< ရောမိဏး 5 >

1 ဝိၑွာသေန သပုဏျီကၖတာ ဝယမ် ဤၑွရေဏ သာရ္ဒ္ဓံ ပြဘုဏာသ္မာကံ ယီၑုခြီၐ္ဋေန မေလနံ ပြာပ္တား၊
Fyrst við erum sýknuð og réttlát í augum Guðs vegna trúarinnar á fyrirheit hans, þá getum við lifað í friði og sátt við hann vegna þess sem Jesús Kristur, Drottinn okkar, gerði fyrir okkur.
2 အပရံ ဝယံ ယသ္မိန် အနုဂြဟာၑြယေ တိၐ္ဌာမသ္တန္မဓျံ ဝိၑွာသမာရ္ဂေဏ တေနဲဝါနီတာ ဝယမ် ဤၑွရီယဝိဘဝပြာပ္တိပြတျာၑယာ သမာနန္ဒာမး၊
Vegna trúar okkar hefur hann veitt okkur hin æðstu forréttindi og þannig er aðstaða okkar nú. Við horfum með djörfung og gleði fram til alls þess sem Guð ætlar okkur að verða.
3 တတ် ကေဝလံ နဟိ ကိန္တု က္လေၑဘောဂေ'ပျာနန္ဒာမော ယတး က္လေၑာဒ် ဓဲရျျံ ဇာယတ ဣတိ ဝယံ ဇာနီမး,
Þegar við lendum í erfiðleikum og raunum þá getum við líka glaðst, því að við vitum að slíkt verður okkur til góðs. Það eflir þolgæði okkar,
4 ဓဲရျျာစ္စ ပရီက္ၐိတတွံ ဇာယတေ, ပရီက္ၐိတတွာတ် ပြတျာၑာ ဇာယတေ,
styrkir persónuleikann og það auðveldar okkur að treysta Guði æ betur, eða þangað til trú okkar verður að lokum sterk og óhagganleg.
5 ပြတျာၑာတော ဝြီဍိတတွံ န ဇာယတေ, ယသ္မာဒ် အသ္မဘျံ ဒတ္တေန ပဝိတြေဏာတ္မနာသ္မာကမ် အန္တးကရဏာနီၑွရသျ ပြေမဝါရိဏာ သိက္တာနိ၊
Þegar þessu marki er náð, getum við verið hughraust, hvað sem á dynur því að þá vitum við að allt muni fara vel. Við vitum að Guð elskar okkur og hann hefur gefið okkur heilagan anda og fyllt hjörtu okkar af kærleika sínum. Við finnum að við erum umvafin kærleika hans!
6 အသ္မာသု နိရုပါယေၐု သတ္သု ခြီၐ္ဋ ဥပယုက္တေ သမယေ ပါပိနာံ နိမိတ္တံ သွီယာန် ပြဏာန် အတျဇတ်၊
Við vorum hjálparvana og sáum enga undankomuleið. Þá kom Kristur á réttum tíma og dó fyrir okkur syndarana, enda þótt við bæðum hann ekki um slíkt.
7 ဟိတကာရိဏော ဇနသျ ကၖတေ ကောပိ ပြဏာန် တျက္တုံ သာဟသံ ကရ္တ္တုံ ၑက္နောတိ, ကိန္တု ဓာရ္မ္မိကသျ ကၖတေ ပြာယေဏ ကောပိ ပြာဏာန် န တျဇတိ၊
Þess er varla að vænta að nokkur hafi viljað deyja fyrir okkur, jafnvel þótt við hefðum verið góðir menn, þó að það sé auðvitað hugsanlegt.
8 ကိန္တွသ္မာသု ပါပိၐု သတ္သွပိ နိမိတ္တမသ္မာကံ ခြီၐ္ဋး သွပြာဏာန် တျက္တဝါန်, တတ ဤၑွရောသ္မာန် ပြတိ နိဇံ ပရမပြေမာဏံ ဒရ္ၑိတဝါန်၊
En Guð sýndi okkur takmarkalausan kærleika sinn, er hann sendi Krist í dauðann fyrir okkur meðan við vorum enn fjötruð í synd og aðskilin frá honum.
9 အတဧဝ တသျ ရက္တပါတေန သပုဏျီကၖတာ ဝယံ နိတာန္တံ တေန ကောပါဒ် ဥဒ္ဓါရိၐျာမဟေ၊
Allt þetta gerði Kristur fyrir okkur syndarana með dauða sínum og hversu miklu meira skyldi hann þá ekki vilja gera fyrir okkur nú, eftir að hann hefur sýknað okkur? Nú vill hann forða okkur undan dómi Guðs sem er í vændum.
10 ဖလတော ဝယံ ယဒါ ရိပဝ အာသ္မ တဒေၑွရသျ ပုတြသျ မရဏေန တေန သာရ္ဒ္ဓံ ယဒျသ္မာကံ မေလနံ ဇာတံ တရှိ မေလနပြာပ္တား သန္တော'ဝၑျံ တသျ ဇီဝနေန ရက္ၐာံ လပ္သျာမဟေ၊
Við vorum óvinir Guðs, en fyrst hann, þrátt fyrir það, leiddi okkur aftur til sín fyrir dauða sonar síns, hvílíka blessun hlýtur hann þá ekki að hafa búið okkur nú, eftir að við erum orðnir vinir hans?
11 တတ် ကေဝလံ နဟိ ကိန္တု ယေန မေလနမ် အလဘာမဟိ တေနာသ္မာကံ ပြဘုဏာ ယီၑုခြီၐ္ဋေန သာမ္ပြတမ် ဤၑွရေ သမာနန္ဒာမၑ္စ၊
Við gleðjumst vegna þessa nýja og undursamlega sambands okkar við Guð og allt er það að þakka því sem Jesús Kristur, Drottinn okkar, gerði, þegar hann dó fyrir syndir okkar og sætti okkur við Guð.
12 တထာ သတိ, ဧကေန မာနုၐေဏ ပါပံ ပါပေန စ မရဏံ ဇဂတီံ ပြာဝိၑတ် အပရံ သရွွေၐာံ ပါပိတွာတ် သရွွေ မာနုၐာ မၖတေ ရ္နိဃ္နာ အဘဝတ်၊
Þegar Adam syndgaði, kom syndin inn í líf allra manna. Með synd hans hélt dauðinn innreið sína í þennan heim og þar sem allir syndguðu, tók allt að hrörna og deyja.
13 ယတော ဝျဝသ္ထာဒါနသမယံ ယာဝတ် ဇဂတိ ပါပမ် အာသီတ် ကိန္တု ယတြ ဝျဝသ္ထာ န ဝိဒျတေ တတြ ပါပသျာပိ ဂဏနာ န ဝိဒျတေ၊
Við vitum að synd Adams var orsök alls þessa en þrátt fyrir syndir mannanna, allt frá dögum Adams og til Móse, þá dæmdi Guð þá ekki til dauða fyrir að brjóta lögin, því þá hafði hann ekki enn birt þeim þau né sagt þeim hvað hann vildi að þeir gerðu.
14 တထာပျာဒမာ ယာဒၖၑံ ပါပံ ကၖတံ တာဒၖၑံ ပါပံ ယဲ ရ္နာကာရိ အာဒမမ် အာရဘျ မူသာံ ယာဝတ် တေၐာမပျုပရိ မၖတျူ ရာဇတွမ် အကရောတ် သ အာဒမ် ဘာဝျာဒမော နိဒရ္ၑနမေဝါသ္တေ၊
Þegar þessir menn dóu, var það ekki vegna þess að þeir höfðu syndgað, því að þeir höfðu aldrei brotið það boðorð Guðs að borða forboðna ávöxtinn, eins og Adam hafði gert.
15 ကိန္တု ပါပကရ္မ္မဏော ယာဒၖၑော ဘာဝသ္တာဒၖဂ် ဒါနကရ္မ္မဏော ဘာဝေါ န ဘဝတိ ယတ ဧကသျ ဇနသျာပရာဓေန ယဒိ ဗဟူနာံ မရဏမ် အဃဋတ တထာပီၑွရာနုဂြဟသ္တဒနုဂြဟမူလကံ ဒါနဉ္စဲကေန ဇနေနာရ္ထာဒ် ယီၑုနာ ခြီၐ္ဋေန ဗဟုၐု ဗာဟုလျာတိဗာဟုလျေန ဖလတိ၊
Hvílíkur reginmunur var á Adam og Kristi – honum sem koma átti. Hvílíkur munur einnig á synd mannsins og fyrirgefningu Guðs! Þessi eini maður, Adam, leiddi marga í dauðann með synd sinni. Jesús Kristur veitti mörgum fyrirgefningu vegna miskunnar Guðs.
16 အပရမ် ဧကသျ ဇနသျ ပါပကရ္မ္မ ယာဒၖက် ဖလယုက္တံ ဒါနကရ္မ္မ တာဒၖက် န ဘဝတိ ယတော ဝိစာရကရ္မ္မဲကံ ပါပမ် အာရဘျ ဒဏ္ဍဇနကံ ဗဘူဝ, ကိန္တု ဒါနကရ္မ္မ ဗဟုပါပါနျာရဘျ ပုဏျဇနကံ ဗဘူဝ၊
Annars vegar leiddi þessi eina synd Adams dauðadóm yfir marga, en hins vegar fjarlægir Kristur fúslega syndir hinna mörgu og gefur dýrlegt líf í staðinn.
17 ယတ ဧကသျ ဇနသျ ပါပကရ္မ္မတသ္တေနဲကေန ယဒိ မရဏသျ ရာဇတွံ ဇာတံ တရှိ ယေ ဇနာ အနုဂြဟသျ ဗာဟုလျံ ပုဏျဒါနဉ္စ ပြာပ္နုဝန္တိ တ ဧကေန ဇနေန, အရ္ထာတ် ယီၑုခြီၐ္ဋေန, ဇီဝနေ ရာဇတွမ် အဝၑျံ ကရိၐျန္တိ၊
Synd þessa eina manns, Adams, gerði dauðann að húsbónda í lífi mannanna en allir sem taka á móti gjöf Guðs – fyrirgefningu og sýknun – fá mátt til að lifa vegna hins eina manns, Jesú Krists.
18 ဧကော'ပရာဓော ယဒွတ် သရွွမာနဝါနာံ ဒဏ္ဍဂါမီ မာရ္ဂော 'ဘဝတ် တဒွဒ် ဧကံ ပုဏျဒါနံ သရွွမာနဝါနာံ ဇီဝနယုက္တပုဏျဂါမီ မာရ္ဂ ဧဝ၊
Synd Adams leiddi hegningu yfir alla,
19 အပရမ် ဧကသျ ဇနသျာဇ္ဉာလင်္ဃနာဒ် ယထာ ဗဟဝေါ 'ပရာဓိနော ဇာတာသ္တဒွဒ် ဧကသျာဇ္ဉာစရဏာဒ် ဗဟဝး သပုဏျီကၖတာ ဘဝန္တိ၊
en réttlæti Krists leiddi hins vegar af sér, að margir verða þóknanlegir í augum Guðs.
20 အဓိကန္တု ဝျဝသ္ထာဂမနာဒ် အပရာဓသျ ဗာဟုလျံ ဇာတံ ကိန္တု ယတြ ပါပသျ ဗာဟုလျံ တတြဲဝ တသ္မာဒ် အနုဂြဟသျ ဗာဟုလျမ် အဘဝတ်၊
Boðorðin tíu voru gefin mönnunum til þess að þeir sæju að í eigin mætti er þeim ómögulegt að hlýða lögum Guðs, því betur sem við sjáum syndina – því ljósari verður okkur takmarkalaus miskunn Guðs og fyrirgefning.
21 တေန မၖတျုနာ ယဒွတ် ပါပသျ ရာဇတွမ် အဘဝတ် တဒွဒ် အသ္မာကံ ပြဘုယီၑုခြီၐ္ဋဒွါရာနန္တဇီဝနဒါယိပုဏျေနာနုဂြဟသျ ရာဇတွံ ဘဝတိ၊ (aiōnios g166)
Áður fyrr ríkti syndin í lífi allra manna og dró þá til dauða, en nú ríkir gæska Guðs og hún veitir okkur á ný samfélag við Guð og hlut í eilífa lífinu sem fæst fyrir Jesú Krist, Drottin okkar og frelsara. (aiōnios g166)

< ရောမိဏး 5 >