< Sálmarnir 46 >
1 Guð er mér hæli og styrkur, örugg hjálp í nauðum.
2 Þess vegna óttumst við ekki, þótt heimurinn farist og fjöllin steypist í hafið.
3 Hafið æði og freyði, fjöllin nötri og skjálfi!
4 Lækir gleðinnar streyma frá borg Guðs – frá heilögum bústað Guðs hins hæsta.
5 Hér býr Guð, hún mun ekki haggast. Þegar þörf er á, kemur Guð henni til hjálpar.
6 Þjóðir risu upp og létu ófriðlega en þegar Guð talaði varð heimurinn að þagna og jörðin nötraði.
7 Drottinn, hann sem ræður hersveitum himinsins, er hér! Hann er á meðal okkar! Hann, Guð Jakobs, er kominn til að hjálpa.
8 Komið og sjáið máttarverk hans á jörðinni.
9 Hann stöðvar styrjaldir um víða veröld, brýtur vopnin og kastar á eld.
10 „Þögn! Standið kyrr! Vitið að ég er Guð! Allar þjóðir heims syni mér lotningu.“
11 Drottinn hersveita himinsins er hér, hann er á meðal okkar! Hann, Guð Jakobs, er hér til að frelsa!