< မာရ္ကး 16 >
1 အထ ဝိၑြာမဝါရေ ဂတေ မဂ္ဒလီနီ မရိယမ် ယာကူဗမာတာ မရိယမ် ၑာလောမီ စေမာသ္တံ မရ္ဒ္ဒယိတုံ သုဂန္ဓိဒြဝျာဏိ ကြီတွာ
Kvöldið eftir, þegar helgidagurinn var liðinn, keyptu María Magdalena, Salóme og María móðir Jakobs, ilmsmyrsl til að smyrja líkama Jesú.
2 သပ္တာဟပြထမဒိနေ'တိပြတျူၐေ သူရျျောဒယကာလေ ၑ္မၑာနမုပဂတား၊
Við sólarupprás morguninn eftir fóru þær með smyrslin út að gröfinni.
3 ကိန္တု ၑ္မၑာနဒွါရပါၐာဏော'တိဗၖဟန် တံ ကော'ပသာရယိၐျတီတိ တား ပရသ္ပရံ ဂဒန္တိ!
Á leiðinni ræddu þær um hvernig þær ættu að velta steininum frá dyrunum – hann var stór og mjög þungur.
4 ဧတရှိ နိရီက္ၐျ ပါၐာဏော ဒွါရော 'ပသာရိတ ဣတိ ဒဒၖၑုး၊
En þegar þær nálguðust, sáu þær að inngangurinn var opinn – steininum hafði þegar verið velt frá!
5 ပၑ္စာတ္တား ၑ္မၑာနံ ပြဝိၑျ ၑုက္လဝရ္ဏဒီရ္ဃပရိစ္ဆဒါဝၖတမေကံ ယုဝါနံ ၑ္မၑာနဒက္ၐိဏပါရ္ၑွ ဥပဝိၐ္ဋံ ဒၖၐ္ဋွာ စမစ္စကြုး၊
Þær gengu inn í gröfina, en brá mjög er þær sáu ungan mann, hvítklæddan, sitja þar inni, hægra megin.
6 သော'ဝဒတ်, မာဘဲၐ္ဋ ယူယံ ကြုၑေ ဟတံ နာသရတီယယီၑုံ ဂဝေၐယထ သောတြ နာသ္တိ ၑ္မၑာနာဒုဒသ္ထာတ်; တဲ ရျတြ သ သ္ထာပိတး သ္ထာနံ တဒိဒံ ပၑျတ၊
„Verið óhræddar, “sagði engillinn. „Þið leitið að Jesú frá Nasaret, hinum krossfesta, er ekki svo? Hann er upprisinn. Hann er ekki hér. Sjáið, þarna lögðu þeir hann.
7 ကိန္တု တေန ယထောက္တံ တထာ ယုၐ္မာကမဂြေ ဂါလီလံ ယာသျတေ တတြ သ ယုၐ္မာန် သာက္ၐာတ် ကရိၐျတေ ယူယံ ဂတွာ တသျ ၑိၐျေဘျး ပိတရာယ စ ဝါရ္တ္တာမိမာံ ကထယတ၊
Farið nú og segið lærisveinum hans – og Pétri: „Hann fer á undan ykkur til Galíleu og þar munuð þið hitta hann eins og hann sagði.““
8 တား ကမ္ပိတာ ဝိသ္တိတာၑ္စ တူရ္ဏံ ၑ္မၑာနာဒ် ဗဟိရ္ဂတွာ ပလာယန္တ ဘယာတ် ကမပိ ကိမပိ နာဝဒံၑ္စ၊
Konurnar flýðu skelfingu lostnar frá gröfinni og komu ekki upp nokkru orði.
9 (note: The most reliable and earliest manuscripts do not include Mark 16:9-20.) အပရံ ယီၑုး သပ္တာဟပြထမဒိနေ ပြတျူၐေ ၑ္မၑာနာဒုတ္ထာယ ယသျား သပ္တဘူတာသ္တျာဇိတာသ္တသျဲ မဂ္ဒလီနီမရိယမေ ပြထမံ ဒရ္ၑနံ ဒဒေါ်၊
(note: The most reliable and earliest manuscripts do not include Mark 16:9-20.) Upprisa Jesú átti sér stað snemma á sunnudagsmorgni og María Magdalena sá hann fyrst allra (hún hafði áður haft sjö illa anda sem Jesús rak út af henni.)
10 တတး သာ ဂတွာ ၑောကရောဒနကၖဒ္ဘျော'နုဂတလောကေဘျသ္တာံ ဝါရ္တ္တာံ ကထယာမာသ၊
Hún fór og fann lærisveinana samankomna, grátandi af hryggð. „Ég hef séð Jesú!“hrópaði hún. „Hann er lifandi!“En þeir trúðu henni ekki.
11 ကိန္တု ယီၑုး ပုနရ္ဇီဝန် တသျဲ ဒရ္ၑနံ ဒတ္တဝါနိတိ ၑြုတွာ တေ န ပြတျယန်၊
12 ပၑ္စာတ် တေၐာံ ဒွါယော ရ္ဂြာမယာနကာလေ ယီၑုရနျဝေၑံ ဓၖတွာ တာဘျာံ ဒရ္ၑန ဒဒေါ်!
Seinna þennan sama dag birtist Jesús tveim mönnum sem voru á gangi frá Jerúsalem, á leið upp í sveit. Í fyrstu þekktu þeir hann ekki, því hann hafði breyst í útliti.
13 တာဝပိ ဂတွာနျၑိၐျေဘျသ္တာံ ကထာံ ကထယာဉ္စကြတုး ကိန္တု တယေား ကထာမပိ တေ န ပြတျယန်၊
Þegar þeir loks áttuðu sig á hver hann var, flýttu þeir sér aftur til Jerúsalem og sögðu hinum frá, en þeir trúðu þeim ekki heldur.
14 ၑေၐတ ဧကာဒၑၑိၐျေၐု ဘောဇနောပဝိၐ္ဋေၐု ယီၑုသ္တေဘျော ဒရ္ၑနံ ဒဒေါ် တထောတ္ထာနာတ် ပရံ တဒ္ဒရ္ၑနပြာပ္တလောကာနာံ ကထာယာမဝိၑွာသကရဏာတ် တေၐာမဝိၑွာသမနးကာဌိနျာဘျာံ ဟေတုဘျာံ သ တာံသ္တရ္ဇိတဝါန်၊
Seinna, þegar lærisveinarnir ellefu sátu saman til borðs, birtist Jesús þeim. Hann ávítaði þá fyrir vantrú þeirra og þrjósku – að þeir skyldu ekki vilja trúa þeim, sem höfðu séð hann upprisinn.
15 အထ တာနာစချော် ယူယံ သရွွဇဂဒ် ဂတွာ သရွွဇနာန် ပြတိ သုသံဝါဒံ ပြစာရယတ၊
Síðan sagði hann: „Farið út um allan heiminn og boðið öllum fagnaðarerindið.
16 တတြ ယး ကၑ္စိဒ် ဝိၑွသျ မဇ္ဇိတော ဘဝေတ် သ ပရိတြာသျတေ ကိန္တု ယော န ဝိၑွသိၐျတိ သ ဒဏ္ဍယိၐျတေ၊
Þeir sem þá trúa og verða skírðir, munu frelsast, en þeir sem hafna trúnni verða dæmdir.
17 ကိဉ္စ ယေ ပြတျေၐျန္တိ တဲရီဒၖဂ် အာၑ္စရျျံ ကရ္မ္မ ပြကာၑယိၐျတေ တေ မန္နာမ္နာ ဘူတာန် တျာဇယိၐျန္တိ ဘာၐာ အနျာၑ္စ ဝဒိၐျန္တိ၊
Þeir sem trúa, skulu fá kraft minn til að reka út illa anda og tala tungum.
18 အပရံ တဲး သရ္ပေၐု ဓၖတေၐု ပြာဏနာၑကဝသ္တုနိ ပီတေ စ တေၐာံ ကာပိ က္ၐတိ ရ္န ဘဝိၐျတိ; ရောဂိဏာံ ဂါတြေၐု ကရာရ္ပိတေ တေ'ရောဂါ ဘဝိၐျန္တိ စ၊
Þeir munu jafnvel geta handleikið höggorma án þess að bíða tjón, og þótt þeir drekki eitthvað eitrað, mun þá ekki saka. Þeir skulu einnig leggja hendur yfir sjúka og lækna þá.“
19 အထ ပြဘုသ္တာနိတျာဒိၑျ သွရ္ဂံ နီတး သန် ပရမေၑွရသျ ဒက္ၐိဏ ဥပဝိဝေၑ၊
Eftir að Drottinn Jesús hafði talað til þeirra, var hann numinn upp til himins og settist til hægri handar Guði.
20 တတသ္တေ ပြသ္ထာယ သရွွတြ သုသံဝါဒီယကထာံ ပြစာရယိတုမာရေဘိရေ ပြဘုသ္တု တေၐာံ သဟာယး သန် ပြကာၑိတာၑ္စရျျကြိယာဘိသ္တာံ ကထာံ ပြမာဏဝတီံ စကာရ၊ ဣတိ၊
En lærisveinarnir fóru af stað og predikuðu alls staðar. Drottinn var með þeim og staðfesti það sem þeir sögðu, með kraftaverkum, sem fylgdu orðum þeirra.