< Sálmarnir 82 >

1 Guð stígur fram á himnum. Hann segir: „Réttur er settur!“Síðan birtir hann úrskurð sinn gegn dómurum á jörðu. 2 Hve lengi ætlið þið, dómarar, að sniðganga réttlætið? Hve lengi ætlið þið að draga taum hinna ranglátu? 3 Kveðið upp réttláta dóma í málum hinna fátæku og föðurlausu, bágstöddu og þjáðu, 4 Losið fátæklingana úr klóm hinna guðlausu! 5 Þið eruð sljóir og fáfróðir og blindir. Þess vegna riðar þjóðfélagið til falls. 6 Ég hef kallað ykkur „guði“og „syni hins hæsta“, 7 en í raun og veru eruð þið aðeins dauðlegir menn. Þið munuð falla rétt eins og aðrir af höfðingjunum. 8 Rís þú upp, ó Guð, og dæmdu jörðina. Þú hefur hana á valdi þínu og þjóðirnar eru í þinni hendi.

< Sálmarnir 82 >