< Opinberun Jóhannesar 3 >
1 Þetta skaltu skrifa leiðtoga safnaðarins í Sardes: Þetta segir sá sem hefur hinn sjöfalda anda Guðs og stjörnurnar sjö. Ég veit að fólk segir að þú sért lifandi og starfandi söfnuður, en þú ert dauður!
И Ангелу Сардийской церкви напиши: так говорит Имеющий семь духов Божиих и семь звезд: знаю твои дела; ты носишь имя, будто жив, но ты мертв.
2 Vaknaðu! Hleyptu lífi í það litla sem eftir er – því að jafnvel það er að deyja. Verk þín eru lítils virði í augum Guðs.
Бодрствуй и утверждай прочее близкое к смерти; ибо Я не нахожу, чтобы дела твои были совершенны пред Богом Моим.
3 Komdu til mín og snúðu þér aftur að því sem þú heyrðir og trúðir í upphafi og haltu fast við það. Ef þú gerir það ekki, mun ég koma til þín áður en þú veist af – óvænt – eins og þjófurinn og refsa þér.
Вспомни, что ты принял и слышал, и храни и покайся. Если же не будешь бодрствовать, то Я найду на тебя, как тать, и ты не узнаешь, в который час найду на тебя.
4 Þarna í Sardes eru samt fáeinir sem ekki hafa óhreinkað sig á heiminum, og þeir munu ganga við hlið mér í hvítum klæðum, því að það eiga þeir sannarlega skilið.
Впрочем, у тебя в Сардисе есть несколько человек, которые не осквернили одежд своих и будут ходить со Мною в белых одеждах, ибо они достойны.
5 Sá er sigrar, mun fá hvít klæði og nafnið hans mun ég ekki fjarlægja úr lífsbókinni. Ég mun viðurkenna hann frammi fyrir föður mínum og englum hans.
Побеждающий облечется в белые одежды; и не изглажу имени его из книги жизни, и исповедаю имя его пред Отцем Моим и пред Ангелами Его.
6 Þið sem heyrið, hlustið á það sem andi Guðs segir söfnuðunum.
Имеющий ухо да слышит, что Дух говорит церквам.
7 Eftirfarandi bréf skaltu senda leiðtoga safnaðarins í Fíladelfíu: Þennan boðskap færð þú frá honum sem er heilagur og sannur. Ég hef lykil Davíðs og get opnað, svo að enginn fái læst og læst get ég, svo enginn opni.
И Ангелу Филадельфийской церкви напиши: так говорит Святый, Истинный, имеющий ключ Давидов, Который отворяет - и никто не затворит, затворяет - и никто не отворит:
8 Ég þekki þig – að þú hefur lítinn mátt, en hefur þó reynt að hlýðnast og ekki afneitað nafni mínu. Þess vegna hef ég opnað fyrir þér dyr sem enginn getur lokað.
знаю твои дела; вот, Я отворил перед тобою дверь, и никто не может затворить ее; ты не много имеешь силы, и сохранил слово Мое, и не отрекся имени Моего.
9 Taktu nú eftir: Ég mun láta þá, sem vinna fyrir. Satan – þeir segjast reyndar tilheyra mér, en það er lygi því það gera þeir ekki – falla að fótum þér og viðurkenna að þú ert sá sem ég elska.
Вот, Я сделаю, что из сатанинского сборища, из тех, которые говорят о себе, что они Иудеи, но не суть таковы, а лгут, - вот, Я сделаю то, что они придут и поклонятся пред ногами твоими и познают, что Я возлюбил тебя.
10 Þið hafið hlýtt mér, þrátt fyrir ofsóknir, og því mun ég hlífa ykkur við þeirri miklu þrengingu sem koma mun yfir heiminn – en þá munu mennirnir verða reyndir.
И как ты сохранил слово терпения Моего, то и Я сохраню тебя от годины искушения, которая придет на всю вселенную, чтобы испытать живущих на земле.
11 Taktu eftir! Ég kem skjótt! Haltu fast því sem þú hefur, svo að enginn taki kórónu þína.
Се, гряду скоро; держи, что имеешь, дабы кто не восхитил венца твоего.
12 Þann sem sigrar mun ég gera að máttarstólpa í musteri Guðs míns. Þar mun hann standa að eilífu og ekki haggast og á hann mun ég rita nafn Guðs míns. Hann mun tilheyra borg Guðs, hinni nýju Jerúsalem, sem kemur niður af himni frá Guði, og á hann mun verða skráð mitt nýja nafn.
Побеждающего сделаю столпом в храме Бога Моего, и он уже не выйдет вон; и напишу на нем имя Бога Моего и имя града Бога Моего, нового Иерусалима, нисходящего с неба от Бога Моего, и имя Мое новое.
13 Þið sem heyrið, hlustið á það sem andi Guðs segir söfnuðunum.
Имеющий ухо да слышит, что Дух говорит церквам.
14 Þetta skaltu skrifa leiðtoga safnaðarins í Laódíkeu: Þetta segir sá sem stöðugur stendur, votturinn trúi og sanni, upphafið að sköpun Guðs:
И Ангелу Лаодикийской церкви напиши: так говорит Аминь, свидетель верный и истинный, начало создания Божия:
15 Ég þekki þig – þú ert hvorki heitur né kaldur. Heldur vildi ég að þú værir annað hvort,
знаю твои дела; ты ни холоден, ни горяч; о, если бы ты был холоден или горяч!
16 en fyrst þú ert aðeins volgur, þá mun ég skyrpa þér út úr munni mínum!
Но как ты тепл, а не горяч и не холоден, то извергну тебя из уст Моих.
17 Þú segir: „Ég er ríkur. Ég á allt sem ég þarf, mig skortir ekkert.“Þú veist ekki að þú hefur liðið andlegt skipbrot og að þú ert fátækur vesalingur, bæði blindur og nakinn.
Ибо ты говоришь: “Я богат, разбогател и ни в чем не имею нужды”; а не знаешь, что ты несчастен, и жалок, и нищ, и слеп, и наг.
18 En ég ráðlegg þér að kaupa hreint gull af mér, gull sem er hreinsað í eldi. Það er eina leiðin fyrir þig til að eignast sönn auðæfi. Ég ráðlegg þér einnig að kaupa hjá mér hvít klæði, hrein og flekklaus, svo að þú verðir þér ekki til skammar með nekt þinni. Þú ættir líka að fá hjá mér smyrsl til að lækna í þér augun, svo að þú fáir aftur sjónina.
Советую тебе купить у Меня золото, огнем очищенное, чтобы тебе обогатиться, и белую одежду, чтобы одеться и чтобы не видна была срамота наготы твоей, и глазною мазью помажь глаза твои, чтобы видеть.
19 Ég aga þá sem ég elska og refsa þeim – einnig þér. Vertu því skynsamur og gjörðu iðrun.
Кого Я люблю, тех обличаю и наказываю. Итак будь ревностен и покайся.
20 Taktu eftir! Ég stend fyrir utan og ber að dyrum. Ef einhver heyrir til mín og opnar, mun ég fara inn til hans og setjast til borðs með honum og hann með mér.
Се, стою у двери и стучу: если кто услышит голос Мой и отворит дверь, войду к нему и буду вечерять с ним, и он со Мною.
21 Þann sem sigrar, mun ég láta sitja mér við hlið í hásæti mínu, á sama hátt og ég sigraði og settist við hlið föður míns í hásæti hans.
Побеждающему дам сесть со Мною на престоле Моем, как и Я победил и сел с Отцем Моим на престоле Его.
22 Þeir sem heyra, hlusti á það sem andi Guðs segir söfnuðunum.
Имеющий ухо да слышит, что Дух говорит церквам.