< Sálmarnir 140 >
1 Ó, Drottinn, frelsaðu mig frá vondum mönnum. Verndaðu mig gegn ofbeldismönnunum
2 sem sitja á svikráðum alla daga og vekja ófrið.
3 Orð þeirra eru eins og eitruð höggormsbit.
4 Varðveittu mig gegn ofbeldi þeirra og svikráðum.
5 Þessir ofríkismenn hafa lagt gildru fyrir mig, sett út snöru sína. Þeir bíða þess að geta kastað yfir mig neti, flækja mig í möskva sína.
6 Ó, Drottinn, þú ert minn Guð! Hlustaðu á grátbeiðni mína!
7 Láttu ekki svikráð níðinganna heppnast.
8 Láttu þá ekki ná árangri eða hreykja sér hátt.
9 Svikráð þeirra komi þeim sjálfum í koll!
10 Eldsglóðum rigni yfir þá. Steyptu þeim í gjár sem þeir komast ekki úr.
11 Láttu lygara einskis ávinnings njóta í landi okkar, en refsaðu þeim í skyndi.
12 Drottinn mun örugglega rétta hlut fólks sem þolað hefur ofsóknir þeirra, hann mun flytja mál hinna snauðu.
13 Hinir guðhræddu þakka þér. Þeir fá að lifa í nálægð þinni.