< Sálmarnir 81 >
1 Guð er okkar styrkur! Syngið lofsöng og fagnið fyrir Guði Ísraels!
For the Chief Musician. On an instrument of Gath. By Asaph. Sing aloud to God, our strength! Make a joyful shout to the God of Jacob!
2 Syngið lofsöng og berjið bumbur, sláið strengi hörpunnar og látið gígjurnar hljóma!
Raise a song, and bring here the tambourine, the pleasant lyre with the harp.
3 Lúðurinn hvelli! Komið til fagnaðar þegar tunglið er fullt og fjölmennið á hátíðir Drottins.
Blow the trumpet at the New Moon, at the full moon, on our feast day.
4 Þetta er regla í Ísrael; boðorð frá Guði Jakobs.
For it is a statute for Israel, an ordinance of the God of Jacob.
5 Við höldum hátíð og minnumst sigurs Drottins á Egyptum þegar við vorum þrælar þar í landi. Ég heyrði ókunna rödd sem sagði:
He appointed it in Joseph for a covenant, when he went out over the land of Egypt, I heard a language that I didn’t know.
6 „Ég vil varpa af þér byrðinni, losa af þér ánauðarfjötrana.“
“I removed his shoulder from the burden. His hands were freed from the basket.
7 Og hann hélt áfram: „Þú hrópaðir í neyðinni og ég frelsaði þig. Ég svaraði þér úr þrumuskýi. Ég reyndi trú þína hjá Meríba, þar sem þorstinn var sár.
You called in trouble, and I delivered you. I answered you in the secret place of thunder. I tested you at the waters of Meribah.” (Selah)
8 Hlustaðu nú á mig, þjóð mín, þegar ég áminni þig. Ísrael, ó, að þú vildir hlýða mér.
“Hear, my people, and I will testify to you, Israel, if you would listen to me!
9 Engum öðrum guðum mátt þú þjóna og ekki tilbiðja neina útlenda guði.
There shall be no strange god in you, neither shall you worship any foreign god.
10 Því að það var ég, Drottinn, Drottinn Guð þinn sem leiddi þig út úr Egyptalandi. Prófa þú mig einu sinni enn. Opnaðu munninn og sjáðu hvort ég muni ekki fylla hann. Þú munt vissulega fá hjá mér hverja þá blessun sem þú þarft!
I am the LORD, your God, who brought you up out of the land of Egypt. Open your mouth wide, and I will fill it.
11 Nei, annars – þjóð mín vill ekki hlusta á mig. Ísrael kærir sig ekki um mig.
But my people didn’t listen to my voice. Israel desired none of me.
12 Þess vegna leyfi ég þeim að ráfa í blindni á vegum þrjósku sinnar og lifa eftir sínum eigin girndum.
So I let them go after the stubbornness of their hearts, that they might walk in their own counsels.
13 Aðeins ef þjóð mín vildi hlusta á mig! Ó, að Ísrael kysi nú að fylgja mér, ganga á mínum vegum!
Oh that my people would listen to me, that Israel would walk in my ways!
14 Þá mundi ég skjótlega brjóta óvini þeirra á bak aftur – reiða hnefann gegn kúgurum þeirra.
I would soon subdue their enemies, and turn my hand against their adversaries.
15 Þá mundu hatursmenn Drottins skríða fyrir honum og ógæfa þeirra vara við.
The haters of the LORD would cringe before him, and their punishment would last forever.
16 En ykkur mundi hann ala vel! Já, gefa ykkur hunang úr klettaskoru!“
But he would have also fed them with the finest of the wheat. I will satisfy you with honey out of the rock.”