< Sálmarnir 70 >
1 Bjargaðu mér, ó Guð! Flýttu þér Drottinn, að hjálpa mér!
2 Óvinir mínir sækjast eftir lífi mínu og njóta þess að kvelja mig.
3 Rektu þá burt með skömm! Stöðvaðu þá! Láttu þá ekki hæða mig og spotta.
4 Allir þeir sem leita Guðs skulu fagna og gleðjast. Þeir sem elska hjálpræði þitt hrópi: „Lofaður sé Guð!“
5 En ég er í miklum vanda ó, Guð! Flýttu þér að hjálpa mér! Þú ert sá eini sem getur bjargað. Drottinn minn, láttu það ekki dragast!