< Sálmarnir 5 >
1 Drottinn, hlustaðu á orð mín. Heyr þú mína einlægu bæn.
Escucha, o! Jehová, mis palabras: entiende mi meditación.
2 Hlustaðu á kveinstafi mína, þú Guð, konungur minn, því að ég mun aldrei biðja til neins nema þín.
Está atento a la voz de mi clamor, Rey mío, y Dios mío, porque a ti oraré.
3 Á hverjum morgni horfi ég til himins, já til þín, og legg bænir mínar fram fyrir þig.
Jehová, de mañana oirás mi voz: de mañana me presentaré a ti, y esperaré.
4 Ég veit að þú fyrirlítur óguðleika og að þeir sem iðka hið illa fá ekki að dveljast hjá þér.
Porque tú no eres Dios que quieres la maldad; el malo no habitará junto a ti.
5 Hrokafullir syndarar standast augnaráð þitt ekki, því að þú hatar illgjörðir þeirra.
No estarán los insensatos delante de tus ojos: a todos los que obran iniquidad, aborreciste.
6 Þú munt eyða þeim sem tala lygi og þú hefur andstyggð á morðum og svikum.
Destruirás a los que hablan mentira: al varón de sangres y de engaño abominará Jehová.
7 En hvað um mig? Af náð þinni fæ ég að ganga inn í musteri þitt, umvafinn vernd þinni og ást. Ég vil tilbiðja þig í djúpri lotningu.
Y yo en la multitud de tu misericordia entraré en tu casa: adoraré al santo templo tuyo con tu temor.
8 Drottinn, leiddu mig eins og þú lofaðir mér, annars munu óvinir mínir sigra mig. Segðu mér skýrt hvað ég á að gera, og hvert ég á að fara,
Jehová, guíame en tu justicia a causa de mis enemigos: endereza delante de mí tu camino.
9 því að þeir reyna að blekkja mig. Hjörtu þeirra eru full af illsku. Tortíming og dauði býr í ráðum þeirra og þeir nota svik og pretti sér til framdráttar.
Porque no hay en su boca rectitud: sus entrañas son pravedades: sepulcro abierto su garganta, con su lengua lisonjearán.
10 Ó, Guð láttu þá fá makleg málagjöld. Þeir lendi í eigin gildru. Hrintu þeim burt vegna hinna mörgu afbrota þeirra, því að þeir storka þér.
Asuélales, o! Dios, caigan de sus consejos: por la multitud de sus rebeliones échales, porque se rebelaron contra ti.
11 En þeir sem treysta þér gleðjast og kætast. Þeir hrópa af gleði því þú verndar þá. Þeir sem elska þig gleðjast yfir þér.
Y alegrarse han todos los que esperan en ti; para siempre se regocijarán, y cubrirles has, y alegrarse han en ti los que aman tu nombre.
12 Því að þú, ó Guð, blessar hinn trúaða, þú verndar hann með skildi elsku þinnar.
Porque tú bendecirás al justo, o! Jehová; como de un pavés le cercarás de benevolencia.