಾಹನ್ತುಮ್ ಉದ್ಯತಾಃ|
Þegar Páll og Barnabas komust á snoðir um að heiðingjar og Gyðingar, ásamt leiðtogum þeirra, ætluðu að æsa til uppþots gegn þeim og láta grýta þá, flýðu þeir til bæjanna Lýstru og Derbe í Lýkaóníu
6 ತೌ ತದ್ವಾರ್ತ್ತಾಂ ಪ್ರಾಪ್ಯ ಪಲಾಯಿತ್ವಾ ಲುಕಾಯನಿಯಾದೇಶಸ್ಯಾನ್ತರ್ವ್ವರ್ತ್ತಿಲುಸ್ತ್ರಾದರ್ಬ್ಬೋ
7 ತತ್ಸಮೀಪಸ್ಥದೇಶಞ್ಚ ಗತ್ವಾ ತತ್ರ ಸುಸಂವಾದಂ ಪ್ರಚಾರಯತಾಂ|
og predikuðu gleðiboðskapinn þar og í grenndinni.
8 ತತ್ರೋಭಯಪಾದಯೋಶ್ಚಲನಶಕ್ತಿಹೀನೋ ಜನ್ಮಾರಭ್ಯ ಖಞ್ಜಃ ಕದಾಪಿ ಗಮನಂ ನಾಕರೋತ್ ಏತಾದೃಶ ಏಕೋ ಮಾನುಷೋ ಲುಸ್ತ್ರಾನಗರ ಉಪವಿಶ್ಯ ಪೌಲಸ್ಯ ಕಥಾಂ ಶ್ರುತವಾನ್|
Í Lýstru var maður sem var bæklaður frá fæðingu og hafði aldrei getað gengið.
9 ಏತಸ್ಮಿನ್ ಸಮಯೇ ಪೌಲಸ್ತಮ್ಪ್ರತಿ ದೃಷ್ಟಿಂ ಕೃತ್ವಾ ತಸ್ಯ ಸ್ವಾಸ್ಥ್ಯೇ ವಿಶ್ವಾಸಂ ವಿದಿತ್ವಾ ಪ್ರೋಚ್ಚೈಃ ಕಥಿತವಾನ್
Maður þessi hlustaði á Pál predika og sá Páll að hann hafði trú til að geta orðið heilbrigður.
10 ಪದ್ಭ್ಯಾಮುತ್ತಿಷ್ಠನ್ ಋಜು ರ್ಭವ| ತತಃ ಸ ಉಲ್ಲಮ್ಫಂ ಕೃತ್ವಾ ಗಮನಾಗಮನೇ ಕುತವಾನ್|
Páll kallaði til hans: „Stattu upp!“Þá spratt maðurinn á fætur og gekk um.
11 ತದಾ ಲೋಕಾಃ ಪೌಲಸ್ಯ ತತ್ ಕಾರ್ಯ್ಯಂ ವಿಲೋಕ್ಯ ಲುಕಾಯನೀಯಭಾಷಯಾ ಪ್ರೋಚ್ಚೈಃ ಕಥಾಮೇತಾಂ ಕಥಿತವನ್ತಃ, ದೇವಾ ಮನುಷ್ಯರೂಪಂ ಧೃತ್ವಾಸ್ಮಾಕಂ ಸಮೀಪಮ್ ಅವಾರೋಹನ್|
Þegar fólkið sá þetta hrópaði það á eigin mállýsku: „Guðirnir eru komnir niður til okkar í mannslíki!“
12 ತೇ ಬರ್ಣಬ್ಬಾಂ ಯೂಪಿತರಮ್ ಅವದನ್ ಪೌಲಶ್ಚ ಮುಖ್ಯೋ ವಕ್ತಾ ತಸ್ಮಾತ್ ತಂ ಮರ್ಕುರಿಯಮ್ ಅವದನ್|
Töldu þeir Barnabas vera gríska guðinn Seif en Pál vera Hermes, því hann hafði orð fyrir þeim.
13 ತಸ್ಯ ನಗರಸ್ಯ ಸಮ್ಮುಖೇ ಸ್ಥಾಪಿತಸ್ಯ ಯೂಪಿತರವಿಗ್ರಹಸ್ಯ ಯಾಜಕೋ ವೃಷಾನ್ ಪುಷ್ಪಮಾಲಾಶ್ಚ ದ್ವಾರಸಮೀಪಮ್ ಆನೀಯ ಲೋಕೈಃ ಸರ್ದ್ಧಂ ತಾವುದ್ದಿಶ್ಯ ಸಮುತ್ಸೃಜ್ಯ ದಾತುಮ್ ಉದ್ಯತಃ|
Presturinn í hofi Seifs, sem var fyrir utan bæinn, kom nú að hliðum bæjarins með naut, blóm og kransa. Hann ætlaði ásamt fólkinu að fórna þessu til Páls og Barnabasar.
14 ತದ್ವಾರ್ತ್ತಾಂ ಶ್ರುತ್ವಾ ಬರ್ಣಬ್ಬಾಪೌಲೌ ಸ್ವೀಯವಸ್ತ್ರಾಣಿ ಛಿತ್ವಾ ಲೋಕಾನಾಂ ಮಧ್ಯಂ ವೇಗೇನ ಪ್ರವಿಶ್ಯ ಪ್ರೋಚ್ಚೈಃ ಕಥಿತವನ್ತೌ,
En þegar þeir sáu hvað verða vildi, urðu þeir undrandi og reiðir, hlupu inn í mannþröngina og hrópuðu:
15 ಹೇ ಮಹೇಚ್ಛಾಃ ಕುತ ಏತಾದೃಶಂ ಕರ್ಮ್ಮ ಕುರುಥ? ಆವಾಮಪಿ ಯುಷ್ಮಾದೃಶೌ ಸುಖದುಃಖಭೋಗಿನೌ ಮನುಷ್ಯೌ, ಯುಯಮ್ ಏತಾಃ ಸರ್ವ್ವಾ ವೃಥಾಕಲ್ಪನಾಃ ಪರಿತ್ಯಜ್ಯ ಯಥಾ ಗಗಣವಸುನ್ಧರಾಜಲನಿಧೀನಾಂ ತನ್ಮಧ್ಯಸ್ಥಾನಾಂ ಸರ್ವ್ವೇಷಾಞ್ಚ ಸ್ರಷ್ಟಾರಮಮರಮ್ ಈಶ್ವರಂ ಪ್ರತಿ ಪರಾವರ್ತ್ತಧ್ವೇ ತದರ್ಥಮ್ ಆವಾಂ ಯುಷ್ಮಾಕಂ ಸನ್ನಿಧೌ ಸುಸಂವಾದಂ ಪ್ರಚಾರಯಾವಃ|
„Hvað eruð þið að gera? Við erum bara venjulegir menn eins og þið! Við komum hingað til að flytja ykkur þann gleðiboðskap að nú getið þið hætt að tilbiðja þessa heimskulegu hluti, en þess í stað tilbeðið hinn lifandi Guð, sem skapaði himin, jörð og haf og allt sem í þeim er.
16 ಸ ಈಶ್ವರಃ ಪೂರ್ವ್ವಕಾಲೇ ಸರ್ವ್ವದೇಶೀಯಲೋಕಾನ್ ಸ್ವಸ್ವಮಾರ್ಗೇ ಚಲಿತುಮನುಮತಿಂ ದತ್ತವಾನ್,
Öldum saman hefur hann leyft þjóðunum að fara sínar eigin leiðir,
17 ತಥಾಪಿ ಆಕಾಶಾತ್ ತೋಯವರ್ಷಣೇನ ನಾನಾಪ್ರಕಾರಶಸ್ಯೋತ್ಪತ್ಯಾ ಚ ಯುಷ್ಮಾಕಂ ಹಿತೈಷೀ ಸನ್ ಭಕ್ಷ್ಯೈರಾನನದೇನ ಚ ಯುಷ್ಮಾಕಮ್ ಅನ್ತಃಕರಣಾನಿ ತರ್ಪಯನ್ ತಾನಿ ದಾನಾನಿ ನಿಜಸಾಕ್ಷಿಸ್ವರೂಪಾಣಿ ಸ್ಥಪಿತವಾನ್|
en samt skildi hann eftir vitnisburð um sjálfan sig – vitnisburð sem alltaf hefur sést. Hér á ég við allt hið góða sem hann hefur gert, til dæmis það að senda ykkur regn og góða uppskeru, ykkur til gleði og næringar.“
18 ಕಿನ್ತು ತಾದೃಶಾಯಾಂ ಕಥಾಯಾಂ ಕಥಿತಾಯಾಮಪಿ ತಯೋಃ ಸಮೀಪ ಉತ್ಸರ್ಜನಾತ್ ಲೋಕನಿವಹಂ ಪ್ರಾಯೇಣ ನಿವರ್ತ್ತಯಿತುಂ ನಾಶಕ್ನುತಾಮ್|
Það var rétt með naumindum að Páli og Barnabasi tækist með þessum orðum að koma í veg fyrir að fólkið færði þeim fórnir.
19 ಆನ್ತಿಯಖಿಯಾ-ಇಕನಿಯನಗರಾಭ್ಯಾಂ ಕತಿಪಯಯಿಹೂದೀಯಲೋಕಾ ಆಗತ್ಯ ಲೋಕಾನ್ ಪ್ರಾವರ್ತ್ತಯನ್ತ ತಸ್ಮಾತ್ ತೈ ಪೌಲಂ ಪ್ರಸ್ತರೈರಾಘ್ನನ್ ತೇನ ಸ ಮೃತ ಇತಿ ವಿಜ್ಞಾಯ ನಗರಸ್ಯ ಬಹಿಸ್ತಮ್ ಆಕೃಷ್ಯ ನೀತವನ್ತಃ|
Örfáum dögum síðar komu nokkrir Gyðingar frá Antíokkíu og Íkóníum. Þeir æstu múginn svo upp að Páll var grýttur og dreginn út fyrir borgina, látinn að því er virtist.
20 ಕಿನ್ತು ಶಿಷ್ಯಗಣೇ ತಸ್ಯ ಚತುರ್ದಿಶಿ ತಿಷ್ಠತಿ ಸತಿ ಸ ಸ್ವಯಮ್ ಉತ್ಥಾಯ ಪುನರಪಿ ನಗರಮಧ್ಯಂ ಪ್ರಾವಿಶತ್ ತತ್ಪರೇಽಹನಿ ಬರ್ಣಬ್ಬಾಸಹಿತೋ ದರ್ಬ್ಬೀನಗರಂ ಗತವಾನ್|
Þá söfnuðust hinir trúuðu saman umhverfis hann og reis hann þá á fætur og gekk inn í bæinn. Daginn eftir fór hann þaðan til Derbe ásamt Barnabasi.
21 ತತ್ರ ಸುಸಂವಾದಂ ಪ್ರಚಾರ್ಯ್ಯ ಬಹುಲೋಕಾನ್ ಶಿಷ್ಯಾನ್ ಕೃತ್ವಾ ತೌ ಲುಸ್ತ್ರಾಮ್ ಇಕನಿಯಮ್ ಆನ್ತಿಯಖಿಯಾಞ್ಚ ಪರಾವೃತ್ಯ ಗತೌ|
Eftir að hafa boðað fagnaðarerindið þar og gert marga að lærisveinum, sneru þeir aftur til Lýstru, Íkóníum og Antíokkíu.
22 ಬಹುದುಃಖಾನಿ ಭುಕ್ತ್ವಾಪೀಶ್ವರರಾಜ್ಯಂ ಪ್ರವೇಷ್ಟವ್ಯಮ್ ಇತಿ ಕಾರಣಾದ್ ಧರ್ಮ್ಮಮಾರ್ಗೇ ಸ್ಥಾತುಂ ವಿನಯಂ ಕೃತ್ವಾ ಶಿಷ್ಯಗಣಸ್ಯ ಮನಃಸ್ಥೈರ್ಯ್ಯಮ್ ಅಕುರುತಾಂ|
Þar styrktu þeir hina trúuðu og hvöttu þá til að vera stöðuga í trúnni, þrátt fyrir ofsóknir. Minntu þá á, að áður en þeir kæmust til himna, yrðu þeir að ganga í gegnum margar þrengingar.
23 ಮಣ್ಡಲೀನಾಂ ಪ್ರಾಚೀನವರ್ಗಾನ್ ನಿಯುಜ್ಯ ಪ್ರಾರ್ಥನೋಪವಾಸೌ ಕೃತ್ವಾ ಯತ್ಪ್ರಭೌ ತೇ ವ್ಯಶ್ವಸನ್ ತಸ್ಯ ಹಸ್ತೇ ತಾನ್ ಸಮರ್ಪ್ಯ
Páll og Barnabas létu nú hvern söfnuð um sig kjósa sér forstöðumenn, sem þeir kölluðu öldunga. Síðan föstuðu þeir, báðu fyrir þeim og fólu þá umsjá þess Drottins, sem þeir höfðu sett traust sitt á.
24 ಪಿಸಿದಿಯಾಮಧ್ಯೇನ ಪಾಮ್ಫುಲಿಯಾದೇಶಂ ಗತವನ್ತೌ|
Á heimleiðinni fóru þeir um Pisidíu og Pamfýlíu
25 ಪಶ್ಚಾತ್ ಪರ್ಗಾನಗರಂ ಗತ್ವಾ ಸುಸಂವಾದಂ ಪ್ರಚಾರ್ಯ್ಯ ಅತ್ತಾಲಿಯಾನಗರಂ ಪ್ರಸ್ಥಿತವನ್ತೌ|
og predikuðu aftur í Perge, en héldu síðan áfram til Attalíu.
26 ತಸ್ಮಾತ್ ಸಮುದ್ರಪಥೇನ ಗತ್ವಾ ತಾಭ್ಯಾಂ ಯತ್ ಕರ್ಮ್ಮ ಸಮ್ಪನ್ನಂ ತತ್ಕರ್ಮ್ಮ ಸಾಧಯಿತುಂ ಯನ್ನಗರೇ ದಯಾಲೋರೀಶ್ವರಸ್ಯ ಹಸ್ತೇ ಸಮರ್ಪಿತೌ ಜಾತೌ ತದ್ ಆನ್ತಿಯಖಿಯಾನಗರಂ ಗತವನ್ತಾ|
Loks fóru þeir með skipi áleiðis til Antíokkíu, en þaðan höfðu þeir lagt upp í ferðina, og þar höfðu þeir verið faldir Guði til þess verks, sem þeir nú höfðu lokið.
27 ತತ್ರೋಪಸ್ಥಾಯ ತನ್ನಗರಸ್ಥಮಣ್ಡಲೀಂ ಸಂಗೃಹ್ಯ ಸ್ವಾಭ್ಯಾಮ ಈಶ್ವರೋ ಯದ್ಯತ್ ಕರ್ಮ್ಮಕರೋತ್ ತಥಾ ಯೇನ ಪ್ರಕಾರೇಣ ಭಿನ್ನದೇಶೀಯಲೋಕಾನ್ ಪ್ರತಿ ವಿಶ್ವಾಸರೂಪದ್ವಾರಮ್ ಅಮೋಚಯದ್ ಏತಾನ್ ಸರ್ವ್ವವೃತ್ತಾನ್ತಾನ್ ತಾನ್ ಜ್ಞಾಪಿತವನ್ತೌ|
Við heimkomuna kölluðu þeir söfnuðinn saman, gerðu grein fyrir ferðinni og sögðu frá því að Guð hefði einnig opnað heiðingjunum dyr trúarinnar.
28 ತತಸ್ತೌ ಶಿರ್ಯ್ಯೈಃ ಸಾರ್ದ್ಧಂ ತತ್ರ ಬಹುದಿನಾನಿ ನ್ಯವಸತಾಮ್|
Eftir það dvöldust þeir lengi meðal lærisveinanna í Antíokkíu.