< ၁ ကရိန္ထိနး 13 >
1 မရ္တျသွရ္ဂီယာဏာံ ဘာၐာ ဘာၐမာဏော'ဟံ ယဒိ ပြေမဟီနော ဘဝေယံ တရှိ ဝါဒကတာလသွရူပေါ နိနာဒကာရိဘေရီသွရူပၑ္စ ဘဝါမိ၊
Þótt ég hefði hæfileika til að tala tungum og talaði öll tungumál, bæði jarðnesk og himnesk, en elskaði ekki aðra, þá væri það ómerkilegt glamur – tilgangslaus orðaflaumur.
2 အပရဉ္စ ယဒျဟမ် ဤၑွရီယာဒေၑာဎျး သျာံ သရွွာဏိ ဂုပ္တဝါကျာနိ သရွွဝိဒျာဉ္စ ဇာနီယာံ ပူရ္ဏဝိၑွာသး သန် ၑဲလာန် သ္ထာနာန္တရီကရ္တ္တုံ ၑက္နုယာဉ္စ ကိန္တု ယဒိ ပြေမဟီနော ဘဝေယံ တရှျဂဏနီယ ဧဝ ဘဝါမိ၊
Ef ég hefði spádómsgáfu og vissi allt um framtíðina, vissi bókstaflega allt um allt, en hefði ekki kærleika, hvaða gagn væri þá í því? Og jafnvel þó að ég hefði svo mikla trú að ég gæti skipað fjöllum að færast úr stað, þá væri ég einskis virði án kærleika. Ef ég elskaði ekki meðbræður mína, þá væri ég engu bættari.
3 အပရံ ယဒျဟမ် အန္နဒါနေန သရွွသွံ တျဇေယံ ဒါဟနာယ သွၑရီရံ သမရ္ပယေယဉ္စ ကိန္တု ယဒိ ပြေမဟီနော ဘဝေယံ တရှိ တတ္သရွွံ မဒရ္ထံ နိၐ္ဖလံ ဘဝတိ၊
Þótt ég gæfi fátækum aleiguna eða yrði brenndur á báli fyrir trúna á Jesú, en hefði ekki kærleika, væri ég ekkert betri.
4 ပြေမ စိရသဟိၐ္ဏု ဟိတဲၐိ စ, ပြေမ နိရ္ဒွေၐမ် အၑဌံ နိရ္ဂရွွဉ္စ၊
Kærleikurinn er þolinmóður og góðviljaður. Hann er hvorki öfundsjúkur, montinn né hrokafullur.
5 အပရံ တတ် ကုတ္သိတံ နာစရတိ, အာတ္မစေၐ္ဋာံ န ကုရုတေ သဟသာ န ကြုဓျတိ ပရာနိၐ္ဋံ န စိန္တယတိ,
Hann er aldrei yfirlætislegur, eigingjarn eða ókurteis. Hann krefst ekki réttar síns, reiðist ekki og er ekki langrækinn né smámunasamur.
6 အဓရ္မ္မေ န တုၐျတိ သတျ ဧဝ သန္တုၐျတိ၊
Hann gleðst aldrei yfir ranglæti, heldur fagnar þegar sannleikurinn nær fram að ganga.
7 တတ် သရွွံ တိတိက္ၐတေ သရွွတြ ဝိၑွသိတိ သရွွတြ ဘဒြံ ပြတီက္ၐတေ သရွွံ သဟတေ စ၊
Sá sem hlýðir rödd kærleikans, breiðir yfir mistök annarra, treystir orðum þeirra, umber þá og væntir góðs frá þeim.
8 ပြေမ္နော လောပး ကဒါပိ န ဘဝိၐျတိ, ဤၑွရီယာဒေၑကထနံ လောပ္သျတေ ပရဘာၐာဘာၐဏံ နိဝရ္တ္တိၐျတေ ဇ္ဉာနမပိ လောပံ ယာသျတိ၊
Kærleikurinn mun aldrei falla úr gildi, en hæfileikinn til að spá og tala tungum, og þekkingargáfa, allt mun þetta líða undir lok.
9 ယတော'သ္မာကံ ဇ္ဉာနံ ခဏ္ဍမာတြမ် ဤၑွရီယာဒေၑကထနမပိ ခဏ္ဍမာတြံ၊
Þekking okkar nær skammt, og spádómar okkar líka,
10 ကိန္တွသ္မာသု သိဒ္ဓတာံ ဂတေၐု တာနိ ခဏ္ဍမာတြာဏိ လောပံ ယာသျန္တေ၊
en þegar við verðum orðin fullkomin í eilífðinni, þá þurfum við ekki lengur á þessum sérstöku hæfileikum að halda, og þá munu þeir hverfa.
11 ဗာလျကာလေ'ဟံ ဗာလ ဣဝါဘာၐေ ဗာလ ဣဝါစိန္တယဉ္စ ကိန္တု ယော်ဝနေ ဇာတေ တတ္သရွွံ ဗာလျာစရဏံ ပရိတျက္တဝါန်၊
Þegar ég var barn, þá talaði ég, hugsaði og ályktaði eins og barn, en þegar ég varð fullorðinn þá óx ég frá því öllu og lagði niður barnaskapinn.
12 ဣဒါနီမ် အဘြမဓျေနာသ္ပၐ္ဋံ ဒရ္ၑနမ် အသ္မာဘိ ရ္လဘျတေ ကိန္တု တဒါ သာက္ၐာတ် ဒရ္ၑနံ လပ္သျတေ၊ အဓုနာ မမ ဇ္ဉာနမ် အလ္ပိၐ္ဌံ ကိန္တု တဒါဟံ ယထာဝဂမျသ္တထဲဝါဝဂတော ဘဝိၐျာမိ၊
Á sama hátt skiljum við Guð aðeins á takmarkaðan hátt, enn sem komið er, rétt eins og við sæjum spegilmynd hans í lélegum spegli. En sú stund mun koma að við fáum að sjá hann augliti til auglitis, eins og hann er. Nú er þekking mín og skilningur í molum, en þá mun ég sjá allt skýrt og greinilega, á sama hátt og Guð sér mig nú og allar mínar hugsanir og þrár.
13 ဣဒါနီံ ပြတျယး ပြတျာၑာ ပြေမ စ တြီဏျေတာနိ တိၐ္ဌန္တိ တေၐာံ မဓျေ စ ပြေမ ၑြေၐ္ဌံ၊
Það sem nú skiptir máli er þetta þrennt: Trúin, vonin og kærleikurinn, og þeirra er kærleikurinn mestur.