< Sálmarnir 63 >
1 Þennan sálm orti Davíð þegar hann leitaði skjóls í Júdeueyðimörkinni. Ó, þú Guð minn, ég leita þín! Mig þyrstir eftir þér í þessari skrælnuðu eyðimörk. Ó, hve ég þrái þig!
2 Þegar ég gekk um í helgidómi þínum þá leitaði ég þín, þráði að sjá veldi þitt og dýrð.
3 Miskunn þín er betri en lífið sjálft! Með vörum mínum lofa ég þig.
4 Ég vil lofa þig svo lengi sem ég lifi, lyfta höndum mínum í bæn til þín.
5 Þá mun sál mín mettast og verða glöð, og munnur minn lofa þig með fögnuði.
6 Ég ligg andvaka um nætur og hugsa um þig, rifja upp öll þau skipti sem þú hefur hjálpað.
7 Þá fyllist ég gleði, finn mig öruggan hjá þér.
8 Ég vil halda mér fast við þig, og styðjast við þína sterku hönd.
9 Þeir munu sjálfir deyja sem brugga mér banaráð, og hverfa niður til heljar. ()
10 Þeir munu falla fyrir sverði, verða sjakölum að bráð.
11 Ég vil gleðjast í Guði! Og þeir sem honum treysta skulu fagna sigri því að munni lygaranna hefur verið lokað.