< Sálmarnir 60 >
1 Þennan sálm orti Davíð þegar hann átti í ófriði við Sýrlendinga og óvíst var um úrslit. Þetta gerðist á sama tíma og Jóab, hershöfðingi Ísraels, vann sigur á 12.000 Edomítum í Saltdalnum. Þú Guð, hefur útskúfað okkur og brotið niður varnirnar. Þú hefur reiðst okkur og tvístrað. Drottinn sýndu aftur miskunn þína.
O God thou have cast us off. Thou have broken us down. Thou have been angry. O restore us again.
2 Þú lést landið skjálfa, sprungur opnuðust. Drottinn læknaðu það og græddu sárin.
Thou have made the land to tremble. Thou have torn it. Heal the breaking of it, for it shakes.
3 Þú lést lýð þinn kenna á hörðu, við reikuðum eins og drukknir menn.
Thou have shown thy people hard things. Thou have made us to drink the wine of staggering.
4 En nú hefur þú reist okkur herfána! Þangað stefnum við allir sem elskum þig.
Thou have given a banner to those who fear thee, that it may be displayed because of the truth. (Selah)
5 Réttu út þína sterku hönd og frelsaðu okkur! Bjargaðu ástvinum þínum.
That thy beloved ones may be delivered, save with thy right hand, and answer us.
6 Guð hefur heitið hjálp. Hann hefur svarið það við heilagleika sinn! Er að undra þótt ég sé glaður?!
God has spoken in his holiness. I will exult. I will divide Shechem, and mete out the valley of Succoth.
7 „Síkem, Súkkót, Gíleað, Manasse – allt er þetta mitt, “segir hann. „Júda gefur konung og Efraím varðmenn.
Gilead is mine, and Manasseh is mine. Ephraim also is the defense of my head. Judah is my scepter.
8 Móab er þjónn minn og Edóm þræll. Og yfir Filisteu æpi ég siguróp!“
Moab is my wash pot. Upon Edom I will cast my shoe. Philistia, shout thou because of me.
9 Hver fer með til Edóms, inn í víggirtar borgir hans?
Who will bring me into the strong city? Who has led me to Edom?
10 Guð! Hann sem áður útskúfaði og yfirgaf hersveitir okkar!
Have not thou, O God, cast us off? And thou go not forth, O God, with our armies.
11 Drottinn, styð okkur gegn óvinunum, því að ekki hjálpa menn.
Give us help against the adversary, for vain is the help of man.
12 Með Guðs hjálp vinnum við stórvirki, hann mun fótum troða óvinina.
Through God we shall do valiantly, for he it is who will tread down our adversaries.