< Sálmarnir 11 >

1 Hvernig getið þið sagt: „Flýðu til fjallanna og leitaðu skjóls!?“Vitið þið ekki að ég treysti því að Drottinn muni hjálpa mér. 2 Óguðlegir leggja ör á streng, spenna boga sína og miða úr launsátri á lýð Guðs. 3 Menn segja: „Lögin hafa verið afnumin! Hinir réttlátu verða að forða sér.“ 4 En, Drottinn er enn í sínu heilaga musteri. Hann ríkir enn frá himnum. Hann fylgist grannt með öllu sem gerist á jörðu. 5 Hann prófar bæði trúaða og vantrúaða. Hann fyrirlítur þá sem elska ofbeldi. 6 Hann mun senda eld og brennistein yfir illgjörðamennina og svíða þá með glóheitum vindi. 7 Því að Guð er réttlátur og hefur mætur á góðum verkum. Hinir hjartahreinu munu sjá auglit hans.

< Sálmarnir 11 >