< Psalmorum 7 >
1 psalmus David quem cantavit Domino pro verbis Chusi filii Iemini Domine Deus meus in te speravi salvum me fac ex omnibus persequentibus me et libera me
Ég treysti þér, Drottinn, Guð minn, að þú frelsir mig frá þeim sem ofsækja mig.
2 nequando rapiat ut leo animam meam dum non est qui redimat neque qui salvum faciat
Þeir vilja ráðast á mig úr launsátri eins og ljón, særa mig og draga burt hálfdauðan. Láttu það ekki takast!
3 Domine Deus meus si feci istud si est iniquitas in manibus meis
En Drottinn, ef ég hefði illt fyrir stafni
4 si reddidi retribuentibus mihi mala decidam merito ab inimicis meis inanis
– ef ég launaði gott með illu eða beitti nágranna mína órétti,
5 persequatur inimicus animam meam et conprehendat et conculcet in terra vitam meam et gloriam meam in pulverem deducat diapsalma
þá væri réttlátt að þú létir óvini mína eyða mér, fella mig og fótum troða.
6 exsurge Domine in ira tua exaltare in finibus inimicorum meorum et exsurge Domine Deus meus in praecepto quod mandasti
En Drottinn! Rís þú upp í reiði gegn ofstopa óvina minna. Vakna þú Drottinn! Láttu mig ná rétti mínum!
7 et synagoga populorum circumdabit te et propter hanc in altum regredere
Safnaðu saman öllum þjóðum. Taktu þér sæti hátt uppi yfir þeim og dæmdu syndir þeirra.
8 Dominus iudicat populos iudica me Domine secundum iustitiam meam et secundum innocentiam meam super me
En mig, Drottinn, lýstu mig réttlátan svo allir heyri, auglýstu réttlæti mitt og ráðvendni.
9 consummetur nequitia peccatorum et diriges iustum et scrutans corda et renes Deus
Stöðvaðu alla illsku, Drottinn, og blessa þá sem í einlægni tilbiðja þig. Því að þú, réttláti Guð, kannar hugarfylgsni mannanna og rannsakar viðhorf þeirra og tilgang.
10 iustum adiutorium meum a Deo qui salvos facit rectos corde
Guð er skjöldur minn. Hann mun vernda mig. Hann frelsar þá sem hjartahreinir eru.
11 Deus iudex iustus et fortis et patiens numquid irascitur per singulos dies
Guð er fullkomlega réttlátur dómari og dag hvern gremst honum illska hinna vondu.
12 nisi conversi fueritis gladium suum vibrabit arcum suum tetendit et paravit illum
Ef þeir iðrast ekki mun hann bregða sverði og eyða þeim. Hann hefur spennt boga sinn
13 et in eo paravit vasa mortis sagittas suas ardentibus effecit
og lagt eldlegar örvar á streng, – banvænar örvar.
14 ecce parturiit iniustitiam et; concepit dolorem et peperit iniquitatem
Hinn illi bruggar launráð og íhugar vélabrögð sín. Hann lætur til skarar skríða með lygum og svikum.
15 lacum aperuit et effodit eum et incidet in foveam quam fecit
Hann falli á eigin bragði.
16 convertetur dolor eius in caput eius et in verticem ipsius iniquitas eius descendet
Ofbeldið sem hann ætlaði öðrum, verði honum sjálfum að fjörtjóni.
17 confitebor Domino secundum iustitiam eius et psallam nomini Domini altissimi
Ég lofa og vegsama Drottinn, því hann er góður. Ég vil lofsyngja nafni Drottins, honum sem er öllum drottnum æðri.