< Sálmarnir 41 >

1 Guð blessar þann sem hjálpar bágstöddum. Á mæðudeginum bjargar Drottinn honum.
למנצח מזמור לדוד אשרי משכיל אל דל ביום רעה ימלטהו יהוה׃
2 Drottinn verndar hann og heldur í honum lífinu. Hann lætur hann njóta sæmdar og frelsar hann frá óvinum hans.
יהוה ישמרהו ויחיהו יאשר בארץ ואל תתנהו בנפש איביו׃
3 Drottinn annast hann á sóttarsæng, veitir honum hvíld og hressing.
יהוה יסעדנו על ערש דוי כל משכבו הפכת בחליו׃
4 Ég bað: „Drottinn, miskunnaðu mér. Læknaðu sál mína því að ég hef syndgað gegn þér.“
אני אמרתי יהוה חנני רפאה נפשי כי חטאתי לך׃
5 Óvinir mínir biðja mér bölbæna og segja: „Bara að hann deyi sem fyrst svo að allir gleymi honum!“
אויבי יאמרו רע לי מתי ימות ואבד שמו׃
6 Sumir sem heimsækja mig í veikindunum eru að þykjast. Innst inni hata þeir mig og líkar vel að ég er sjúkur. Þegar út er komið baktala þeir mig.
ואם בא לראות שוא ידבר לבו יקבץ און לו יצא לחוץ ידבר׃
7 Hatursmenn mínir hæða mig og spotta. Þeir skrafa og pískra hvað gera skuli þegar ég er allur
יחד עלי יתלחשו כל שנאי עלי יחשבו רעה לי׃
8 „Þetta er banvænt, hvað sem það er, “segja þeir, „honum mun aldrei batna.“
דבר בליעל יצוק בו ואשר שכב לא יוסיף לקום׃
9 Og besti vinur minn, hann snerist líka gegn mér, maðurinn sem ég treysti svo vel, hann sem át við borð mitt.
גם איש שלומי אשר בטחתי בו אוכל לחמי הגדיל עלי עקב׃
10 En, Drottinn, yfirgef mig ekki! Miskunnaðu mér og læknaðu mig svo að ég geti endurgoldið þeim!
ואתה יהוה חנני והקימני ואשלמה להם׃
11 Ég veit að þú elskar mig og að þú munt ekki láta óvini mína hlakka yfir mér.
בזאת ידעתי כי חפצת בי כי לא יריע איבי עלי׃
12 Vegna sakleysis míns hefur þú varðveitt mig og lætur mig lifa með þér að eilífu.
ואני בתמי תמכת בי ותציבני לפניך לעולם׃
13 Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels, frá eilífð til eilífðar. Amen. Amen.
ברוך יהוה אלהי ישראל מהעולם ועד העולם אמן ואמן׃

< Sálmarnir 41 >