< Sálmarnir 123 >

1 Ó, Guð, þú sem ríkir á himnum, ég hef augu mín til þín. 2 Við horfum til Drottins Guðs, þráum miskunn hans og náð, rétt eins og þjónninn mænir á húsbónda sinn og þernan á húsmóður sína. 3 Miskunna okkur, Drottinn, miskunna okkur. 4 Við höfum fengið nóg af háði og spotti hinna hrokafullu.

< Sálmarnir 123 >