< 고린도전서 6 >
1 너희 중에 누가 다른 이로 더불어 일이 있는데 구태여 불의한 자들 앞에서 송사하고 성도 앞에서 하지 아니하느냐
Hvernig stendur á því að ef þið eigið eitthvað sökótt við annan safnaðarbróður, þá kærið þið og látið heiðinn dómstól dæma í málinu, í stað þess að láta aðra kristna menn skera úr um það hvor hafi á réttu að standa.
2 성도가 세상을 판단할 것을 너희가 알지 못하느냐 세상도 너희에게 판단을 받겠거든 지극히 작은 일 판단하기를 감당치 못하겠느냐
Vitið þið ekki, að við kristnir menn eigum að dæma heiminn og stjórna honum? Hvers vegna getið þið þá ekki gert út um svona smámál ykkar í milli?
3 우리가 천사를 판단할 것을 너희가 알지 못하느냐 그러하거든 하물며 세상 일이랴
Vitið þið ekki að við kristnir menn munum dæma og launa sjálfum englum himinsins? Ykkur ætti því að vera í lófa lagið að leysa vandamál ykkar hér á jörðu.
4 그런즉 너희가 세상 사건이 있을 때에 교회에서 경히 여김을 받는 자들을 세우느냐
Hvers vegna leitið þið þá til utanaðkomandi dómara, sem eru ekki einu sinni kristnir?
5 내가 너희를 부끄럽게 하려 하여 이 말을 하노니 너희 가운데 그 형제간 일을 판단할 만한 지혜있는 자가 이같이 하나도 없느냐
Ég segi þetta svo að þið blygðist ykkar. Er enginn í kirkjunni nógu vitur til að setja niður þessar deilur?
6 형제가 형제로 더불어 송사할 뿐더러 믿지 아니하는 자들 앞에서 하느냐
Þið eruð kristin en ákærið samt hvert annað og það í áheyrn trúleysingja!
7 너희가 피차 송사 함으로 너희 가운데 이미 완연한 허물이 있나니 차라리 불의를 당하는 것이 낫지 아니하며 차라리 속는 것이 낫지 아니하냐
Slík málaferli eru flest algjör ósigur ykkar sem kristins fólks. Hvers vegna þolið þið ekki heldur órétt? Látið heldur hafa af ykkur, það væri Drottni þóknanlegra.
8 너희는 불의를 행하고 속이는구나 저는 너희 형제로다
En þess í stað hafið þið rangt við og níðist jafnvel á systkinum ykkar í trúnni.
9 불의한 자가 하나님의 나라를 유업으로 받지 못할 줄을 알지 못하느냐 미혹을 받지 말라 음란하는 자나 우상 숭배하는 자나 간음 하는 자나 탐색하는 자나 남색하는 자나
Vitið þið ekki, að þeir sem svona hegða sér eiga engan hlut í guðsríki? Látið ekki blekkjast! Þeir sem lifa siðlausu lífi – hjáguðadýrkendur, hórkarlar, kynvillingar – munu engan hlut eiga í ríki Guðs, ekki heldur þjófar eða ágjarnir, drykkjumenn, rógberar eða ræningjar.
10 도적이나 탐람하는 자나 술취하는 자나 후욕하는 자나 토색하는 자들은 하나님의 나라를 유업으로 받지 못하리라
11 너희 중에 이와 같은 자들이 있더니 주 예수 그리스도의 이름과 우리 하나님의 성령 안에서 씻음과 거룩함과 의롭다 하심을 얻었느니라
Þetta voruð þið sumir hverjir eitt sinn, en nú eru syndir ykkar burt þvegnar og þið eruð helgaðir og teknir frá handa Guði. Hann hefur sýknað og viðurkennt ykkur sem sín börn, vegna þess sem Drottinn Jesús Kristur og andi Guðs hafa gert fyrir ykkur.
12 모든 것이 내게 가하나 다 유익한 것이 아니요 모든 것이 내게 가하나 내가 아무에게든지 제재를 받지 아니하리라
Ég get gert hvað sem ég vil, hafi Kristur ekki bannað það, en sumt er mér ekki til góðs. Þótt það sé leyfilegt, þá mun ég standa gegn því, ef ég held að það geti náð þeim tökum á mér að ég ætti erfitt með að hætta því.
13 식물은 배를 위하고 배는 식물을 위하나 하나님이 이것 저것 다 폐하시리라 몸은 음란을 위하지 않고 오직 주를 위하며 주는 몸을 위하시느니라
Takið til dæmis matinn. Guð hefur gefið okkur matarlyst og maga til að melta. En það þýðir ekki að við eigum að borða meira en við þurfum. Fæðan er ekki mikilvæg, því að Guð mun á sínum tíma gera að engu bæði mat og maga. Saurlífi á aldrei rétt á sér. Líkamar okkar voru ekki skapaðir til þess, heldur handa Drottni, og Drottinn vill sjálfur helga líkama okkar.
14 하나님이 주를 다시 살리셨고 또한 그의 권능으로 우리를 다시 살리시리라
Guð mun sjálfur reisa líkama okkar frá dauðum, með mætti sínum á sama hátt og hann reisti Drottin Jesú Krist.
15 너희 몸이 그리스도의 지체인 줄을 알지 못하느냐 내가 그리스도의 지체를 가지고 창기의 지체를 만들겠느냐 결코 그럴 수 없느니라
Vitið þið ekki að líkamar ykkar eru limir Krists – hlutar af honum? Ætti ég þá að taka hluta Krists og sameina hann skækju? Nei.
16 창기와 합하는 자는 저와 한 몸인 줄을 알지 못하느냐 일렀으되 둘이 한 육체가 된다 하셨나니
Vitið þið ekki að hafi maður mök við vændiskonu, verður hann hluti af henni og hún hluti af honum? Guð segir í orði sínu að í augum hans verði þau eitt hold.
En ef þú gefst Drottni, þá ert þú og Kristur samtengdir sem einn maður.
18 음행을 피하라 사람이 범하는 죄마다 몸 밖에 있거니와 음행하는 자는 자기 몸에게 죄를 범하느니라
Haldið ykkur því frá öllu kynferðislegu lauslæti. Engin synd hefur jafnmikil áhrif á líkamann og sú. Ef þið syndgið á þennan hátt, þá er það gegn ykkar eigin líkama.
19 너희 몸은 너희가 하나님께로부터 받은 바 너희 가운데 계신 성령의 전인 줄을 알지 못하느냐 너희는 너희의 것이 아니라
Hafið þið ekki skilið að líkami ykkar er híbýli heilags anda, sem Guð gaf ykkur og lifir í ykkur? Þið eigið ekki líkama ykkar!
20 값으로 산 것이 되었으니 그런즉 너희 몸으로 하나님께 영광을 돌리라
Guð hefur keypt ykkur dýru verði. Vegsamið því Guð með líkama ykkar.