< Opinberun Jóhannesar 4 >
1 Síðan leit ég upp og sá opnar dyr á himninum. Rödd sem ég hafði heyrt áður, sú sem líktist voldugum lúðurhljómi, talaði til mín og sagði: „Komdu hingað upp og ég mun sýna þér hvað framtíðin ber í skauti sér!“
2 Á sömu stundu var ég staddur í andanum á himnum – hvílík dýrð! Ég sá hásæti og einhvern, sem sat í hásætinu.
3 Mikilli geisladýrð stafaði frá honum, eins og frá glitrandi demanti eða skínandi rúbín, og regnbogi, sem glóði eins og smaragður, var yfir hásæti hans.
4 Umhverfis hásætið voru önnur tuttugu og fjögur minni hásæti og í þeim sátu tuttugu og fjórir öldungar, sem allir voru hvítklæddir og með gullkórónur á höfði.
5 Þrumur og eldingar gengu stöðugt út frá hásætinu og í þrumunum heyrðust raddir. Beint fyrir framan hásætið voru sjö logandi lampar og táknuðu þeir hinn sjöfalda anda Guðs.
6 Þar fyrir framan var glerhaf, kristaltært. Hásætið hafði fjórar hliðar og við hverja hlið stóð lifandi vera, alsett augum.
7 Fyrsta veran var eins og ljón, önnur líktist nauti, sú þriðja hafði mannsandlit og fjórða var eins og örn.
8 Hver vera um sig hafði sex vængi og var miðhluti vængjanna þakinn augum. Verurnar endurtóku þessi orð hvíldarlaust, dag og nótt: „Heilagur, heilagur, heilagur er Drottinn Guð hinn alvaldi – sá sem var og er og kemur.“
9 Verurnar gjalda honum, sem í hásætinu situr, dýrð, heiður og þökk, honum, sem lifir um aldir alda, (aiōn )
10 og þá falla öldungarnir tuttugu og fjórir fram fyrir auglit hans og tilbiðja hann. Þeir varpa kórónum sínum fram fyrir hásætið og syngja: (aiōn )
11 „Drottinn, þú ert verður þess að hljóta dýrð, heiður og mátt, því samkvæmt vilja þínum hefur þú skapað allt sem er.“