< Sálmarnir 54 >

1 Sálmur eftir Davíð, ortur þegar menn frá Síf reyndu að svíkja hann í hendur Sál konungs. Komdu í mætti þínum, ó Guð, og bjargaðu mér! Verndaðu mig með krafti þínum! 2 Bænheyrðu mig, 3 því að ofbeldismenn hafa risið gegn mér – heiðingjar sem ekki trúa á þig, sækjast eftir lífi mínu. 4 En Guð er minn hjálpari. Hann er vinur minn! 5 Fyrir hans tilverknað mun illska þeirra koma þeim sjálfum í koll. Efndu loforð þitt, Guð, og þurrkaðu út þessa illvirkja. 6 Glaður kem ég fram fyrir þig með fórn mína. Ég lofa nafn þitt, Drottinn, því það er gott. 7 Guð hefur frelsað mig frá dauða og yfirbugað óvini mína.

< Sálmarnir 54 >