< Sálmarnir 57 >

1 Þennan sálm orti Davíð þegar hann flýði inn í hellinn undan Sál. (Sjá 1. Sam. 22:1‑2 og 24:1‑9). Ó Guð, vertu mér náðugur, því að ég treysti þér. Ég vil leita skjóls undir vængjum þínum uns storminn hefur lægt.
TO THE OVERSEER. “DO NOT DESTROY.” A MIKTAM OF DAVID, IN HIS FLEEING FROM THE FACE OF SAUL INTO A CAVE. Favor me, O God, favor me, For my soul is trusting in You, And I trust in the shadow of Your wings, Until the calamities pass over.
2 Ég hrópa til Guðs hins hæsta, hans sem leysir öll mín mál.
I call to God Most High, To God [who] is perfecting for me.
3 Hann sendir mér hjálp frá himnum og frelsar mig vegna elsku sinnar og trúfesti. Hann mun bjarga mér frá lygurum sem sitja um líf mitt.
He sends from the heavens, and saves me, He reproached [the one] who is panting after me. (Selah) God sends forth His kindness and His truth.
4 Ég er umkringdur ofstopamönnum – glefsandi úlfum. Tennur þeirra eru hvassari en örvar og spjót og tungurnar beittari en sverð!
My soul [is] in the midst of lions, I lie down [among] flames—sons of men, Their teeth [are] a spear and arrows, And their tongue a sharp sword.
5 Drottinn, lofað sé nafn þitt á himnum! Láttu dýrð þína líka birtast á jörðu!
Be exalted above the heavens, O God, Your glory above all the earth.
6 Óvinir mínir hafa lagt gildru fyrir mig. Þeir hafa grafið mér gryfju. Ég er mæddur og kvíðinn. En! Eitt veit ég: Þeir munu sjálfir falla í hana!
They have prepared a net for my steps, My soul has bowed down, They have dug a pit before me, They have fallen into its midst. (Selah)
7 Guð minn, nú er hjarta mitt rótt og ég treysti þér. Ég vil lofa þig!
My heart is prepared, O God, My heart is prepared, I sing and praise.
8 Rís þú nú upp, sál mín! Vakna þú harpa og gígja! Bjóddu morgunroðann velkominn með söng!
Awake, my glory, awake, stringed instrument and harp, I awake the morning dawn.
9 Allir landsbúar heyra þakkargjörð mína. Ég vil syngja þér lof meðal þjóðanna.
I thank You among the peoples, O Lord, I praise You among the nations.
10 Miskunn þín er há eins og himinninn og trúfesti þín nær til skýjanna.
For Your kindness [is] great to the heavens, And Your truth to the clouds.
11 Þú ert hærri en hæstu himnar, ó, Guð. Láttu dýrð þína breiðast yfir gjörvalla jörðina.
Be exalted above the heavens, O God. Your glory above all the earth!

< Sálmarnir 57 >