< Opinberun Jóhannesar 19 >
1 Eftir þetta heyrði ég mikinn fjölda á himnum hrópa og segja: „Hallelúja! Dýrð sé Guði! Hjálpin kemur frá Guði. Hans er mátturinn og dýrðin,
2 því að dómar hans eru réttlátir og sannir. Hann refsaði skækjunni miklu, sem spillti jörðinni með syndum sínum, og hann hefur hefnt fyrir morðin á þjónum sínum.“
3 Aftur og aftur var endurtekið: „Dýrð sé Guði! Reykurinn frá rústum hennar mun stíga upp um alla eilífð!“ (aiōn )
4 Öldungarnir tuttugu og fjórir og verurnar fjórar féllu fram og tilbáðu Guð, sem sat í hásætinu, og sögðu: „Amen! Hallelúja! Dýrð sé Guði!“
5 Þá sagði rödd, sem kom frá hásætinu: „Lofið Guð allir þjónar hans, stórir og smáir, allir þið, sem óttist hann.“
6 Síðan heyrði ég undursamlegan hljóm, eins og söng frá miklum mannfjölda, líkastan brimgný við klettótta strönd eða þrumugný: „Lofið Drottin! Nú hefur Drottinn Guð hinn almáttki tekið völdin.
7 Gleðjumst, fögnum og tignum hann, því að nú er brúðkaupsveisla lambsins að hefjast og brúðurin hefur búið sig.
8 Hún á rétt á að klæðast því hreinasta, hvítasta og dýrasta líni sem til er.“Dýra línið táknar góðverkin sem börn Guðs hafa unnið.
9 Engillinn bað mig nú að skrifa eftirfarandi setningu: „Sælir eru þeir, sem boðnir eru í brúðkaupsveislu lambsins.“Síðan sagði hann: „Þetta eru orð Guðs sjálfs.“
10 Þá féll ég til fóta honum til þess að tilbiðja hann, en hann sagði: „Nei! Gerðu þetta ekki! Ég er þjónn Guðs, rétt eins og þú og hinir kristnu meðbræður þínir sem vitna um trú sína á Krist. Tilbið Guð einan, því að tilgangur spádómanna og alls þess, sem ég hef sýnt þér, er sá að benda á Jesú.“
11 Síðan sá ég himininn opinn og hvítan hest standa þar. Sá sem á hestinum sat heitir „trúr og sannur“og hann berst og refsar með réttvísi.
12 Augu hans eru sem eldslogar og á höfðinu ber hann margar kórónur. Nafn er á enni hans, en hann einn veit merkingu þess.
13 Föt hans eru blóði drifin og hann er nefndur „orð Guðs“.
14 Hersveitir himnanna fylgdu honum á hvítum hestum, en þær voru klæddar dýru líni, hvítu og hreinu.
15 Í munni sínum hefur hann beitt sverð til þess að höggva þjóðirnar með og hann stjórnar þeim með járnaga. Hann treður og pressar vínþrúgurnar í þró, sem kallast „heiftarreiði Guðs hins útvalda“.
16 Á skikkju hans og mitti er skrifað nafn: KONUNGUR KONUNGA OG DROTTINN DROTTNA.
17 Þá sá ég engil sem stóð á sólinni. Hann kallaði hárri röddu til fuglanna: „Komið! Komið hingað til kvöldmáltíðar hins mikla Guðs!
18 Komið og etið hold konunga, kappa og háttsettra hershöfðingja, hesta og knapa þeirra og allra manna, bæði hárra og lágra, frjálsra og ánauðugra.“
19 Eftir það sá ég að dýrið, hið illa, safnaði saman valdamönnum heimsins og herjum þeirra til stríðs gegn honum, sem á hestinum sat, og hersveitum hans.
20 Og dýrið var handtekið ásamt falsspámanninum, þeim sem gat gert mikil kraftaverk, ef dýrið var viðstatt – kraftaverk sem blekktu þá sem höfðu látið setja á sig merki dýrsins og tilbáðu líkneski þess. Þeim báðum – dýrinu og falsspámanninum – var fleygt lifandi í eldsdíkið, sem kraumar af logandi brennisteini. (Limnē Pyr )
21 Herir þeirra voru stráfelldir með beitta sverðinu sem gekk út af munni þess, sem sat á hvíta hestinum, og fuglar himinsins átu sig sadda af hræjum þeirra.