< Opinberun Jóhannesar 2 >
1 Skrifaðu bréf til leiðtoga safnaðarins í Efesus og segðu honum þetta: Ég skrifa þér orðsendingu frá honum sem gengur á milli safnaðanna sjö og heldur leiðtogum þeirra uppi með hægri hendi sinni. Hann segir við þig:
"To the minister of the Church in Ephesus write as follows: "'This is what He who holds the seven stars in the grasp of His right hand says--He who walks to and fro among the seven lampstands of gold.
2 Ég þekki allt hið góða sem þú hefur gert. Ég hef fylgst með erfiði þínu og þekki þolinmæði þína. Ég veit að þú sættir þig ekki við vonda menn í söfnuðinum og hefur rannsakað fullyrðingar þeirra sem telja sig vera postula, en eru það ekki. Þú hefur komist að því að þeir eru lygarar.
I know your doings and your toil and patient suffering. And I know that you cannot tolerate wicked men, but have put to the test those who say that they themselves are Apostles but are not, and you have found them to be liars.
3 Þú hefur þolað illt mín vegna, en þó ekki gefist upp.
And you endure patiently and have borne burdens for My sake and have never grown weary.
4 En eitt er að: Kærleikur þinn til mín er ekki sá sami og áður.
Yet I have this against you--that you no longer love Me as you did at first.
5 Manstu hvernig þú elskaðir mig í upphafi? Sérðu breytinguna? Snúðu þér aftur til mín og farðu eins að og í byrjun, annars kem ég og fjarlægi lampann þinn.
Be mindful, therefore, of the height from which you have fallen. Repent at once, and act as you did at first, or else I will surely come and remove your lampstand out of its place--unless you repent.
6 En þú hatar verk þessara ósvífnu Nikólaíta, rétt eins og ég, og það fellur mér vel.
Yet this you have in your favor: you hate the doings of the Nicolaitans, which I also hate.
7 Taktu eftir því sem andinn segir nú við söfnuðina: „Þeim sem sigrar, mun ég gefa ávöxt af lífsins tré, sem vex í paradís Guðs.“
"'Let all who have ears give heed to what the Spirit is saying to the Churches. To him who overcomes I will give the privilege of eating the fruit of the Tree of Life, which is in the Paradise of God.'
8 Leiðtoga safnaðarins í Smýrnu skaltu skrifa þetta: Þetta er boðskapur frá honum sem er hinn fyrsti og hinn síðasti, honum, sem var dauður, en lifnaði við.
"To the minister of the Church at Smyrna write as follows: "'This is what the First and the Last says--He who died and has returned to life.
9 Ég veit hversu mjög þú þarft að líða vegna Drottins og ég þekki fátækt þína en mundu að þú átt himnesk auðæfi! Ég veit að þeir, sem segjast vera Gyðingar og Guðs börn, tala illa um þig, en þeir eru ekki Guðs börn, heldur fulltrúar Satans.
Your sufferings I know, and your poverty--but you are rich--and the evil name given you by those who say that they themselves are Jews, and are not, but are Satan's synagogue.
10 Innan skamms mun djöfullinn varpa sumum ykkar í fangelsi til þess að reyna ykkur, en vertu þó ekki hræddur vegna þjáninganna sem bíða þín. Þið munuð verða ofsótt í tíu daga. En gefist ekki upp, jafnvel þótt þið þurfið að horfast í augu við dauðann. Vertu trúr allt til dauða og þá mun ég gefa þér kórónu lífsins – dýrlega framtíð, sem aldrei tekur enda.
Dismiss your fears concerning all that you are about to suffer. I tell you that the Devil is about to throw some of you into prison that you may be put to the test, and for ten days you will have to endure persecution. Be faithful to the End, even if you have to die, and then I will give you the victor's Wreath of Life.
11 Takið eftir því sem andinn segir nú við söfnuðina: „Þeim sem sigrar mun hinn annar dauði ekki granda.“
"'Let all who have ears give heed to what the Spirit is saying to the Churches. He who overcomes shall be in no way hurt by the Second Death.'
12 Þetta skaltu skrifa leiðtoga safnaðarins í Pergamos: Þetta bréf er frá honum, sem berst með hinu beitta og tvíeggjaða sverði.
"To the minister of the Church at Pergamum write as follows: "'This is what He who has the sharp, two-edged sword says. I know where you dwell.
13 Ég veit vel að í borginni þar sem þú býrð, er hásæti Satans og að hann er tilbeðinn þar af miklu kappi. En samt hefur þú verið mér trúr og ekki viljað afneita mér, jafnvel þótt áhangendur Satans tækju Antípas, minn trúa vott, af lífi mitt á meðal ykkar.
Satan's throne is there; and yet you are true to Me, and did not deny your faith in Me, even in the days of Antipas My witness and faithful friend, who was put to death among you, in the place where Satan dwells.
14 Samt finn ég eitt athugavert hjá þér. Þú umberð menn í ykkar hópi, sem feta í fótspor Bíleams, sem sagði Balak hvernig ætti að tæla Ísraelsmenn – fá þá til að drýgja hór – og hvetja þá til að taka þátt í heiðnum hátíðum til heiðurs skurðgoðunum.
Yet I have a few things against you, because you have with you some that cling to the teaching of Balaam, who taught Balak to put a stumbling-block in the way of the descendants of Israel--to eat what had been sacrificed to idols, and commit fornication.
15 Slíkir menn, fylgjendur Bíleams, finnast á meðal ykkar!
So even you have some that cling in the same way to the teaching of the Nicolaitans.
16 Afstaða þín til þessara manna verður að breytast, annars kem ég fyrirvaralaust og berst við þá með sverði munns míns.
Repent, at once; or else I will come to you quickly, and will make war upon them with the sword which is in My mouth.
17 Allir, sem heyrn hafa, taki eftir því sem andinn segir söfnuðunum: „Þeir sem sigra, fá að eta hið hulda manna – hina leyndu fæðu himnanna. Ég mun gefa hverjum um sig hvítan stein, sem á verður grafið nýtt nafn, sem viðtakandinn einn þekkir.“
"'Let all who have ears give heed to what the Spirit is saying to the Churches. He who overcomes--to him I will give some of the hidden Manna, and a white stone; and--written upon the stone and known only to him who receives it-- a new name.'
18 Þetta skaltu skrifa leiðtoga safnaðarins í Þýatíru: Þessi boðskapur er frá syni Guðs. Augu hans loga sem eldur og fætur hans eru eins og fægður eir.
"To the minister of the Church at Thyateira write as follows: "'This is what the Son of God says--He who has eyes like a flame of fire, and feet resembling silver-bronze.
19 Ég þekki þín góðu verk: Umhyggju þína fyrir fátæklingum – allar gjafirnar og þjónustuna, sem þú hefur veitt þeim. Ég veit líka um kærleika þinn, trú þína og þolinmæði og ég sé að þér fer stöðugt fram.
I know your doings, your love, your faith, your service, and your patient endurance; and that of late you have toiled harder than you did at first.
20 Eitt finnst mér samt aðfinnsluvert hjá þér: Þú leyfir Jessabel, konunni sem telur sig hafa spádómsgáfu, að segja þjónum mínum að siðleysi sé ekki alvarlegt mál. Hún hvetur þá til að drýgja hór og borða kjöt sem fórnað hefur verið skurðgoðunum.
Yet I have this against you, that you tolerate the woman Jezebel, who calls herself a prophetess and by her teaching leads astray My servants, so that they commit fornication and eat what has been sacrificed to idols.
21 Ég gaf henni frest til að skipta um skoðun og taka nýja stefnu, en hún vildi það ekki.
I have given her time to repent, but she is determined not to repent of her fornication.
22 Taktu nú eftir því sem ég segi: Ef hún og þeir, sem fylgt hafa siðleysi hennar, iðrast ekki synda sinna, mun ég láta þau öll leggjast á sóttarsæng
I tell you that I am about to cast her upon a bed of sickness, and I will severely afflict those who commit adultery with her, unless they repent of conduct such as hers.
23 og börn hennar mun ég deyða. Með þessu munu söfnuðirnir skilja, að ég er sá sem rannsaka leyndustu hugsanir mannsins og geld hverjum um sig eins og hann á skilið.
Her children too shall surely die; and all the Churches shall come to know that I am He who searches into men's inmost thoughts; and to each of you I will give a requital which shall be in accordance with what your conduct has been.
24 Þið í Þýatíru, sem ekki hafið fylgt þessari fölsku kenningu (sem þau kalla „Hinn djúpa sannleika“– og sem í raun og veru er runnin undan rifjum Satans), ég krefst einskis frekar af ykkur. Haldið aðeins fast við það sem þið hafið, þangað til ég kem.
But to you, the rest of you in Thyateira, all who do not hold this teaching and are not the people who have learnt the "deep things," as they call them (the deep things of Satan!) --to you I say that I lay no other burden on you.
Only that which you already possess, cling to until I come.
26 Þeim sem sigra – þeim sem gera minn vilja allt til enda – mun ég gefa vald yfir þjóðunum.
"'And to him who overcomes and obeys My commands to the very end, I will give authority over the nations of the earth.
27 Þið munuð stjórna þeim með járnsprota á sama hátt og ég – slíkt vald gaf faðir minn mér – og þær munu brotna eins og leirkrukka, sem fer í þúsund mola.
And he shall be their shepherd, ruling them with a rod of iron, just as earthenware jars are broken to pieces; and his power over them shall be like that which I Myself have received from My Father;
28 En ykkur færi ég morgunstjörnuna að gjöf!
and I will give him the Morning Star.
29 Þið sem heyrið, hlustið á það sem Guðs andi segir söfnuðunum.
Let all who have ears give heed to what the Spirit is saying to the Churches.'