< Sálmarnir 87 >
1 Hátt á hinu heilaga fjalli, stendur Jerúsalem, borg Guðs –
2 borgin sem hann elskar öllum borgum framar.
3 Vel er um þig talað, þú borg Guðs!
4 Ef ég í vinahópi minnist á Egyptaland eða Babýlon, Filisteu eða Týrus eða hið fjarlæga Bláland, þá hrósa þeir sér sem fæddir eru á þessum stöðum.
5 En mestur heiður fylgir Jerúsalem! Hún er móðirin og gott er að vera fæddur þar! Hann, hinn hæsti Guð, mun sjálfur vernda hana.
6 Þegar Drottinn lítur yfir þjóðskrárnar, mun hann merkja við þá sem hér eru fæddir!
7 Á hátíðum og tyllidögum munu menn syngja: „Jerúsalem, uppsprettur lífs míns eru í þér!“