< Sálmarnir 11 >
1 Hvernig getið þið sagt: „Flýðu til fjallanna og leitaðu skjóls!?“Vitið þið ekki að ég treysti því að Drottinn muni hjálpa mér.
2 Óguðlegir leggja ör á streng, spenna boga sína og miða úr launsátri á lýð Guðs.
3 Menn segja: „Lögin hafa verið afnumin! Hinir réttlátu verða að forða sér.“
4 En, Drottinn er enn í sínu heilaga musteri. Hann ríkir enn frá himnum. Hann fylgist grannt með öllu sem gerist á jörðu.
5 Hann prófar bæði trúaða og vantrúaða. Hann fyrirlítur þá sem elska ofbeldi.
6 Hann mun senda eld og brennistein yfir illgjörðamennina og svíða þá með glóheitum vindi.
7 Því að Guð er réttlátur og hefur mætur á góðum verkum. Hinir hjartahreinu munu sjá auglit hans.