< ပြေရိတား 24 >
1 ပဉ္စဘျော ဒိနေဘျး ပရံ ဟနာနီယနာမာ မဟာယာဇကော'ဓိပတေး သမက္ၐံ ပေါ်လသျ ပြာတိကူလျေန နိဝေဒယိတုံ တရ္တုလ္လနာမာနံ ကဉ္စန ဝက္တာရံ ပြာစီနဇနာံၑ္စ သင်္ဂိနး ကၖတွာ ကဲသရိယာနဂရမ် အာဂစ္ဆတ်၊
Fimm dögum síðar kom Ananías æðsti prestur ásamt nokkrum leiðtogum Gyðinga og lögfræðingnum Tertúllusi til að sækja málið gegn Páli.
2 တတး ပေါ်လေ သမာနီတေ သတိ တရ္တုလ္လသ္တသျာပဝါဒကထာံ ကထယိတုမ် အာရဘတ ဟေ မဟာမဟိမဖီလိက္ၐ ဘဝတော ဝယမ် အတိနိရွွိဃ္နံ ကာလံ ယာပယာမော ဘဝတး ပရိဏာမဒရ္ၑိတယာ ဧတဒ္ဒေၑီယာနာံ ဗဟူနိ မင်္ဂလာနိ ဃဋိတာနိ,
Tertúllus var kallaður fyrir landstjórann og bar þar fram ákærur gegn Páli. Hann sagði:
3 ဣတိ ဟေတော ရွယမတိကၖတဇ္ဉား သန္တး သရွွတြ သရွွဒါ ဘဝတော ဂုဏာန် ဂါယမး၊
„Göfugi Felix, fyrir þitt tilstilli höfum við Gyðingar fengið að lifa í friði og þú hefur stórlega rétt hlut okkar.
4 ကိန္တု ဗဟုဘိး ကထာဘိ ရ္ဘဝန္တံ ယေန န ဝိရဉ္ဇယာမိ တသ္မာဒ် ဝိနယေ ဘဝါန် ဗနုကမ္ပျ မဒလ္ပကထာံ ၑၖဏောတု၊
En til að tefja þig sem minnst, bið ég þig vinsamlegast að hlusta á mig andartak meðan ég skýri þér stuttlega frá ákærum okkar gegn þessum manni.
5 ဧၐ မဟာမာရီသွရူပေါ နာသရတီယမတဂြာဟိသံဃာတသျ မုချော ဘူတွာ သရွွဒေၑေၐု သရွွေၐာံ ယိဟူဒီယာနာံ ရာဇဒြောဟာစရဏပြဝၖတ္တိံ ဇနယတီတျသ္မာဘိ ရ္နိၑ္စိတံ၊
Við höfum komist að því að hann veldur vandræðum um allan heim og æsir Gyðinga til óeirða gegn rómverskum yfirvöldum. Hann er forsprakki sértrúarflokks sem þekktur er undir nafninu nasarearnir.
6 သ မန္ဒိရမပိ အၑုစိ ကရ္တ္တုံ စေၐ္ဋိတဝါန်; ဣတိ ကာရဏာဒ် ဝယမ် ဧနံ ဓၖတွာ သွဝျဝသ္ထာနုသာရေဏ ဝိစာရယိတုံ ပြာဝရ္တ္တာမဟိ;
Auk alls þessa reyndi hann að saurga musterið, en þá gripum við hann. Við ætluðum að veita honum verðskuldaða ráðningu,
7 ကိန္တု လုၐိယး သဟသြသေနာပတိရာဂတျ ဗလာဒ် အသ္မာကံ ကရေဘျ ဧနံ ဂၖဟီတွာ
en þá kom Lýsías hersveitarforingi og tók hann af okkur með ofbeldi.
8 ဧတသျာပဝါဒကာန် ဘဝတး သမီပမ် အာဂန္တုမ် အာဇ္ဉာပယတ်၊ ဝယံ ယသ္မိန် တမပဝါဒါမော ဘဝတာ ပဒပဝါဒကထာယာံ ဝိစာရိတာယာံ သတျာံ သရွွံ ဝၖတ္တာန္တံ ဝေဒိတုံ ၑက္ၐျတေ၊
Hann krafðist þess að farið yrði með mál hans eftir rómverskum lögum. Þú getur sjálfur gengið úr skugga um réttmæti ásakana okkar með því að yfirheyra manninn.“
9 တတော ယိဟူဒီယာ အပိ သွီကၖတျ ကထိတဝန္တ ဧၐာ ကထာ ပြမာဏမ်၊
Þessu samsinntu hinir Gyðingarnir og lýstu yfir því að framburður Tertúllusar væri réttur.
10 အဓိပတော် ကထာံ ကထယိတုံ ပေါ်လံ ပြတီင်္ဂိတံ ကၖတဝတိ သ ကထိတဝါန် ဘဝါန် ဗဟူန် ဝတ္သရာန် ယာဝဒ် ဧတဒ္ဒေၑသျ ၑာသနံ ကရောတီတိ ဝိဇ္ဉာယ ပြတျုတ္တရံ ဒါတုမ် အက္ၐောဘော'ဘဝမ်၊
Nú var röðin komin að Páli. Landstjórinn gaf honum bendingu um að rísa á fætur og tala máli sínu. Páll tók til máls og sagði: „Mér er kunnugt um, herra, að þú hefur verið dómari í málum Gyðinga um árabil og finnst mér gott að vita það, nú þegar ég flyt varnarræðu mína.
11 အဒျ ကေဝလံ ဒွါဒၑ ဒိနာနိ ယာတာနိ, အဟမ် အာရာဓနာံ ကရ္တ္တုံ ယိရူၑာလမနဂရံ ဂတဝါန် ဧၐာ ကထာ ဘဝတာ ဇ္ဉာတုံ ၑကျတေ;
Þú munt fljótt komast að því að ekki eru liðnir nema tólf dagar síðan ég kom til Jerúsalem, til að biðjast fyrir í musterinu.
12 ကိန္တွိဘေ မာံ မဓျေမန္ဒိရံ ကေနာပိ သဟ ဝိတဏ္ဍာံ ကုရွွန္တံ ကုတြာပိ ဘဇနဘဝနေ နဂရေ ဝါ လောကာန် ကုပြဝၖတ္တိံ ဇနယန္တုံ န ဒၖၐ္ဋဝန္တး၊
Einnig að ég hef ekki komið af stað óeirðum í nokkru samkomuhúsi Gyðinga né á götum nokkurrar borgar.
13 ဣဒါနီံ ယသ္မိန် ယသ္မိန် မာမ် အပဝဒန္တေ တသျ ကိမပိ ပြမာဏံ ဒါတုံ န ၑက္နုဝန္တိ၊
Þessir menn geta áreiðanlega ekki sannað neina af þeim ásökunum, sem þeir hafa borið á mig.
14 ကိန္တု ဘဝိၐျဒွါကျဂြန္ထေ ဝျဝသ္ထာဂြန္ထေ စ ယာ ယာ ကထာ လိခိတာသ္တေ တာသု သရွွာသု ဝိၑွသျ ယန္မတမ် ဣမေ ဝိဓရ္မ္မံ ဇာနန္တိ တန္မတာနုသာရေဏာဟံ နိဇပိတၖပုရုၐာဏာမ် ဤၑွရမ် အာရာဓယာမီတျဟံ ဘဝတး သမက္ၐမ် အင်္ဂီကရောမိ၊
En eitt vil ég játa og það er að ég trúi þeirri hjálpræðisleið sem þeir kalla sértrú. Ég þjóna Guði á sama hátt og forfeður okkar, og ég vil taka það fram, að ég trúi öllu sem skrifað er í lögum Gyðinga og ritum spámannanna.
15 ဓာရ္မ္မိကာဏာမ် အဓာရ္မ္မိကာဏာဉ္စ ပြမီတလောကာနာမေဝေါတ္ထာနံ ဘဝိၐျတီတိ ကထာမိမေ သွီကုရွွန္တိ တထာဟမပိ တသ္မိန် ဤၑွရေ ပြတျာၑာံ ကရောမိ;
Þessir menn trúa því að bæði vondir og góðir muni rísa upp og sama segi ég.
16 ဤၑွရသျ မာနဝါနာဉ္စ သမီပေ ယထာ နိရ္ဒောၐော ဘဝါမိ တဒရ္ထံ သတတံ ယတ္နဝါန် အသ္မိ၊
Af þessum ástæðum reyni ég ávallt að hafa góða samvisku, bæði gagnvart Guði og mönnum.
17 ဗဟုၐု ဝတ္သရေၐု ဂတေၐု သွဒေၑီယလောကာနာံ နိမိတ္တံ ဒါနီယဒြဝျာဏိ နဲဝေဒျာနိ စ သမာဒါယ ပုနရာဂမနံ ကၖတဝါန်၊
Eftir nokkurra ára fjarveru kom ég aftur til Jerúsalem og hafði þá með mér peninga til aðstoðar Gyðingum. Einnig kom ég til að færa Guði fórn.
18 တတောဟံ ၑုစိ ရ္ဘူတွာ လောကာနာံ သမာဂမံ ကလဟံ ဝါ န ကာရိတဝါန် တထာပျာၑိယာဒေၑီယား ကိယန္တော ယိဟုဒီယလောကာ မဓျေမန္ဒိရံ မာံ ဓၖတဝန္တး၊
Ákærendur mínir sáu mig í musterinu, þegar ég var að bera fram þakkarfórn mína. Ég hafði rakað höfuð mitt eins og lög Gyðinga gera ráð fyrir og umhverfis mig var hvorki æstur múgur né uppþot. Þar voru hins vegar nokkrir Gyðingar frá Litlu-Asíu
19 မမောပရိ ယဒိ ကာစိဒပဝါဒကထာသ္တိ တရှိ ဘဝတး သမီပမ် ဥပသ္ထာယ တေၐာမေဝ သာက္ၐျဒါနမ် ဥစိတမ်၊
– þeir ættu reyndar að vera hér, hafi þeir eitthvað að ásaka mig fyrir.
20 နောစေတ် ပူရွွေ မဟာသဘာသ္ထာနာံ လောကာနာံ သန္နိဓော် မမ ဒဏ္ဍာယမာနတွသမယေ, အဟမဒျ မၖတာနာမုတ္ထာနေ ယုၐ္မာဘိ ရွိစာရိတောသ္မိ,
En gerðu nú eitt. Spurðu þessa menn, hér og nú, hvaða sök Gyðingaráðið hafi fundið hjá mér,
21 တေၐာံ မဓျေ တိၐ္ဌန္နဟံ ယာမိမာံ ကထာမုစ္စဲး သွရေဏ ကထိတဝါန် တဒနျော မမ ကောပိ ဒေါၐော'လဘျတ န ဝေတိ ဝရမ် ဧတေ သမုပသ္ထိတလောကာ ဝဒန္တု၊
aðra en þá að ég kallaði upp: „Ég er hér fyrir rétti í dag til að verja þá trú mína að dauðir muni rísa upp!““
22 တဒါ ဖီလိက္ၐ ဧတာံ ကထာံ ၑြုတွာ တန္မတသျ ဝိၑေၐဝၖတ္တာန္တံ ဝိဇ္ဉာတုံ ဝိစာရံ သ္ထဂိတံ ကၖတွာ ကထိတဝါန် လုၐိယေ သဟသြသေနာပတော် သမာယာတေ သတိ ယုၐ္မာကံ ဝိစာရမ် အဟံ နိၐ္ပာဒယိၐျာမိ၊
Felix, sem vissi vel að kristnir menn voru ekki vanir að valda óeirðum, bað nú Gyðinga að bíða komu Lýsíasar hersveitarforingja og þá mundi hann dæma í málinu.
23 အနန္တရံ ဗန္ဓနံ ဝိနာ ပေါ်လံ ရက္ၐိတုံ တသျ သေဝနာယ သာက္ၐာတ္ကရဏာယ ဝါ တဒီယာတ္မီယဗန္ဓုဇနာန် န ဝါရယိတုဉ္စ ၑမသေနာပတိမ် အာဒိၐ္ဋဝါန်၊
Síðan bauð hann að Páli skyldi haldið í fangelsi. Jafnframt gaf hann vörðunum fyrirmæli um að fara vel með hann og leyfa vinum hans að heimsækja hann.
24 အလ္ပဒိနာတ် ပရံ ဖီလိက္ၐော'ဓိပတိ ရ္ဒြုၐိလ္လာနာမ္နာ ယိဟူဒီယယာ သွဘာရျျယာ သဟာဂတျ ပေါ်လမာဟူယ တသျ မုခါတ် ခြီၐ္ဋဓရ္မ္မသျ ဝၖတ္တာန္တမ် အၑြော်ၐီတ်၊
Nokkrum dögum síðar kom Felix, ásamt Drúsillu eiginkonu sinni, sem var Gyðingur. Lét hann sækja Pál og hlustuðu þau á hann segja frá trú sinni á Jesú Krist.
25 ပေါ်လေန နျာယသျ ပရိမိတဘောဂသျ စရမဝိစာရသျ စ ကထာယာံ ကထိတာယာံ သတျာံ ဖီလိက္ၐး ကမ္ပမာနး သန် ဝျာဟရဒ် ဣဒါနီံ ယာဟိ, အဟမ် အဝကာၑံ ပြာပျ တွာမ် အာဟူသျာမိ၊
Þegar Páll fór að tala um réttlæti, líf í hreinleika og komandi dóm, varð Felix mjög hræddur og sagði: „Þetta er nóg í bili. Ég mun kalla á þig aftur þegar betur stendur á.“
26 မုက္တိပြပ္တျရ္ထံ ပေါ်လေန မဟျံ မုဒြာဒါသျန္တေ ဣတိ ပတျာၑာံ ကၖတွာ သ ပုနး ပုနသ္တမာဟူယ တေန သာကံ ကထောပကထနံ ကၖတဝါန်၊
Hann gerði sér vonir um að Páll myndi bjóða sér mútur og lét því senda eftir honum öðru hverju til þess að ræða við hann.
27 ကိန္တု ဝတ္သရဒွယာတ် ပရံ ပရ္ကိယဖီၐ္ဋ ဖာလိက္ၐသျ ပဒံ ပြာပ္တေ သတိ ဖီလိက္ၐော ယိဟူဒီယာန် သန္တုၐ္ဋာန် စိကီရ္ၐန် ပေါ်လံ ဗဒ္ဓံ သံသ္ထာပျ ဂတဝါန်၊
Þannig liðu tvö ár. Eftir það tók Porkíus Festus við af Felix og vegna þess að Felix vildi koma sér í mjúkinn hjá Gyðingunum skildi hann Pál eftir í fangelsinu.