< Sálmarnir 70 >

1 Bjargaðu mér, ó Guð! Flýttu þér Drottinn, að hjálpa mér! 2 Óvinir mínir sækjast eftir lífi mínu og njóta þess að kvelja mig. 3 Rektu þá burt með skömm! Stöðvaðu þá! Láttu þá ekki hæða mig og spotta. 4 Allir þeir sem leita Guðs skulu fagna og gleðjast. Þeir sem elska hjálpræði þitt hrópi: „Lofaður sé Guð!“ 5 En ég er í miklum vanda ó, Guð! Flýttu þér að hjálpa mér! Þú ert sá eini sem getur bjargað. Drottinn minn, láttu það ekki dragast!

< Sálmarnir 70 >