< Sálmarnir 142 >
1 Ég bið og bið til Drottins,
2 stöðugt grátbæni ég hann.
3 Ég er hræddur og ráðvilltur. Þú einn þekkir leiðina framhjá gildrum óvina minna.
4 Enginn maður hugsar hlýtt til mín. Hvergi er góð ráð að fá. Öllum er sama um mig.
5 Því bið ég til Drottins og segi: „Drottinn, þú einn ert skjól mitt á jörðu, ég er hvergi öruggur nema hjá þér.
6 Heyrðu hróp mitt því að ég er mjög þjakaður. Frelsaðu mig frá þeim sem ofsækja mig, því að þeir eru mér yfirsterkari.
7 Leiddu mig úr þessum mikla vanda og þá mun ég lofa þig. Hinir guðhræddu munu þyrpast til mín og fagna með mér yfir hjálp þinni.“