< Sálmarnir 75 >
1 Þökk sé þér Drottinn! Máttarverk þín staðfesta umhyggju þína.
2 „Já, “svarar Drottinn, „og þegar stundin er komin mun ég refsa öllum illgjörðamönnum!
3 Þótt jörðin nötri og íbúar hennar skjálfi af ótta, eru undirstöður hennar traustar, enda verk handa minna!“
4 Ég sagði hinum hrokafullu að láta af drambi sínu og illmennunum að hætta sínum ögrandi augnagotum,
5 að láta af þrjósku og hroka.
6 Velgengni og völd getur enginn þakkað sér sjálfum,
7 allt eru það gjafir frá Guði. Hann upphefur einn, en niðurlægir annan.
8 Drottinn heldur á bikar fullum af freyðandi víni – það er dómurinn gegn illmennum heimsins. Þau skulu drekka hann í botn!
9 En ég mun vegsama Guð um aldur og ævi.
10 Styrkur hinna óguðlegu verður að engu, en réttlátir skulu ríkja með reisn.