Aionian Verses
Því að ef ég dey, þá get ég ekki lengur lofað þig meðal vina minna. (Sheol )
Illmennin munu hrapa til heljar og eins verða örlög þeirra þjóða sem gleyma Drottni. (Sheol )
því að þú munt ekki skilja mig eftir meðal hinna dánu né leyfa að þinn elskaði rotni í gröfinni. (Sheol )
Umkringdur og hjálparvana barðist ég um í netinu sem dró mig niður í djúp dauðans. (Sheol )
Þú hreifst mig burt frá barmi grafarinnar, já úr dauðans greipum, og gafst mér líf og framtíð! (Sheol )
Drottinn, láttu mig ekki verða til skammar þegar ég ákalla þig um hjálp. Láttu illmennin blygðast sín fyrir það sem þau treysta á. Já, sendu þá sneypta og þegjandi í gröfina (Sheol )
En þeir fá ekki umflúið dauðann. Þegar upp er staðið verða hinir vondu að þjóna hinum góðu. Vald auðsins er þeim gagnslaust í dauðanum og ekki taka þeir auðæfi sín með sér. (Sheol )
En hvað um mig? Guð mun leysa sál mína frá dauða og frelsa mig úr helju. (Sheol )
Dauðinn taki þá og dragi þá til heljar, því að illska er í húsum þeirra, synd í hjörtum þeirra. (Sheol )
Mikill er kærleikur þinn! Þú ert mér alltaf svo góður! Þú frelsaðir mig úr djúpi heljar. (Sheol )
því að ég er altekinn ótta og finn dauðann nálgast. (Sheol )
Enginn maður lifir endalaust. Öll deyjum við að lokum. Og hver getur stigið upp úr gröf sinni? (Sheol )
Ég horfðist í augu við dauðann – var hræddur og hnípinn. (Sheol )
Fari ég til himna, þá ertu þar, til dánarheima, þá ertu líka þar! (Sheol )
þá munu menn þessir hlusta á viðvörun mína og skilja að ég vildi þeim vel. (Sheol )
En ég bæti við: Ef þú reiðist – jafnvel þótt það sé aðeins við bróður þinn á þínu eigin heimili – vofir dómurinn yfir þér! Ef þú kallar vin þinn fífl, átt þú á hættu að þér verði stefnt fyrir réttinn! Og bölvir þú honum áttu eld helvítis yfir höfði þér. (Geenna )
Ef það sem þú sérð með auga þínu verður til þess að þú fellur í synd, skaltu stinga augað úr þér og fleygja því. Betra er að hluti af þér eyðileggist en að þér verði öllum kastað í víti. (Geenna )
Ef hönd þín – jafnvel sú hægri – kemur þér til að syndga, þá er betra að höggva hana af og fleygja henni en að lenda í helvíti. (Geenna )
Óttist ekki þá sem aðeins geta deytt líkama ykkar, en megna ekki að skaða sálina. Óttist Guð, því að hann getur tortímt sál og líkama í helvíti. (Geenna )
Kapernaum, þér hlotnaðist mikill heiður, en þér verður eytt! Ef öll kraftaverkin, sem ég hef gert í þér, hefðu gerst í Sódómu, stæði hún enn í dag. (Hadēs )
hvorki í þessum heimi né hinum komandi. (aiōn )
Jarðvegurinn þar sem þyrnarnir uxu, táknar mann sem heyrir boðskapinn, en lætur áhyggjur lífsgæðakapphlaupsins kæfa orð Guðs, og fjarlægist Guð smátt og smátt. (aiōn )
Óvinurinn, sem sáði illgresinu meðal hveitisins, er Satan. Uppskerutíminn er dómsdagur. Kornskurðarmennirnir eru englar. (aiōn )
Eins og illgresi er brennt, eins mun fara við endi veraldar. (aiōn )
Þannig fer líka á dómsdegi. Englar munu koma, skilja hina óguðlegu frá hinum trúuðu og (aiōn )
Þú ert Pétur – kletturinn – á þessum kletti mun ég byggja söfnuð minn og vald vítis mun ekki megna að yfirbuga hann. (Hadēs )
Ef hönd þín eða fótur kemur þér til að syndga, er betra að skera liminn af, kasta honum burt og koma bæklaður til himins, en hafa bæði hendur og fætur, og lenda í helvíti. (aiōnios )
Ef auga þitt fær þig til að syndga, skaltu stinga það úr og fleygja því. Betra er fyrir þig að ná til himna eineygður, en að fara alsjáandi til helvítis. (Geenna )
Maður nokkur kom til Jesú og spurði: „Meistari, hvaða góðverk þarf ég að gera til þess að eignast eilíft líf?“ (aiōnios )
Hver sá sem yfirgefur heimili, bræður, systur, föður, móður, eiginkonu, börn eða eignir til að geta fylgt mér, mun fá hundraðfalt í staðinn og eignast eilíft líf. (aiōnios )
Þá tók hann eftir fíkjutré, sem stóð rétt við veginn. Hann gekk að trénu til að athuga hvort á því væru nokkrar fíkjur, en svo var ekki, einungis lauf. Þá sagði hann við tréð: „Upp frá þessu munt þú aldrei bera ávöxt!“Rétt á eftir visnaði tréð. (aiōn )
Já, vei ykkur, þið hræsnarar! Þið farið langar leiðir til þess að vinna einn trúskipting, og gerið hann síðan að miklu verra helvítisbarni en þið eruð sjálfir. (Geenna )
Eiturnöðrur og höggormssynir! Hvernig fáið þið umflúið dóm helvítis? (Geenna )
Stuttu seinna þegar Jesús sat í hlíð Olíufjallsins gengu lærisveinarnir til hans og spurðu hann um þetta: „Hvenær verður það og hvaða atburðir verða á undan endurkomu þinni og endi veraldar?“ (aiōn )
Síðan mun ég snúa mér að þeim sem eru til vinstri og segja: „Burt með ykkur, bölvaðir, í eilífa eldinn sem ætlaður er djöflinum og þjónum hans. (aiōnios )
Og þeir munu fara burt til eilífrar refsingar, en hinir réttlátu til eilífs lífs.“ (aiōnios )
Skírið þá í nafni föður, sonar og heilags anda, og kennið þeim að halda allt það sem ég hef boðið ykkur. Takið eftir! Ég er með ykkur alla daga allt til enda veraldarinnar.“ (aiōn )
en last gegn heilögum anda verður aldrei fyrirgefið. Það er eilíf synd.“ (aiōn , aiōnios )
En fyrr en varir hefur athygli þeirra beinst að því sem heimurinn hefur að bjóða og að táli auðæfanna. Löngun í metorð og alls kyns gæði gagntekur hug þeirra, svo þar verður ekkert rúm fyrir orð Guðs. Afleiðingin verður sú að fræið ber engan þroskaðan ávöxt. (aiōn )
Ef hönd þín gerir rangt, þá er betra að skera hana af og hafa aðeins aðra höndina og eignast eilíft líf, en hafa báðar og vera varpað í helvíti. (Geenna )
Ef fótur þinn leiðir þig á veg illskunnar, höggðu hann þá af! Betra er að vera einfættur og eignast eilíft líf, en ganga á báðum fótum til helvítis. (Geenna )
Ef auga þitt teymir þig út í syndina, stingdu það þá úr! Betra er að ganga hálfblindur inn í guðsríki, en hafa bæði augun og líta elda helvítis. (Geenna )
Jesús var í þann veginn að leggja upp í ferð, þegar maður nokkur kom hlaupandi til hans, kraup og spurði. „Góði meistari, hvað verð ég að gera til að eignast eilíft líf?“ (aiōnios )
Honum verður launað hundraðfalt! Heimili, bræður, systur, mæður, börn og land – og ofsóknir. Allt þetta mun hann fá á jörðu og auk þess eilíft líf í hinum komandi heimi. (aiōn , aiōnios )
Þá sagði Jesús við tréð, svo lærisveinarnir heyrðu: „Aldrei framar munt þú ávöxt bera!“ (aiōn )
og hann mun ríkja yfir Ísrael að eilífu. Á ríki hans mun enginn endir verða!“ (aiōn )
Hann lofaði feðrum okkar – Abraham og afkomendum hans – að sýna þeim miskunn að eilífu.“ (aiōn )
eins og hinir heilögu spámenn höfðu sagt fyrir, (aiōn )
Síðan báðu illu andarnir hann að senda sig ekki í botnlausa hyldýpið. (Abyssos )
Og hvað um ykkur, íbúar Kapernaum? Verðið þið hafnir til himins? Nei, ykkur verður varpað niður til heljar.“ (Hadēs )
Dag nokkurn kom fræðimaður í lögum Móse til Jesú og vildi prófa rétttrúnað hans. „Meistari, “sagði hann, „hvað þarf maður að gera til að eignast eilíft líf?“ (aiōnios )
Ég skal segja ykkur hvern þið eigið að óttast – það er Guð. Hann hefur vald til að taka líf ykkar og kasta ykkur í helvíti. (Geenna )
Ríki maðurinn var tilneyddur að dást að þorpara þessum fyrir slægð hans. Satt er það, að guðleysingjarnir eru kænni í viðskiptum sínum við heiminn en hinir trúuðu. (aiōn )
En ég segi ykkur: Notið eigur ykkar til þess að afla ykkur vina, svo að þeir fagni ykkur í eilífðinni, þegar þið verðið að skiljast við þær. (aiōnios )
og fór til heljar. En er hann kvaldist þar, sá hann Lasarus álengdar hjá Abraham. (Hadēs )
Höfðingi nokkur spurði Jesú: „Góði meistari, hvað á ég að gera til að eignast eilíft líf?“ (aiōnios )
munu fá margföld laun í þessum heimi, auk eilífs lífs í hinum komandi.“ (aiōn , aiōnios )
„Hjónabandið er fyrir þá sem lifa á jörðinni, “svaraði Jesús, (aiōn )
„en þeir sem verðskulda guðsríki ganga ekki í hjónaband við upprisuna, (aiōn )
svo að allir sem á mig trúa, eignist eilíft líf. (aiōnios )
Því að svo elskaði Guð heiminn að hann gaf einkason sinn til þess að hver sem trúir á hann glatist ekki, heldur eignist eilíft líf. (aiōnios )
Allir sem treysta honum – Guðssyninum – eignast eilíft líf, en þeir sem hvorki trúa honum né hlýða, munu aldrei sjá guðsríki heldur mun reiði Guðs hvíla yfir þeim.“ (aiōnios )
„En, “bætti hann við, „vatnið sem ég gef, verður að lind hið innra með þeim og veitir eilífa svölun.“ (aiōn , aiōnios )
Sá sem uppsker fær laun og safnar ávöxtum til eilífs lífs, til þess að bæði sá sem sáir og sá sem uppsker geti glaðst saman. (aiōnios )
Ég segi ykkur satt og legg á það áherslu, að hver sem heyrir orð mín og trúir Guði, sem sendi mig, eignast eilíft líf og mun aldrei hljóta dóm fyrir syndir sínar, heldur hefur hann þá þegar stigið yfir frá dauðanum til lífsins. (aiōnios )
Þið rannsakið Gamla testamentið, því að þið álítið að það gefi ykkur eilíft líf, en svo vitið þið ekki að það vitnar um mig! (aiōnios )
Hugsið ekki um það sem eyðist, eins og til dæmis mat. Leitið heldur eilífa lífsins sem ég, Kristur, get gefið ykkur, og einmitt þess vegna sendi Guð mig hingað.“ (aiōnios )
Það er vilji föður míns að allir sem sjá soninn og trúa á hann, eignist eilíft líf og að ég reisi þá upp á efsta degi.“ (aiōnios )
Ég segi ykkur satt: „Hver sem trúir á mig, mun þegar í stað eignast eilíft líf!“ (aiōnios )
Ég er þetta lifandi brauð, sem kom niður af himni, og sá sem neytir þess mun lifa að eilífu. Þetta brauð er ég sjálfur – hold mitt sem gefið er heiminum til lífs.“ (aiōn )
Sá sem etur hold mitt og drekkur blóð mitt hefur eilíft líf, og ég mun vekja hann upp á efsta degi. (aiōnios )
Ég er hið sanna brauð sem kom niður af himni og hver sem etur þetta brauð, mun lifa að eilífu en ekki deyja eins og forfeður ykkar, sem átu brauð frá himni.“ (aiōn )
Símon varð fyrir svörum: „Meistari, hvert ættum við að fara? Þú ert sá eini sem hefur orð eilífs lífs, (aiōnios )
„Þrælar hafa engin réttindi, en sonurinn hefur öll réttindi. (aiōn )
Ég segi ykkur satt: Sá sem hlýðir orðum mínum, mun aldrei að eilífu sjá dauðann.“ (aiōn )
„Nú vitum við að þú hefur illan anda, “sögðu leiðtogarnir, „því að Abraham dó og sama er að segja um spámennina, en nú segir þú að sá sem hlýði þér, muni aldrei deyja! (aiōn )
Frá því heimurinn varð til hefur enginn maður getað opnað augu blindra, (aiōn )
Ég gef þeim eilíft líf og þeir munu aldrei að eilífu glatast. Enginn skal slíta þá úr hendi minni, (aiōn , aiōnios )
Og sá sem eignast lífið í trúnni á mig, mun aldrei að eilífu deyja. Marta, trúir þú þessu?“ (aiōn )
Ef þið elskið líf ykkar hér á jörðinni, þá tapið þið því, en ef þið fórnið því, þá eignist þið eilífa dýrð í staðinn. (aiōnios )
„Býstu við dauða þínum?“spurði fólkið. „Okkur skilst að Kristur eigi að lifa að eilífu og að hann muni aldrei deyja. Af hverju segirðu að hann muni deyja? Um hvaða Krist ertu að tala?“ (aiōn )
Ég veit að orð hans gefa eilíft líf og þess vegna hef ég sagt allt það sem hann bauð mér að segja.“ (aiōnios )
„Nei, “mótmælti Pétur, „þú skalt aldrei fá að þvo fætur mína!“„Ef ég geri það ekki, getur þú ekki verið lærisveinn minn, “sagði Jesús. (aiōn )
Ég mun biðja föðurinn og hann mun gefa ykkur annan hjálpara, sem aldrei yfirgefur ykkur. (aiōn )
Þú hefur gefið honum vald yfir sérhverjum manni á þessari jörð. Öllum þeim, sem þú hefur gefið mér, hef ég gefið eilíft líf. (aiōnios )
Eilíft líf er það að þekkja þig, hinn eina sanna Guð, og þann sem þú sendir, Jesú Krist. (aiōnios )
því að hvorki munt þú skilja sál mína eftir meðal hinna dánu, né láta líkama sonar þíns rotna. (Hadēs )
Davíð sá langt fram í tímann og sagði fyrir um upprisu Krists, að sál hans yrði ekki skilin eftir meðal hinna dánu og líkami hans myndi ekki heldur rotna. (Hadēs )
Jesús verður að dveljast á himnum uns allt, sem syndin eyðilagði, hefur verið endurnýjað, eins og lofað var í upphafi. Móse sagði til dæmis fyrir löngu: „Drottinn Guð mun vekja upp spámann líkan mér á meðal ykkar. Hlustið með athygli á orð hans, (aiōn )
Þá sögðu Páll og Barnabas ákveðnir: „Rétt var að þið Gyðingarnir fengjuð fyrst að heyra þennan fagnaðarboðskap, en fyrst þið hafnið honum og sýnið þar með að þið séuð ekki verðir eilífs lífs, þá munum við snúa okkur til heiðingjanna. (aiōnios )
Þegar heiðingjarnir heyrðu þetta urðu þeir mjög glaðir og tóku fegins hendi við boðskap Páls. Allir þeir, sem vildu eignast eilíft líf, tóku trú, (aiōnios )
Þetta eru orð Drottins, sem opinberar fyrirætlanir sínar, sem hann gerði í upphafi. (aiōn )
Mennirnir hafa frá upphafi virt fyrir sér jörðina, himininn og allt sem Guð hefur gert. Þeir hafa því verið sér meðvitandi um tilveru hans og hans mikla, eilífa mátt. Þess vegna hafa þeir enga afsökun (þegar þeir standa frammi fyrir honum á degi dómsins). (aïdios )
Í stað þess að trúa því sem þeir vita að er sannleikurinn um Guð, kjósa þeir að trúa lyginni! Afleiðingin er sú að þeir tilbiðja það sem Guð hefur skapað, í stað þess að tilbiðja Guð, skaparann. (aiōn )
Þeim sem af þrautseigju gera Guðs vilja, mun hann gefa eilíft líf, það er að segja þeim sem leita ósýnilegrar dýrðar, heiðurs og ódauðleika. (aiōnios )
Áður fyrr ríkti syndin í lífi allra manna og dró þá til dauða, en nú ríkir gæska Guðs og hún veitir okkur á ný samfélag við Guð og hlut í eilífa lífinu sem fæst fyrir Jesú Krist, Drottin okkar og frelsara. (aiōnios )
Nú eruð þið hins vegar laus undan valdi syndarinnar og hafið gerst þjónar Guðs. Hlunnindin, sem Guð veitir ykkur, eru meðal annars helgun og eilíft líf. (aiōnios )
Laun syndarinnar eru dauði, en óverðskulduð gjöf Guðs til okkar er eilíft líf í Kristi Jesú, Drottni okkar og frelsara. (aiōnios )
Forfeður þeirra voru miklar trúarhetjur og sjálfur var Kristur einn af þeim. Hann fæddist sem Gyðingur en nú er hann öllum æðri. Dýrð sé Guði um aldur og ævi! (aiōn )
„Þú þarft ekki að fara til hinna dauðu, til að leiða Krist aftur fram til lífsins, “ (Abyssos )
Guð hefur gefið þá alla syndinni á vald til að hann geti miskunnað þeim öllum. (eleēsē )
Allt er komið frá Guði. Allt er orðið til fyrir mátt hans og allt skal verða honum til vegsemdar. Honum sé dýrð um alla eilífð! (aiōn )
Takið ekki framkomu og lífsvenjur heimsins ykkur til fyrirmyndar. Lifið sem nýir menn! Látið orð Guðs og anda hans móta hugarfar ykkar og alla framkomu ykkar, orð og verk. Ef þið gerið þetta, þá munuð þið fá að reyna og þekkja vilja Guðs sem er hið góða, fagra og fullkomna. (aiōn )
Ég fel ykkur Guði, honum sem megnar að styrkja ykkur og staðfesta í trúnni, eins og talað er um í gleðiboðskapnum sem ég flyt. Sá boðskapur er leiðin sem Guð hefur opnað öllum mönnum til hjálpræðis og sem öldum saman hefur legið í þagnargildi. (aiōnios )
En nú hefur það gerst samkvæmt skipun Guðs, eins og spámennirnir sögðu fyrir, að þessi boðskapur er fluttur meðal allra þjóða, svo að fólk um víða veröld trúi Kristi og hlýði honum. (aiōnios )
Guði, sem þekkir alla hluti, sé dýrð að eilífu fyrir Drottin Jesú Krist. Amen. (aiōn )
Og hvað um þessa spekinga, þessa lærðu menn og snjöllu, sem vit hafa á öllu milli himins og jarðar? Guð hefur gert þá alla hlægilega og sýnt fram á að speki þeirra er tóm vitleysa. (aiōn )
En þegar ég er meðal þroskaðra, kristinna manna þá nota ég vísdómsorð, þó ekki mannlegan vísdóm eða þann sem höfðar til stórmenna þessa heims, sem dæmd eru til að falla. (aiōn )
Orð okkar eru skynsamleg af því að þau eru frá Guði og þau segja frá skynsamlegri fyrirætlun Guðs, um að leiða okkur inn í dýrð himinsins. Þessi fyrirætlun var hulin forðum daga enda þótt hún hafi verið gerð okkur til hjálpar og það áður en heimurinn varð til. (aiōn )
En stórmenni þessa heims hafa ekki skilið hana, annars hefðu þeir ekki krossfest konung dýrðarinnar. (aiōn )
Hættið að blekkja sjálf ykkur! Ef þið teljið ykkur vel greind, eftir mati þessa heims, leggið þá allt slíkt sjálfsmat á hilluna og teljið ykkur vankunnandi, annars missið þið af hinni sönnu visku frá Guði. (aiōn )
Ef neysla kjöts, sem fórnað hefur verið skurðgoðum, leiðir trúbróður afvega, mun ég ekki neyta þess svo lengi sem ég lifi, til þess að ég valdi honum ekki slíku tjóni. (aiōn )
Allt þetta henti þá, okkur til viðvörunar. Þessir atburðir voru færðir í letur til þess að við gætum lesið um þá og lært af þeim nú er endalok heimsins nálgast. (aiōn )
Dauði, hvar er sigur þinn? Hvar er broddur þinn?“Syndin – broddurinn sem veldur dauða – verður þá orðin að engu og lögmálið, sem afhjúpar syndir okkar, mun ekki lengur dæma okkur. (Hadēs )
Satan, – guð þessa heims, sem sneri baki við Drottni – hefur blindað þá og komið í veg fyrir að þeir sæju birtuna sem stafar af fagnaðarerindinu. Þeir skilja ekki heldur hinn stórkostlega boðskap sem við flytjum, boðskapinn um dýrð Krists, hann sem birtir okkur Guð. (aiōn )
Erfiðleikar okkar eru smámunir einir, sem vara munu stuttan tíma. Þessir skammvinnu erfiðleikar leiða þó ríkulega blessun Guðs yfir líf okkar – blessun sem vara mun til eilífðar! (aiōnios )
Þess vegna horfum við ekki á það sem við sjáum þessa stundina, erfiðleikana sem eru allt í kring um okkur, heldur fram til þeirrar gleði á himnum sem við munum sjá. Þrengingarnar eru skammvinnar en fögnuðurinn, sem í vændum er, mun aldrei taka enda. (aiōnios )
Við vitum að þegar tjaldið sem við nú búum í – okkar jarðneski líkami – verður fellt, en það gerist þegar við deyjum, þá munum við fá nýja líkama á himnum – bústað sem endist okkur um alla eilífð. Sá bústaður verður ekki gerður af manna höndum, heldur af Guði sjálfum. (aiōnios )
Um þetta segir Biblían: „Hinn guðrækni gefur fátækum með gleði. Góðverk hans munu verða honum til heiðurs í eilífðinni.“ (aiōn )
Guð, faðir Drottins Jesú Krists, hann sem lofaður verður um aldir alda, veit að ég segi satt. (aiōn )
Kristur dó fyrir syndir okkar eins og Guð faðir hafði ætlast til, og frelsaði okkur frá öllu því illa sem ræður ríkjum í þessum heimi. (aiōn )
Dýrð sé Guði um aldir alda. Amen. (aiōn )
Sá sem vill fullnægja sínum illu hvötum, sáir illgresi í hjarta sitt og uppsker andlega niðurlægingu og dauða. Ef hann hins vegar sáir hinu góða sæði Guðs anda, þá uppsker hann eilíft líf sem andinn gefur honum. (aiōnios )
Vald hans er meira en nokkurs konungs, foringja, einræðisherra eða leiðtoga, hvort heldur þessa heims eða annars. (aiōn )
Þið bárust með straumnum og voruð eins og allir aðrir, bundin af synd og hlýðni við hinn volduga Satan, hinn volduga, sem ríkir í andaheiminum og starfar í þeim sem ekki trúa á Drottin. (aiōn )
Til þess að við gætum borið vitni um óendanlegan kærleika hans, sem birtist í öllu því sem hann hefur gert fyrir okkur. (aiōn )
Mér var falið að útskýra fyrir öllum að Guð væri einnig frelsari heiðingjanna – kunngjöra áætlun hans frá örófi alda, hans, sem allt hefur skapað. (aiōn )
einmitt eins og hann hugsaði sér í upphafi að hafa það í Jesú Kristi, Drottni okkar. (aiōn )
Dýrð sú er hann birti heiminum í Kristi Jesú, verði augljós í söfnuði hans um alla framtíð, öld eftir öld. (aiōn )
Barátta okkar er alls ekki gegn holdiklæddu fólki, heldur gegn ósýnilegum öflum eyðingar og upplausnar, hinum máttugu og illu myrkraöflum sem ríkja í þessum fallna heimi. Barátta okkar er einnig við mikinn fjölda illra anda í andaheiminum. (aiōn )
Guði föður sé dýrð um aldir alda. Amen. Páll P. S. (aiōn )
Aldir liðu, kynslóðir komu og fóru, og hann gætti leyndarmálsins; en nú hefur honum þóknast að segja það þeim sem elska hann og lifa fyrir hann. Þið voruð heiðingjar en hans dýrlega áætlun nær einnig til ykkar! Og þetta er leyndarmálið: Kristur, sem nú lifir í hjörtum ykkar, er ykkar eina von um eilíft líf. (aiōn )
Þeir munu glatast og þeim refsað með eilífum aðskilnaði frá Drottni. Þeir munu ekki sjá dýrð hans og mátt, (aiōnios )
Sjálfur Drottinn Jesús Kristur og Guð faðir okkar, sem hefur elskað okkur og gefið okkur eilífa huggun og óverðskuldaða von, (aiōnios )
En Guð miskunnaði mér til að Kristur Jesús skyldi sýna mér þolinmæði og langlyndi sitt, til vitnisburðar öðrum syndurum sem eignast trú á hann. (aiōnios )
Guði sé lof og dýrð um aldir alda! Hann er hinn ódauðlegi og ósýnilegi, konungur eilífðarinnar. Enginn er Guð nema hann. Amen. (aiōn )
Manstu hve djarfur þú varst þegar þú játaðir í margra votta viðurvist að þú hefðir eignast eilífa lífið? Haltu fast í það, því að það var Guð sem gaf þér það. (aiōnios )
hinn ódauðlega, sem býr í ljósi sem enginn fær nálgast. Enginn maður hefur nokkru sinni séð hann, né mun heldur sjá. Hans er mátturinn, dýrðin og valdið um aldir alda. Amen. (aiōnios )
Segðu þeim sem ríkir eru að forðast allan hroka og ekki treysta á peningana, því að þeir eyðast. Segðu þeim heldur að hrósa sér af Guði og setja traust sitt á hann, því að hann veitir okkur fúslega allt sem við þörfnumst. (aiōn )
Það var hann sem frelsaði okkur og útvaldi til að vinna sitt heilaga verk, ekki vegna þess að við ættum það skilið, heldur vegna eigin ákvörðunar, löngu áður en heimurinn varð til. Hann ætlaði að auðsýna okkur kærleika sinn og gæsku í Kristi. (aiōnios )
Ég er fús að þjást, ef það verður til þess að þeir, sem Guð hefur útvalið, öðlist hjálpræðið og dýrð Jesú Krists. (aiōnios )
því Demas er farinn frá mér. Hann elskaði lífsgæðin og fór til Þessaloníku. Kreskes er farinn til Galatíu og Títus til Dalmatíu. (aiōn )
Drottinn mun vernda mig gegn öllu illu og leiða mig inn í sitt himneska ríki. Guði sé dýrð um aldir alda. Amen. (aiōn )
Sannleikur þessi vekur trú á Guð og leiðir til eilífs lífs. Þetta var óhagganleg fyrirætlun hans, áður en heimurinn varð til og það heit er enn í fullu gildi, því að Guð stendur við orð sín. (aiōnios )
Þetta sýnir að Guð vill að við snúum okkur frá guðleysi og syndsamlegum nautnum, til góðs og guðrækilegs lífernis, (aiōn )
Þetta gerði hann til að geta úrskurðað okkur hrein og syndlaus í augum Guðs og gert okkur að erfingjum eilífs lífs. (aiōnios )
Kannski getum við lýst því sem gerst hefur á þennan hátt: Hann strauk frá þér um stund, til þess síðan að geta verið hjá þér það sem eftir er. (aiōnios )
Á okkar dögum hefur hann hins vegar talað til okkar með tungu sonar síns, sem hann hefur gefið alla hluti. Sonarins vegna skapaði hann heiminn og allt sem í honum er. (aiōn )
en um son sinn segir hann: „Ríki þitt, ó Guð, mun standa að eilífu og tilskipanir þínar eru góðar og réttlátar. (aiōn )
Í annað sinn sagði Guð við hann: „Þú ert kjörinn til að vera prestur að eilífu og fá sömu tign og Melkísedek.“ (aiōn )
Og þegar Jesús hafði staðist próf hlýðninnar, varð hann öllum þeim, sem honum hlýða, gjafari eilífs hjálpræðis. (aiōnios )
Og frekari fræðslu um skírn, handayfirlagningu, upprisu dauðra og eilífan dóm þurfið þið ekki. (aiōnios )
reynt blessunina af orði Guðs og fundið mátt hins komandi heims, þá er þýðingarlaust að reyna að leiða ykkur aftur til Drottins. (aiōn )
Þessa leið fór Kristur á undan okkur, til að biðja fyrir okkur sem æðsti prestur, líkur Melkísedek að mætti og dýrð. (aiōn )
Þetta bendir sálmaskáldið á er hann segir um Krist: „Þú ert prestur að eilífu á borð við Melkísedek.“ (aiōn )
en það hafði hann aldrei ætlað hinum prestunum. Þetta sagði hann við Krist, og aðeins hann: „Drottinn strengir þess heit og mun aldrei skipta um skoðun: Þú ert prestur að eilífu, að hætti Melkísedeks.“ (aiōn )
En Jesús lifir að eilífu og heldur áfram að vera prestur, þar verða engin mannaskipti. (aiōn )
Meðan hinn gamli siður var í gildi, voru æðstu prestarnir syndugir menn, veikleika háðir eins og hverjir aðrir, en seinna skipaði Guð son sinn með eiði og sonurinn er fullkominn að eilífu. (aiōn )
Hann fór með blóð inn í hið allra helgasta, í eitt skipti fyrir öll, og stökkti því á náðarstólinn. Blóð þetta var ekki blóð úr geitum eða kálfum, heldur hans eigið blóð og með því tryggði hann okkur eilíft hjálpræði. (aiōnios )
þá getið þið rétt ímyndað ykkur hvort blóð Krists muni ekki breyta hjörtum okkar og lífi! Fórn hans leysir okkur undan þeirri kvöð að þurfa að hlýða gömlu reglunum og kemur því jafnframt til leiðar að við þráum að þjóna lifandi Guði. Kristur lagði líf sitt af frjálsum vilja í hendur Guðs, með hjálp heilags anda, til að deyja fyrir syndir okkar. Hann var fullkominn og syndlaus – algjörlega lýtalaus. (aiōnios )
Kristur færði okkur þennan nýja sáttmála til þess að allir þeir, sem boðnir eru, geti komið og notið um eilífð þeirrar blessunar sem Guð hefur heitið þeim. Kristur dó til að forða okkur undan refsingunni, sem við höfðum kallað yfir okkur, vegna syndanna sem við drýgðum meðan gamli sáttmálinn var í gildi. (aiōnios )
Þá hefði hann orðið að deyja margsinnis, allt frá því heimurinn varð til. Nei, það hefði verið óhugsandi! Hann kom í eitt skipti fyrir öll, á hinum síðustu tímum, til að brjóta vald syndarinnar á bak aftur að eilífu. Það gerði hann með því að deyja fyrir okkur. (aiōn )
Með því að trúa – treysta orðum Guðs – þá skiljum við hvernig alheimurinn hefur orðið til úr engu, eftir skipun Guðs. (aiōn )
Jesús Kristur er hinn sami í gær og í dag og að eilífu. (aiōn )
Guð friðarins, sem vakti Drottin Jesú upp frá dauðum, annist allar þarfir ykkar, svo að þið getið gert vilja hans. Ég bið hann, hinn mikla hirði sauðanna, sem undirritaði eilífan sáttmála milli ykkar og Guðs með blóði sínu, (aiōnios )
að hann fullkomni ykkur í öllu góðu fyrir kraft Krists, svo að þið gerið hans vilja og séuð honum þóknanleg. Honum sé dýrðin að eilífu. Amen. (aiōn )
Tungan er logandi eldur. Hún er full illsku og eitrar allan líkamann. Tungan er tendruð af sjálfu helvíti og hún getur leitt ógn og eyðingu yfir líf okkar. (Geenna )
Nú lifið þið nýju lífi! Þetta nýja líf var ekki gjöf frá foreldrum ykkar, því að það líf sem þau gáfu ykkur, mun fjara út. Nýja lífið mun vara að eilífu, því að það er frá Kristi, honum sem er orð lífsins, boðskapur Guðs til mannanna. (aiōn )
en orð Drottins mun vara að eilífu. Boðskapur Guðs er fagnaðarerindið, sem þið hafið fengið að heyra. (aiōn )
Hafir þú fengið köllun til að predika, predikaðu þá eins og það væri sjálfur Guð sem talaði í gegnum þig. Hafir þú köllun til að hjálpa öðrum, skaltu gera það af heilum hug og af þeim krafti sem Guð gefur þér, svo að hann hljóti heiðurinn vegna Jesú Krists. Hans er mátturinn og dýrðin að eilífu. Amen. (aiōn )
En eftir að þið hafið þjáðst skamma hríð, mun Guð, sem birtir kærleika sinn í Kristi, veita ykkur af sinni eilífu dýrð. Hann mun koma sjálfur til að sækja ykkur og leiða ykkur inn í dýrð sína og gera ykkur sterkari en nokkru sinni fyrr. (aiōnios )
Hans er mátturinn um alla framtíð, öld eftir öld. Amen. (aiōn )
Þá mun Guð opna hlið himnanna fyrir ykkur upp á gátt, svo að þið getið gengið inn í hið eilífa ríki Drottins okkar og frelsara Jesú Krists. (aiōnios )
Ekki hlífði Guð englunum sem syndguðu, heldur varpaði hann þeim niður til heljar, þar sem þeir bíða dómsdags, læstir inni í dimmum og drungalegum hellum. (Tartaroō )
Vaxið heldur andlega og lærið að þekkja betur Drottin okkar og frelsara, Jesú Krist. Honum sé heiður og dýrð, bæði nú og um alla framtíð. Amen. Pétur (aiōn )
Hann er lífið frá Guði og hann hefur birst okkur. Það er sannleikur að við höfum séð hann. Ég er að tala um Krist, hann sem er eilífa lífið. Í upphafi var hann hjá föðurnum, en síðan fengum við að sjá hann. (aiōnios )
Þessi heimur mun líða undir lok og með honum allt það illa sem í honum er, en sá sem gerir Guðs vilja, mun lifa að eilífu. (aiōn )
Guð hefur heitið okkur gjöf og sú gjöf er eilíft líf. (aiōnios )
Sá sem hatar meðbróður sinn er í raun og veru morðingi og sá sem hyggur á morð, getur ekki átt eilíft líf. (aiōnios )
Hvað hefur Guð sagt? Að hann hafi gefið okkur eilíft líf og að þetta líf sé í syni hans. (aiōnios )
Þetta hef ég skrifað ykkur, sem trúið á son Guðs, til þess að þið vitið að þið eigið eilíft líf. (aiōnios )
Við vitum að Kristur, sonur Guðs, kom til að hjálpa okkur til þess að skilja og finna hinn eina sanna Guð. Nú tilheyrum við honum vegna þess að við erum í Jesú Kristi, syni hans. Hann er hinn eini sanni Guð – hann er eilífa lífið. (aiōnios )
Við höldum fast við sannleikann (aiōn )
Ég minni ykkur einnig á englana sem áður voru heilagir og hreinir, en steyptu sér síðan sjálfviljugir út í syndina. Nú geymir Guð þá í myrkrinu og þar bíða þeir dómsdags. (aïdios )
Gleymið ekki heldur borgunum Sódómu og Gómorru og nágrannabæjum þeirra. Þar ríkti siðleysi og mikil kynvilla. Þessar borgir eyðilögðust í eldi og þær munu vera okkur stöðug viðvörun um refsinguna sem bíður syndaranna. (aiōnios )
Allt, sem þeir skilja eftir, er skömm og svívirðing – eins og óhrein froða, sem öldur bera á land. Þeir reika um líkt og stjörnur á myrkum brautum himinsins. (aiōn )
Forðist allt sem hindrar líf ykkar í kærleika Guðs og bíðið með þolinmæði eilífa lífsins, sem Drottinn Jesús Kristur ætlar að gefa ykkur af miskunn sinni. (aiōnios )
Honum tilheyrir dýrð, hátign, máttur og vald frá upphafi, í dag og um ókomna tíma. Hann er þess megnugur að varðveita ykkur frá hrösun og leiða ykkur fagnandi, lýtalaus og heilög inn í dýrð sína. Amen. Júdas. (aiōn )
Hann hefur safnað okkur saman inn í ríki sitt og gert okkur að prestum Guðs, föður síns. Lofið hann og gefið honum dýrðina – alla dýrðina! Hann mun ríkja að eilífu! Amen. (aiōn )
Ég var lifandi, síðan dó ég, en nú lifi ég að eilífu. Óttastu ekki, ég hef lykla dauðans og heljar! (aiōn , Hadēs )
Verurnar gjalda honum, sem í hásætinu situr, dýrð, heiður og þökk, honum, sem lifir um aldir alda, (aiōn )
og þá falla öldungarnir tuttugu og fjórir fram fyrir auglit hans og tilbiðja hann. Þeir varpa kórónum sínum fram fyrir hásætið og syngja: (aiōn )
Þá heyrði ég alla, sem eru á himni og jörðu og einnig hina dauðu sem eru í jörðinni og hafinu, hrópa og segja: „Blessunin, heiðurinn, dýrðin og mátturinn tilheyra honum, sem í hásætinu situr, og lambinu um alla eilífð.“ (aiōn )
Þá sá ég fölbleikan hest og sá sem hann sat hét Dauði. Á hæla hans kom annar hestur og hét knapi hans Hel. Þeim var gefið vald yfir fjórðungi jarðarinnar, svo að þeir gætu eytt lífi með styrjöldum, hungursneyðum, drepsóttum og villidýrum. (Hadēs )
„Amen!“sögðu þeir. „Lofgjörðin, dýrðin, viskan, þakkargjörðin, heiðurinn, krafturinn og mátturinn sé Guði okkar um alla eilífð. Amen!“ (aiōn )
Nú blés fimmti engillinn. Þá sá ég einhvern, sem hafði fallið frá himnum og niður til jarðarinnar, og var honum fenginn lykillinn að hinum botnlausu undirdjúpum. (Abyssos )
Þegar hann opnaði þau gaus upp reykur, eins og úr stórum ofni, svo að sólin og loftið myrkvuðust. (Abyssos )
Foringi þeirra er konungur undirdjúpanna. Nafn hans er Abaddón á hebresku. Á grísku heitir hann Apollýón – eyðandinn. (Abyssos )
og sór við þann sem lifir um alla eilífð, hann sem skapaði himin og allt sem þar er, jörðina og allt sem á henni er, hafið og allt sem í því er, og sagði: „Nú er fresturinn á enda! (aiōn )
Þegar þeir hafa borið vitni í þrjú og hálft ár, mun harðstjórinn, sem stígur upp úr undirdjúpunum, lýsa yfir stríði gegn þeim, sigra þá og drepa. (Abyssos )
Rétt í því blés engillinn í lúðurinn. Þá heyrðist hrópað hárri röddu frá himnum: „Nú er allur heimurinn á valdi Drottins og í hendi Krists og hann mun ríkja um aldir alda.“ (aiōn )
Þá sá ég engil sem flaug um himininn. Hann var með eilífan gleðiboðskap til þeirra sem búa á jörðinni. Boðskapur þessi var ætlaður öllum þjóðum og þjóðarbrotum, öllum mönnum, hvaða tungumál sem þeir töluðu. (aiōnios )
Reykurinn af kvölum þeirra mun stíga upp um alla eilífð. Þeir fá enga hvíld, hvorki dag né nótt, vegna þess að þeir tilbáðu dýrið og líkneski þess og eru merktir einkennisstöfum þess. (aiōn )
Verurnar fjórar réttu þeim hverjum um sig eina gullskál. Skálarnar voru fullar af reiði Guðs, hans sem lifir um aldir alda. (aiōn )
Það var lifandi, en er það ekki lengur, og bráðlega mun það koma upp úr undirdjúpunum og fara til eilífrar glötunar. Þeir íbúar heimsins, sem ekki hafa fengið nöfnin sín skráð í bók lífsins frá því heimurinn varð til, munu undrast að dýrið skuli lifna við eftir dauðann. (Abyssos )
Aftur og aftur var endurtekið: „Dýrð sé Guði! Reykurinn frá rústum hennar mun stíga upp um alla eilífð!“ (aiōn )
Og dýrið var handtekið ásamt falsspámanninum, þeim sem gat gert mikil kraftaverk, ef dýrið var viðstatt – kraftaverk sem blekktu þá sem höfðu látið setja á sig merki dýrsins og tilbáðu líkneski þess. Þeim báðum – dýrinu og falsspámanninum – var fleygt lifandi í eldsdíkið, sem kraumar af logandi brennisteini. (Limnē Pyr )
Eftir þetta sá ég engil koma frá himni og hélt hann á lykli sem gekk að undirdjúpunum. Auk þess hafði hann meðferðis þunga hlekki. (Abyssos )
og fleygði honum í botnlausa hyldýpið. Síðan lokaði hann því og læsti og þar varð Satan að dúsa í þúsund ár. Þetta gerði engillinn til þess að Satan gæti ekki leitt þjóðirnar afvega fyrr en að þessum þúsund árum liðnum, en þá átti að láta hann lausan í stuttan tíma. (Abyssos )
Þá mun djöflinum, honum sem leiddi þjóðirnar afvega, aftur verða fleygt í díkið, sem logar af eldi og brennisteini, þar sem bæði dýrið er og falsspámaðurinn og þessir munu kveljast dag og nótt um alla eilífð. (aiōn , Limnē Pyr )
Höfin skiluðu aftur þeim sem þar voru geymdir og jörðin og undirheimarnir þeim sem þar voru. Hver og einn var dæmdur samkvæmt verkum sínum. (Hadēs )
Síðan var dauðanum og hel varpað í eldsdíkið. Þetta er hinn annar dauði: Eldsdíkið. (Hadēs , Limnē Pyr )
Sérhverjum þeim, sem ekki fannst skráður í lífsins bók, var fleygt í eldsdíkið. (Limnē Pyr )
Eldsdíkið sem logar af brennisteini, er staðurinn fyrir bleyður sem snúa við mér bakinu, þá sem eru mér ótrúir, hrakmenni, morðingja, saurlífismenn, þá sem hafa samskipti við illu andana, skurðgoðadýrkendur og alla þá sem iðka lygi – þar er hinn annar dauði.“ (Limnē Pyr )
Þar verður aldrei nótt og því engin þörf fyrir lampa eða sól, því að Drottinn Guð mun lýsa þeim og þeir munu ríkja um alla eilífð. (aiōn )
Guð mun varpa óvinum mínum til heljar, til dánarheima. Morðingjar og svikarar munu ekki ná háum aldri. En ég treysti þér, að þú leyfir mér að lifa. ()
Þeir munu sjálfir deyja sem brugga mér banaráð, og hverfa niður til heljar. ()
Þessir menn eru eins og lindir sem þornað hafa upp. Þeir lofuðu góðu, en svo brugðust þeir. Þeir eru eins og ský sem hrekjast fyrir vindi. Þeir eru dæmdir til að falla í hin eilífu hyldýpi myrkursins. ()