< ပြေရိတား 20 >

1 ဣတ္ထံ ကလဟေ နိဝၖတ္တေ သတိ ပေါ်လး ၑိၐျဂဏမ် အာဟူယ ဝိသရ္ဇနံ ပြာပျ မာကိဒနိယာဒေၑံ ပြသ္ထိတဝါန်၊
Eftir uppþotið kallaði Páll saman lærisveinana, uppörvaði þá og kvaddi og hélt síðan til Grikklands.
2 တေန သ္ထာနေန ဂစ္ဆန် တဒ္ဒေၑီယာန် ၑိၐျာန် ဗဟူပဒိၑျ ယူနာနီယဒေၑမ် ဥပသ္ထိတဝါန်၊
Á leiðinni þangað predikaði hann í hverjum bæ, þar sem kristna menn var að finna.
3 တတြ မာသတြယံ သ္ထိတွာ တသ္မာတ် သုရိယာဒေၑံ ယာတုမ် ဥဒျတး, ကိန္တု ယိဟူဒီယာသ္တံ ဟန္တုံ ဂုပ္တာ အတိၐ္ဌန် တသ္မာတ် သ ပုနရပိ မာကိဒနိယာမာရ္ဂေဏ ပြတျာဂန္တုံ မတိံ ကၖတဝါန်၊
Eftir þriggja mánaða dvöl í Grikklandi, bjó hann sig undir að sigla til Sýrlands, en komst þá á snoðir um að Gyðingarnir höfðu gert samsæri um að lífláta hann. Hann ákvað því að breyta ferðaáætluninni og fara fyrst norður til Makedóníu.
4 ဗိရယာနဂရီယသောပါတြး ထိၐလနီကီယာရိသ္တာရ္ခသိကုန္ဒော် ဒရ္ဗ္ဗောနဂရီယဂါယတီမထိယော် အာၑိယာဒေၑီယတုခိကတြဖိမော် စ တေန သာရ္ဒ္ဓံ အာၑိယာဒေၑံ ယာဝဒ် ဂတဝန္တး၊
Í fylgd með Páli voru þessir menn: Sópater Pýrrusson frá Beroju, Aristarkus og Sekúndus frá Þessaloníku, Gajus frá Derbe, Tímóteus, og Týkíkus og Trófímus, báðir frá Litlu-Asíu.
5 ဧတေ သရွွေ 'ဂြသရား သန္တော 'သ္မာန် အပေက္ၐျ တြောယာနဂရေ သ္ထိတဝန္တး၊
Þeir fóru á undan og biðu okkar í Tróas.
6 ကိဏွၑူနျပူပေါတ္သဝဒိနေ စ ဂတေ သတိ ဝယံ ဖိလိပီနဂရာတ် တောယပထေန ဂတွာ ပဉ္စဘိ ရ္ဒိနဲသ္တြောယာနဂရမ် ဥပသ္ထာယ တတြ သပ္တဒိနာနျဝါတိၐ္ဌာမ၊
Eftir páskahátíðina sigldum við frá Filippí, áleiðis til Tróas og tók ferðin alls fimm daga. Í Tróas dvöldumst við eina viku.
7 သပ္တာဟသျ ပြထမဒိနေ ပူပါန် ဘံက္တု ၑိၐျေၐု မိလိတေၐု ပေါ်လး ပရဒိနေ တသ္မာတ် ပြသ္ထာတုမ် ဥဒျတး သန် တဒဟ္နိ ပြာယေဏ က္ၐပါယာ ယာမဒွယံ ယာဝတ် ၑိၐျေဘျော ဓရ္မ္မကထာမ် အကထယတ်၊
Á sunnudeginum komum við saman til heilagrar kvöldmáltíðar. Páll predikaði og vegna þess að hann ætlaði að halda ferðinni áfram næsta dag, talaði hann alveg til miðnættis.
8 ဥပရိသ္ထေ ယသ္မိန် ပြကောၐ္ဌေ သဘာံ ကၖတွာသန် တတြ ဗဟဝး ပြဒီပါး ပြာဇွလန်၊
Loftsalurinn, sem við vorum í, var lýstur upp með mörgum lömpum.
9 ဥတုခနာမာ ကၑ္စန ယုဝါ စ ဝါတာယန ဥပဝိၑန် ဃောရတရနိဒြာဂြသ္တော 'ဘူတ် တဒါ ပေါ်လေန ဗဟုက္ၐဏံ ကထာယာံ ပြစာရိတာယာံ နိဒြာမဂ္နး သ တသ္မာဒ် ဥပရိသ္ထတၖတီယပြကောၐ္ဌာဒ် အပတတ်, တတော လောကာသ္တံ မၖတကလ္ပံ ဓၖတွောဒတောလယန်၊
Páll hafði talað lengi þegar drengur, sem Evtýkus hét og sat í gluggakistunni, sofnaði undir ræðunni og féll út um gluggann, niður af þriðju hæð. Var hann látinn þegar að var komið.
10 တတး ပေါ်လော'ဝရုဟျ တသျ ဂါတြေ ပတိတွာ တံ ကြောဍေ နိဓာယ ကထိတဝါန်, ယူယံ ဝျာကုလာ မာ ဘူတ နာယံ ပြာဏဲ ရွိယုက္တး၊
Páll fór niður til hans og tók hann í fangið. „Hafið engar áhyggjur, “sagði hann, „hann lifir.“Það reyndist rétt! Fólkið endurheimti gleði sína og síðan fóru allir upp í loftsalinn og neyttu saman kvöldmáltíðar Drottins. Eftir það hélt Páll áfram máli sínu og talaði lengi. Þegar hann hélt loks leiðar sinnar, var kominn morgunn!
11 ပၑ္စာတ် သ ပုနၑ္စောပရိ ဂတွာ ပူပါန် ဘံက္တွာ ပြဘာတံ ယာဝတ် ကထောပကထနေ ကၖတွာ ပြသ္ထိတဝါန်၊
12 တေ စ တံ ဇီဝန္တံ ယုဝါနံ ဂၖဟီတွာ ဂတွာ ပရမာပျာယိတာ ဇာတား၊
13 အနန္တရံ ဝယံ ပေါတေနာဂြသရာ ဘူတွာသ္မနဂရမ် ဥတ္တီရျျ ပေါ်လံ ဂြဟီတုံ မတိမ် အကုရ္မ္မ ယတး သ တတြ ပဒ္ဘျာံ ဝြဇိတုံ မတိံ ကၖတွေတိ နိရူပိတဝါန်၊
Páll fór landleiðina til Assus en við fórum á undan honum með skipi.
14 တသ္မာတ် တတြာသ္မာဘိး သာရ္ဒ္ဓံ တသ္မိန် မိလိတေ သတိ ဝယံ တံ နီတွာ မိတုလီနျုပဒွီပံ ပြာပ္တဝန္တး၊
Í Assus hittum við hann og sigldum svo saman til Mitýlene.
15 တသ္မာတ် ပေါတံ မောစယိတွာ ပရေ'ဟနိ ခီယောပဒွီပသျ သမ္မုခံ လဗ္ဓဝန္တသ္တသ္မာဒ် ဧကေနာဟ္နာ သာမောပဒွီပံ ဂတွာ ပေါတံ လာဂယိတွာ တြောဂုလ္လိယေ သ္ထိတွာ ပရသ္မိန် ဒိဝသေ မိလီတနဂရမ် ဥပါတိၐ္ဌာမ၊
Daginn eftir sigldum við fram hjá Kíos, næsta dag komum við til Samos og þar næsta til Míletus.
16 ယတး ပေါ်လ အာၑိယာဒေၑေ ကာလံ ယာပယိတုမ် နာဘိလၐန် ဣဖိၐနဂရံ တျက္တွာ ယာတုံ မန္တြဏာံ သ္ထိရီကၖတဝါန်; ယသ္မာဒ် ယဒိ သာဓျံ ဘဝတိ တရှိ နိသ္တာရောတ္သဝသျ ပဉ္စာၑတ္တမဒိနေ သ ယိရူၑာလမျုပသ္ထာတုံ မတိံ ကၖတဝါန်၊
Páll hafði ákveðið að koma ekki við í Efesus. Hann vildi flýta sér til Jerúsalem til þess að komast á hvítasunnuhátíðina, ef mögulegt væri.
17 ပေါ်လော မိလီတာဒ် ဣဖိၐံ ပြတိ လောကံ ပြဟိတျ သမာဇသျ ပြာစီနာန် အာဟူယာနီတဝါန်၊
Þegar við komum að landi í Míletus sendi hann skilaboð til leiðtoga safnaðarins í Efesus og bað þá að koma og hitta sig.
18 တေၐု တသျ သမီပမ် ဥပသ္ထိတေၐု သ တေဘျ ဣမာံ ကထာံ ကထိတဝါန်, အဟမ် အာၑိယာဒေၑေ ပြထမာဂမနမ် အာရဘျာဒျ ယာဝဒ် ယုၐ္မာကံ သန္နိဓော် သ္ထိတွာ သရွွသမယေ ယထာစရိတဝါန် တဒ် ယူယံ ဇာနီထ;
Þegar þeir komu sagði hann: „Þið vitið að frá þeirri stundu er ég steig fyrst fæti á Litlu-Asíu og fram á þennan dag,
19 ဖလတး သရွွထာ နမြမနား သန် ဗဟုၑြုပါတေန ယိဟုဒီယာနာမ် ကုမန္တြဏာဇာတနာနာပရီက္ၐာဘိး ပြဘေား သေဝါမကရဝံ၊
hef ég unnið verk Drottins auðmjúkur og með tárum. Oft hef ég horfst í augu við dauðann vegna þeirra launráða, sem Gyðingarnir hafa bruggað mér.
20 ကာမပိ ဟိတကထာံ န ဂေါပါယိတဝါန် တာံ ပြစာရျျ သပြကာၑံ ဂၖဟေ ဂၖဟေ သမုပဒိၑျေၑွရံ ပြတိ မနး ပရာဝရ္တ္တနီယံ ပြဘော် ယီၑုခြီၐ္ဋေ ဝိၑွသနီယံ
Samt skoraðist ég aldrei undan að segja ykkur sannleikann, hvort sem það var opinberlega eða á heimilum ykkar.
21 ယိဟူဒီယာနာမ် အနျဒေၑီယလောကာနာဉ္စ သမီပ ဧတာဒၖၑံ သာက္ၐျံ ဒဒါမိ၊
Ég hef vitnað um það, bæði fyrir Gyðingum og heiðingjum, að við verðum að snúa baki við syndinni og gefast Guði á vald, í trúnni á Drottin Jesú Krist.
22 ပၑျတ သာမ္ပြတမ် အာတ္မနာကၖၐ္ဋး သန် ယိရူၑာလမ္နဂရေ ယာတြာံ ကရောမိ, တတြ မာမ္ပြတိ ယဒျဒ် ဃဋိၐျတေ တာနျဟံ န ဇာနာမိ;
Nú er ég á leið til Jerúsalem, þangað knýr heilagur andi mig og við því fæ ég ekkert gert. Ekki veit ég hvað bíður mín þar,
23 ကိန္တု မယာ ဗန္ဓနံ က္လေၑၑ္စ ဘောက္တဝျ ဣတိ ပဝိတြ အာတ္မာ နဂရေ နဂရေ ပြမာဏံ ဒဒါတိ၊
en eitt veit ég þó: Heilagur andi segir við mig, hvert sem ég fer, að mín bíði fangelsi og þjáningar.
24 တထာပိ တံ က္လေၑမဟံ တၖဏာယ န မနျေ; ဤၑွရသျာနုဂြဟဝိၐယကသျ သုသံဝါဒသျ ပြမာဏံ ဒါတုံ, ပြဘော ရျီၑေား သကာၑာဒ ယသျား သေဝါယား ဘာရံ ပြာပ္နဝံ တာံ သေဝါံ သာဓယိတုံ သာနန္ဒံ သွမာရ္ဂံ သမာပယိတုဉ္စ နိဇပြာဏာနပိ ပြိယာန် န မနျေ၊
En líf mitt er ekki til neins annars en að vinna það verk, sem Drottinn Jesús fól mér – að flytja öðrum fagnaðarerindið um kærleika og náð Guðs.
25 အဓုနာ ပၑျတ ယေၐာံ သမီပေ'ဟမ် ဤၑွရီယရာဇျသျ သုသံဝါဒံ ပြစာရျျ ဘြမဏံ ကၖတဝါန် ဧတာဒၖၑာ ယူယံ မမ ဝဒနံ ပုန ရ္ဒြၐ္ဋုံ န ပြာပ္သျထ ဧတဒပျဟံ ဇာနာမိ၊
Ég kom til ykkar og fræddi ykkur um guðsríki, en nú er mér ljóst, að þetta er í síðasta skipti sem þið sjáið mig.
26 ယုၐ္မဘျမ် အဟမ် ဤၑွရသျ သရွွာန် အာဒေၑာန် ပြကာၑယိတုံ န နျဝရ္တ္တေ၊
Það er skoðun mín að ekki sé það mér að kenna þótt einhverjir glatist, “
27 အဟံ သရွွေၐာံ လောကာနာံ ရက္တပါတဒေါၐာဒ် ယန္နိရ္ဒောၐ အာသေ တသျာဒျ ယုၐ္မာန် သာက္ၐိဏး ကရောမိ၊
því að ég flutti ykkur allt Guðs orð og dró ekkert undan.
28 ယူယံ သွေၐု တထာ ယသျ ဝြဇသျာဓျက္ၐန် အာတ္မာ ယုၐ္မာန် ဝိဓာယ နျယုင်္က္တ တတ္သရွွသ္မိန် သာဝဓာနာ ဘဝတ, ယ သမာဇဉ္စ ပြဘု ရ္နိဇရက္တမူလျေန ကြီတဝါန တမ် အဝတ,
Gætið ykkar og safnaðarins vel. Heilagur andi hefur falið ykkur þá ábyrgð að vera leiðtogar fyrir hjörð Guðs og annast hana – kirkjuna, sem hann keypti með sínu dýrmæta blóði.
29 ယတော မယာ ဂမနေ ကၖတဧဝ ဒုရ္ဇယာ ဝၖကာ ယုၐ္မာကံ မဓျံ ပြဝိၑျ ဝြဇံ ပြတိ နိရ္ဒယတာမ် အာစရိၐျန္တိ,
Ég veit að þegar ég er farinn frá ykkur, munu falskennendur koma fram á meðal ykkar. Þeir líkjast gráðugum og grimmum úlfum, sem ráðast á hjörðina.
30 ယုၐ္မာကမေဝ မဓျာဒပိ လောကာ ဥတ္ထာယ ၑိၐျဂဏမ် အပဟန္တုံ ဝိပရီတမ် ဥပဒေက္ၐျန္တီတျဟံ ဇာနာမိ၊
Sumir úr ykkar hópi munu rangsnúa sannleikanum til að safna að sér fylgjendum.
31 ဣတိ ဟေတော ရျူယံ သစဲတနျား သန္တသ္တိၐ္ဋတ, အဟဉ္စ သာၑြုပါတး သန် ဝတ္သရတြယံ ယာဝဒ် ဒိဝါနိၑံ ပြတိဇနံ ဗောဓယိတုံ န နျဝရ္တ္တေ တဒပိ သ္မရတ၊
Gætið vel að öllu! Minnist þessara þriggja ára er ég dvaldist meðal ykkar. Munið hvernig ég annaðist ykkur dag og nótt og gleymið ekki tárunum, sem runnu ykkar vegna.
32 ဣဒါနီံ ဟေ ဘြာတရော ယုၐ္မာကံ နိၐ္ဌာံ ဇနယိတုံ ပဝိတြီကၖတလောကာနာံ မဓျေ'ဓိကာရဉ္စ ဒါတုံ သမရ္ထော ယ ဤၑွရသ္တသျာနုဂြဟသျ ယော ဝါဒၑ္စ တယောရုဘယော ရျုၐ္မာန် သမာရ္ပယမ်၊
Nú fel ég ykkur Guði og orði máttar hans, sem megnar að efla trú ykkar og gefa ykkur arf með öllum þeim, sem hann hefur helgað sér.
33 ကသျာပိ သွရ္ဏံ ရူပျံ ဝသ္တြံ ဝါ ပြတိ မယာ လောဘော န ကၖတး၊
Hvorki girntist ég fé né fatnað nokkurs manns.
34 ကိန္တု မမ မတ္သဟစရလောကာနာဉ္စာဝၑျကဝျယာယ မဒီယမိဒံ ကရဒွယမ် အၑြာမျဒ် ဧတဒ် ယူယံ ဇာနီထ၊
Þið vitið sjálfir að hendur mínar unnu fyrir lífsviðurværi mínu og jafnvel þörfum þeirra sem með mér voru.
35 အနေန ပြကာရေဏ ဂြဟဏဒ် ဒါနံ ဘဒြမိတိ ယဒွါကျံ ပြဘု ရျီၑုး ကထိတဝါန် တတ် သ္မရ္တ္တုံ ဒရိဒြလောကာနာမုပကာရာရ္ထံ ၑြမံ ကရ္တ္တုဉ္စ ယုၐ္မာကမ် ဥစိတမ် ဧတတ္သရွွံ ယုၐ္မာနဟမ် ဥပဒိၐ္ဋဝါန်၊
Ég var ykkur fyrirmynd í því að hjálpa snauðum, minnugur orða Drottins Jesú: „Sælla er að gefa en þiggja.“
36 ဧတာံ ကထာံ ကထယိတွာ သ ဇာနုနီ ပါတယိတွာ သရွဲး သဟ ပြာရ္ထယတ၊
Þegar Páll hafði lokið máli sínu, kraup hann niður og bað með þeim.
37 တေန တေ ကြန္ဒြန္တး
Þeir grétu og föðmuðu hann að sér að skilnaði,
38 ပုန ရ္မမ မုခံ န ဒြက္ၐျထ ဝိၑေၐတ ဧၐာ ယာ ကထာ တေနာကထိ တတ္ကာရဏာတ် ၑောကံ ဝိလာပဉ္စ ကၖတွာ ကဏ္ဌံ ဓၖတွာ စုမ္ဗိတဝန္တး၊ ပၑ္စာတ် တေ တံ ပေါတံ နီတဝန္တး၊
og þótti sárt að heyra að hann mundi aldrei sjá þá framar. Síðan fylgdu þeir honum til skips.

< ပြေရိတား 20 >