< Sálmarnir 64 >

1 Ó, Drottinn, hlustaðu á neyðaróp mitt, verndaðu mig! 2 því að hópur af þorpurum og bófum hafa gert samsæri gegn mér. 3 Orð þeirra eru eins og rýtingur í bakið. Þeir hvæsa á mig og nísta hjarta mitt. 4 Þeir senda mér kaldar kveðjur úr launsátri, vinna verk sín í skyndi, eru hvergi smeykir. 5 Þeir sitja á svikráðum. Hittast á laun og leggja gildrur fyrir aðra. „Þetta sér enginn, “segja þeir. 6 Þeir upphugsa ill verk og segja „Nú er allt klappað og klárt!“Hjörtu þeirra fyllast illsku og svikum. 7 En Guð mun slá þá til jarðar. Eins og hendi sé veifað hittir örin þá 8 Tunga þeirra verður þeim að falli. Menn hrista höfuðið yfir þeim og 9 ótta slær á alla. Þeir játa mikilleik Guðs og hans voldugu verk, gefa gætur að því sem hann gerir. 10 En hinir trúuðu munu fagna í Drottni, leita hjálpar hans og hrósa sigri með honum.

< Sálmarnir 64 >