< Opinberun Jóhannesar 5 >
1 Sá sem í hásætinu sat, hélt á uppvafinni bók í hægri hendi og var hún skrifuð bæði að utan og innan, auk þess var hún lokuð með sjö innsiglum.
I saw, in the right hand of him who sat on the throne, a book written inside and outside, sealed shut with seven seals.
2 Sterklegur engill hrópaði nú hárri röddu og sagði: „Hver er þess verður að brjóta innsigli bókarinnar og opna hana?“
I saw a mighty angel proclaiming with a loud voice, “Who is worthy to open the book, and to break its seals?”
3 En enginn slíkur fannst, hvorki á himni né jörðu né heldur meðal hinna dauðu, sem leyft var að opna hana og lesa.
No one in heaven above, or on the earth, or under the earth, was able to open the book or to look in it.
4 Þá grét ég af vonbrigðum, vegna þess að hvergi nokkurs staðar fannst neinn, sem var verður þess að opna hana og segja okkur hvað í henni stæði.
Then I wept much, because no one was found worthy to open the book or to look in it.
5 Þá sagði einn af öldungunum tuttugu og fjórum við mig: „Hættu að gráta og taktu eftir! Ljónið af Júda ætt, afkomandi Davíðs, hefur sigrað og sannað að hann er verðugur þess að brjóta þessi sjö innsigli og opna bókina.“
One of the elders said to me, “Don’t weep. Behold, the Lion who is of the tribe of Judah, the Root of David, has overcome: he who opens the book and its seven seals.”
6 Þá leit ég upp og sá lamb sem stóð frammi fyrir öldungunum tuttugu og fjórum, frammi fyrir hásætinu og verunum fjórum og ég sá að á lambinu voru sár, sem eitt sinn höfðu leitt það til dauða. Það hafði sjö horn og sjö augu, táknuðu þau hinn sjöfalda anda Guðs, sem sendur er út um allan heiminn.
I saw in the middle of the throne and of the four living creatures, and in the middle of the elders, a Lamb standing, as though it had been slain, having seven horns and seven eyes, which are the seven Spirits of God, sent out into all the earth.
7 Lambið gekk nú fram og tók við bókinni úr hægri hendi þess sem sat í hásætinu,
Then he came, and he took it out of the right hand of him who sat on the throne.
8 og þá krupu öldungarnir tuttugu og fjórir frammi fyrir því. Hver öldungur um sig hafði hörpu og gullskál fulla af reykelsi – en það eru bænir þeirra sem trúa á Guð.
Now when he had taken the book, the four living creatures and the twenty-four elders fell down before the Lamb, each one having a harp, and golden bowls full of incense, which are the prayers of the holy ones.
9 Og þeir sungu nýjan söng með þessum orðum: „Þú ert verðugt að taka við bókinni, brjóta innsigli hennar og opna hana, því að þér var slátrað og með blóði þínu keyptir þú fólk af öllum þjóðum, Guði til eignar.
They sang a new song, saying, “You are worthy to take the book and to open its seals, for you were killed, and bought us for God with your blood out of every tribe, language, people, and nation,
10 Allt þetta fólk hefur þú leitt inn í ríki Guðs og gert það að prestum hans og þeir munu ráða ríkjum á jörðinni.“
and made us kings and priests to our God; and we will reign on the earth.”
11 Þá heyrði ég í milljónum engla, sem voru umhverfis hásætið, verurnar fjórar og öldungana,
I looked, and I heard something like a voice of many angels around the throne, the living creatures, and the elders. The number of them was ten thousands of ten thousands, and thousands of thousands,
12 og þeir sungu af miklum þrótti: „Lambið er verðugt! Lambið, sem slátrað var, er verðugt að fá máttinn, ríkdóminn, viskuna, kraftinn, heiðurinn, dýrðina og lofgjörðina.“
saying with a loud voice, “Worthy is the Lamb who has been killed to receive the power, wealth, wisdom, strength, honor, glory, and blessing!”
13 Þá heyrði ég alla, sem eru á himni og jörðu og einnig hina dauðu sem eru í jörðinni og hafinu, hrópa og segja: „Blessunin, heiðurinn, dýrðin og mátturinn tilheyra honum, sem í hásætinu situr, og lambinu um alla eilífð.“ (aiōn )
I heard every created thing which is in heaven, on the earth, under the earth, on the sea, and everything in them, saying, “To him who sits on the throne and to the Lamb be the blessing, the honor, the glory, and the dominion, forever and ever! Amen!” (aiōn )
14 Verurnar fjórar sögðu: „Amen!“Og öldungarnir tuttugu og fjórir féllu fram og tilbáðu.
The four living creatures said, “Amen!” Then the elders fell down and worshiped.