< Matteus 26 >
1 Þegar Jesús hafði lokið ræðu sinni, sagði hann við lærisveinana:
जब ईसा ये सब बातें ख़त्म कर चुका, तो ऐसा हुआ कि उसने अपने शागिर्दों से कहा।
2 „Þið vitið að eftir tvo daga koma páskarnir og þá verð ég svikinn og krossfestur.“
“तुम जानते हो कि दो दिन के बाद ईद — ए — फ़सहहोगी। और इब्न — ए — आदम मस्लूब होने को पकड़वाया जाएगा।”
3 Um svipað leyti héldu prestarnir fund, ásamt öðrum embættismönnum Gyðinga, í höll Kaífasar æðsta prests.
उस वक़्त सरदार काहिन और क़ौम के बुज़ुर्ग काइफ़ा नाम सरदार काहिन के दिवान खाने में जमा हुए।
4 Þeir voru að bollaleggja hvernig þeir gætu handtekið Jesú svo lítið bæri á og líflátið hann.
और मशवरा किया कि ईसा को धोखे से पकड़ कर क़त्ल करें।
5 „En ekki á sjálfum páskunum, því þá er svo margt aðkomufólk í borginni og hætt við óeirðum, “samþykktu þeir.
मगर कहते थे, “ईद में नहीं, ऐसा न हो कि लोगों में बलवा हो जाए।”
6 Jesús fór til Betaníu, heim til Símonar holdsveika.
और जब ईसा बैत अन्नियाह में शमौन जो पहले कौढ़ी था के घर में था।
7 Meðan hann mataðist, kom þangað inn kona sem hélt á flösku með mjög dýrri ilmolíu, og hellti henni yfir höfuð hans.
तो एक 'औरत संग — मरमर के इत्रदान में क़ीमती इत्र लेकर उसके पास आई, और जब वो खाना खाने बैठा तो उस के सिर पर डाला।
8 Lærisveinarnir urðu gramir og sögðu sín á milli: „Til hvers er þessi sóun? Þetta hefði mátt selja fyrir stórfé og gefa peningana fátækum.“
शागिर्द ये देख कर ख़फ़ा हुए और कहने लगे, “ये किस लिए बरबाद किया गया?
ये तो बड़ी क़ीमत में बिक कर ग़रीबों को दिया जा सकता था।”
10 Jesús las hugsanir þeirra og sagði: „Hví eruð þið að hryggja konuna? Hún gerði góðverk á mér.
ईसा' ने ये जान कर उन से कहा, “इस 'औरत को क्यूँ दुखी करते हो? इस ने तो मेरे साथ भलाई की है।
11 Þið hafið ávallt fátæka hjá ykkur, en ekki mig.
क्यूँकि ग़रीब ग़ुरबे तो हमेशा तुम्हारे पास हैं लेकिन मैं तुम्हारे पास हमेशा न रहूँगा।
12 Hún hellti ilmvatni þessu yfir mig til þess að búa líkama minn til greftrunar.
और इस ने तो मेरे दफ़्न की तैयारी के लिए इत्र मेरे बदन पर डाला।
13 Hennar mun verða minnst og þess getið sem hún gerði, hvar sem fagnaðarboðskapurinn verður fluttur.“
मैं तुम से सच कहता हूँ, कि तमाम दुनिया में जहाँ कहीं इस ख़ुशख़बरी का एलान किया जाएगा, ये भी जो इस ने किया; इस की यादगारी में कहा जाएगा।”
14 Þá fór einn postulanna tólf, Júdas Ískaríot, til æðstu prestanna
उस वक़्त उन बारह में से एक ने जिसका नाम यहूदाह इस्करियोती था; सरदार काहिनों के पास जा कर कहा,
15 og spurði: „Hve mikið viljið þið borga mér fyrir að koma Jesú í hendur ykkar?“Þeir greiddu honum þrjátíu silfurpeninga.
“अगर मैं उसे तुम्हारे हवाले कर दूँ तो मुझे क्या दोगे? उन्होंने उसे तीस रुपऐ तौल कर दे दिया।”
16 Upp frá því beið Júdas eftir hentugu tækifæri til að svíkja Jesú í hendur þeirra.
और वो उस वक़्त से उसके पकड़वाने का मौक़ा ढूँडने लगा।
17 Á fyrsta degi páskahátíðarinnar (Gyðingar fjarlægðu þegar allt súrdeig – gerbrauð – af heimilum sínum) komu lærisveinarnir til Jesú og spurðu hann: „Hvar eigum við að undirbúa páskamáltíðina?“
ईद — 'ए — फ़ितर के पहले दिन शागिर्दों ने ईसा के पास आकर कहा, “तू कहाँ चाहता है कि हम तेरे लिए फ़सह के खाने की तैयारी करें।”
18 „Farið inn í borgina, “svaraði Jesús, „finnið mann nokkurn og segið við hann: „Meistari okkar segir: Minn tími er kominn. Hjá þér vil ég halda páska með lærisveinum mínum.““
उस ने कहा, “शहर में फ़लाँ शख़्स के पास जा कर उससे कहना ‘उस्ताद फ़रमाता है’ कि मेरा वक़्त नज़दीक है मैं अपने शागिर्दों के साथ तेरे यहाँ ईद'ए फ़सह करूँगा।”
19 Lærisveinarnir gerðu eins og Jesús sagði og undirbjuggu páskamáltíðina.
और जैसा ईसा ने शागिर्दों को हुक्म दिया था, उन्होंने वैसा ही किया और फ़सह तैयार किया।
20 Þetta kvöld, þegar hann var sestur til borðs ásamt lærisveinunum tólf, sagði hann: „Ég veit að einn ykkar mun svíkja mig.“
जब शाम हुई तो वो बारह शागिर्दों के साथ खाना खाने बैठा था।
जब वो खा रहा था, तो उसने कहा, “मैं तुम से सच कहता हूँ कि तुम में से एक मुझे पकड़वाएगा।”
22 Hryggð og ótti greip lærisveinana og þeir spurðu hver um sig: „Ekki þó ég?“Jesús svaraði:
वो बहुत ही ग़मगीन हुए और हर एक उससे कहने लगे “ख़ुदावन्द, क्या मैं हूँ?”
23 „Það er sá sem ég þjónaði fyrst í kvöld.“
उस ने जवाब में कहा, “जिस ने मेरे साथ रक़ाबी में हाथ डाला है वही मुझे पकड़वाएगा।
24 „Ég verð að deyja eins og spáð var, en vei þeim manni sem því veldur. Betra væri honum að hann hefði aldrei fæðst.“
इबने आदम तो जैसा उसके हक़ में लिखा है जाता ही है लेकिन उस आदमी पर अफ़सोस जिसके वसीले से इबने आदम पकड़वाया जाता है अगर वो आदमी पैदा न होता तो उसके लिए अच्छा होता।”
25 Júdas sem varð til þess að svíkja hann, spurði líka: „Er það ég?“Og Jesús svaraði: „Já.“
उसके पकड़वाने वाले यहूदाह ने जवाब में कहा “ऐ रब्बी क्या मैं हूँ?” उसने उससे कहा “तूने ख़ुद कह दिया।”
26 Meðan á máltíðinni stóð tók Jesús brauð, blessaði það og braut í sundur, rétti lærisveinunum og sagði: „Takið þetta og neytið, það er líkami minn.“
जब वो खा रहे थे तो ईसा' ने रोटी ली और — और बर्क़त देकर तोड़ी और शागिर्दों को देकर कहा, “लो, खाओ, ये मेरा बदन है।”
27 Og hann tók bikar með víni, gjörði þakkir, rétti þeim og sagði: „Drekkið allir hér af,
फिर प्याला लेकर शुक्र किया और उनको देकर कहा “तुम सब इस में से पियो।
28 því þetta er blóð mitt, innsigli nýja sáttmálans. Því er úthellt til syndafyrirgefningar fyrir marga.
क्यूँकि ये मेरा वो अहद का ख़ून है जो बहुतों के गुनाहों की मु'आफ़ी के लिए बहाया जाता है।
29 Takið eftir þessum orðum mínum: Ég mun ekki drekka vín á ný fyrr en ég drekk það nýtt með ykkur í ríki föður míns.“
मैं तुम से कहता हूँ, कि अंगूर का ये शीरा फिर कभी न पियूँगा, उस दिन तक कि तुम्हारे साथ अपने बाप की बादशाही में नया न पियूँ।”
30 Þegar þeir höfðu sungið lofsöng fóru þeir út til Olíufjallsins.
फिर वो हम्द करके बाहर ज़ैतून के पहाड़ पर गए।
31 Jesús sagði við þá: „Í nótt munuð þið allir yfirgefa mig. Í Ritningunni stendur að Guð muni slá hirðinn og hjörðin tvístrast.
उस वक़्त ईसा' ने उनसे कहा “तुम सब इसी रात मेरी वजह से ठोकर खाओगे क्यूँकि लिखा है; मैं चरवाहे को मारूँगा और गल्ले की भेंड़े बिखर जाएँगी।
32 En eftir að ég er risinn upp frá dauðum fer ég til Galíleu og hitti ykkur þar.“
लेकिन मैं अपने जी उठने के बाद तुम से पहले गलील को जाऊँगा।”
33 „Þótt allir aðrir yfirgefi þig, mun ég ekki gera það, “sagði Pétur.
पतरस ने जवाब में उससे कहा, “चाहे सब तेरी वजह से ठोकर खाएँ, लेकिन में कभी ठोकर न खाऊँगा।”
34 Jesús svaraði: „Sannleikurinn er þó sá, að einmitt í nótt, áður en hani galar við sólarupprás, munt þú afneita mér þrisvar.“
ईसा' ने उससे कहा, “मैं तुझसे सच कहता हूँ, इसी रात मुर्ग़ के बाँग देने से पहले, तू तीन बार मेरा इन्कार करेगा।”
35 „Fyrr mun ég deyja!“svaraði Pétur og allir hinir tóku í sama streng.
पतरस ने उससे कहा, “अगर तेरे साथ मुझे मरना भी पड़े। तोभी तेरा इन्कार हरगिज़ न करूँगा।” और सब शागिर्दो ने भी इसी तरह कहा।
36 Jesús fór síðan með lærisveinana inn í garð sem heitir Getsemane, og bað þá að setjast niður meðan hann færi spölkorn lengra til að biðjast fyrir.
उस वक़्त ईसा' उनके साथ गतसिमनी नाम एक जगह में आया और अपने शागिर्दों से कहा। “यहीं बैठे रहना जब तक कि मैं वहाँ जाकर दुआ करूँ।”
37 Hann fékk með sér þá Pétur og bræðurna Jakob og Jóhannes Sebedeussyni. Mikill ótti og örvænting kom yfir Jesú og hann sagði:
और पतरस और ज़ब्दी के दोनों बेटों को साथ लेकर ग़मगीन और बेक़रार होने लगा।
38 „Sál mín er buguð af ótta og angist allt til dauða. Bíðið hér og vakið með mér.“
उस वक़्त उसने उनसे कहा, “मेरी जान निहायत ग़मगीन है यहाँ तक कि मरने की नौबत पहुँच गई है, तुम यहाँ ठहरो, और मेरे साथ जागते रहो।”
39 Hann gekk lítið eitt lengra, hneig til jarðar og bað: „Faðir minn! Taktu þennan bikar frá mér ef mögulegt er, en verði þó þinn vilji en ekki minn.“
फिर ज़रा आगे बढ़ा और मुँह के बल गिर कर यूँ दुआ की, “ऐ मेरे बाप, अगर हो सके तो ये दुःख का प्याला मुझ से टल जाए, तोभी न जैसा मैं चाहता हूँ; बल्कि जैसा तू चाहता है वैसा ही हो।”
40 Síðan kom hann aftur til lærisveinanna þriggja og fann þá sofandi. „Pétur!“kallaði hann, „gastu ekki einu sinni vakað með mér eina stund?
फिर शागिर्दों के पास आकर उनको सोते पाया और पतरस से कहा, “क्या तुम मेरे साथ एक घड़ी भी न जाग सके?
41 Vakið og biðjið, til þess að þið fallið ekki í freistni. Andinn er fús, en holdið er veikt!“
जागते और दुआ करते रहो ताकि आज़्माइश में न पड़ो, रूह तो मुस्त'इद है मगर जिस्म कमज़ोर है।”
42 Hann fór frá þeim aftur og bað: „Faðir! Ef ekki er unnt að taka þennan bikar frá mér án þess að ég tæmi hann, þá verði þinn vilji.“
फिर दोबारा उसने जाकर यूँ दुआ की “ऐ मेरे बाप अगर ये मेरे पिए बग़ैर नहीं टल सकता तो तेरी मर्ज़ी पूरी हो।”
43 Síðan sneri hann aftur til þeirra og fann þá enn sofandi, því þeir gátu ekki haldið augunum opnum.
और आकर उन्हें फिर सोते पाया, क्यूँकि उनकी आँखें नींद से भरी थीं।
44 Hann yfirgaf þá enn og baðst fyrir í þriðja sinn með sömu orðum.
और उनको छोड़ कर फिर चला गया, और फिर वही बात कह कर तीसरी बार दुआ की।
45 Eftir það fór hann aftur til lærisveinanna og sagði: „Sofið þið enn og hvílist? Stundin er komin! Ég hef verið svikinn í hendur vondra manna.
तब शागिर्दों के पास आकर उसने कहा “अब सोते रहो, और आराम करो, देखो वक़्त आ पहुँचा है, और इबने आदम गुनाहगारों के हवाले किया जाता है।
46 Standið upp, förum! Sjáið! Þarna kemur sá sem svíkur mig.“
उठो चलें, देखो, मेरा पकड़वाने वाला नज़दीक आ पहुँचा है।”
47 Meðan hann var enn að tala kom Júdas, einn postulana tólf, og með honum fjöldi manna, sem vopnaðir voru sverðum og bareflum. Þessa menn höfðu leiðtogar Gyðinga sent.
वो ये कह ही रहा था, कि यहूदाह जो उन बारह में से एक था, आया, और उसके साथ एक बड़ी भीड़ तलवारें और लाठियाँ लिए सरदार काहिनों और क़ौम के बुज़ुर्गों की तरफ़ से आ पहुँची।
48 Júdas hafði sagt þeim að handtaka þann sem hann heilsaði með kossi, því að hann væri maðurinn sem þeir vildu ná.
और उसके पकड़वाने वाले ने उनको ये निशान दिया था, जिसका मैं बोसा लूँ वही है उसे पकड़ लेना।
49 Júdas gekk því beint til Jesú og sagði: „Sæll, meistari!“
और फ़ौरन उसने ईसा के पास आ कर कहा, “ऐ रब्बी सलाम!” और उसके बोसे लिए।
50 „Vinur minn, “sagði Jesús, „hvers vegna komstu hingað?“Þá gripu sendimennirnir Jesú.
ईसा' ने उससे कहा, “मियाँ! जिस काम को आया है वो कर ले”। इस पर उन्होंने पास आकर ईसा' पर हाथ डाला और उसे पकड़ लिया।
51 Einn lærisveina Jesú dró þá sverð úr slíðrum og hjó annað eyrað af þjóni æðsta prestsins.
और देखो, ईसा के साथियों में से एक ने हाथ बढ़ा कर अपनी तलवार खींची और सरदार काहिन के नौकर पर चला कर उसका कान उड़ा दिया।
52 „Slíðraðu sverðið!“sagði Jesús. „Þeir sem beita sverði munu falla fyrir sverði.
ईसा' ने उससे कहा, “अपनी तलवार को मियान में कर क्यूँकि जो तलवार खींचते हैं वो सब तलवार से हलाक किए जाएँगे।
53 Veistu ekki að ég gæti beðið föður minn um þúsundir engla okkur til varnar og hann mundi þegar í stað senda þá?
क्या तू नहीं समझता कि मैं अपने बाप से मिन्नत कर सकता हूँ, और वो फ़रिश्तों के बारह पलटन से ज़्यादा मेरे पास अभी मौजूद कर देगा?
54 En hvernig ættu orð Biblíunnar þá að rætast?“
मगर वो लिखे हुए का यूँ ही होना ज़रूर है क्यूँ कर पूरे होंगे?”
55 Síðan ávarpaði Jesús mennina og sagði: „Er ég hættulegur afbrotamaður, fyrst þið þurftuð að koma vopnaðir sverðum og bareflum til að handtaka mig? Ég hef gengið um á meðal ykkar og kennt daglega í musterinu en þið handtókuð mig ekki.
उसी वक़्त ईसा' ने भीड़ से कहा, “क्या तुम तलवारें और लाठियाँ लेकर मुझे डाकू की तरह पकड़ने निकले हो? मैं हर रोज़ हैकल में बैठकर ता'लीम देता था, और तुमने मुझे नहीं पकड़ा।
56 En þetta, sem nú er að gerast er uppfylling spádóma Biblíunnar.“Þá yfirgáfu allir lærisveinarnir hann og flúðu.
मगर ये सब कुछ इसलिए हुआ कि नबियों की नबुव्वत पूरी हों।” इस पर सब शागिर्द उसे छोड़ कर भाग गए।
57 Þeir sem handtóku Jesú fóru nú með hann til bústaðar Kaífasar, æðsta prestsins, því þar voru allir leiðtogar Gyðinga saman komnir.
और ईसा के पकड़ने वाले उसको काइफ़ा नाम सरदार काहिन के पास ले गए, जहाँ आलिम और बुज़ुर्ग जमा हुए थे।
58 Pétur læddist í humátt á eftir og smeygði sér inn í hallargarð æðsta prestsins og settist niður hjá þjónunum. Þar beið hann þess að sjá hvað yrði um Jesú.
और पतरस दूर — दूर उसके पीछे — पीछे सरदार काहिन के दिवानख़ाने तक गया, और अन्दर जाकर प्यादों के साथ नतीजा देखने को बैठ गया।
59 Æðstu prestarnir – og reyndar allur hæstiréttur Gyðinga – leituðu nú manna er borið gætu lognar sakir á Jesú. Ætlun þeirra var að höfða mál gegn honum og fá hann dæmdan til dauða.
सरदार काहिन और सब सद्रे — ए 'अदालत वाले ईसा को मार डालने के लिए उसके ख़िलाफ़ झूठी गवाही ढूँडने लगे।
60 En þótt þeir fyndu marga sem vildu bera falsvitni, þá bar vitnisburði þeirra ekki saman. Að lokum fundust þó tveir sem sögðu: „Þessi maður sagði: „Ég er fær um að brjóta niður musteri Guðs og reisa það aftur á þrem dögum.““
मगर न पाई, गरचे बहुत से झूठे गवाह आए, लेकिन आख़िरकार दो गवाहों ने आकर कहा,
“इस ने कहा है, कि मैं ख़ुदा के मक़दिस को ढा सकता और तीन दिन में उसे बना सकता हूँ।”
62 Þá stóð æðsti presturinn upp og sagði við Jesú: „Sagðir þú þetta? Svaraðu! Já, eða nei!“
और सरदार काहिन ने खड़े होकर उससे कहा, “तू जवाब नहीं देता? ये तेरे ख़िलाफ़ क्या गवाही देते हैं?”
63 Jesús þagði. Þá hélt æðsti presturinn áfram og sagði: „Ég krefst þess í nafni hins lifandi Guðs, að þú svarir eftirfarandi spurningu: Heldur þú því fram að þú sért Kristur, Guðssonurinn?“
मगर ईसा ख़ामोश ही रहा, सरदार काहिन ने उससे कहा, “मैं तुझे ज़िन्दा ख़ुदा की क़सम देता हूँ, कि अगर तू ख़ुदा का बेटा मसीह है तो हम से कह दे?”
64 „Já, ég er hann og þú munt síðar sjá mig, Krist, sitja við hægri hönd Guðs og koma á skýjum himinsins, “svaraði Jesús.
ईसा' ने उससे कहा, “तू ने ख़ुद कह दिया बल्कि मैं तुम से कहता हूँ, कि इसके बाद इबने आदम को क़ादिर — ए मुतल्लिक़ की दहनी तरफ़ बैठे और आसमान के बादलों पर आते देखोगे।”
65 Þá reif æðsti presturinn klæði sín og hrópaði: „Guðlast! Nú þurfum við ekki frekar vitnanna við. Þið heyrðuð hann allir segja það! Hver er nú dómur ykkar?“Þeir hrópuðu: „Hann skal deyja!“
इस पर सरदार काहिन ने ये कह कर अपने कपड़े फाड़े “उसने कुफ़्र बका है अब हम को गवाहों की क्या ज़रूरत रही? देखो, तुम ने अभी ये कुफ़्र सुना है।
तुम्हारी क्या राय है? उन्होंने जवाब में कहा, वो क़त्ल के लायक़ है।”
67 Síðan hræktu þeir í andlit hans og slógu með prikum og sögðu:
इस पर उन्होंने उसके मुँह पर थूका और उसके मुक्के मारे और कुछ ने तमाचे मार कर कहा।
68 „Kristur! Gettu hver sló þig núna?“
“ऐ मसीह, हमें नुबुव्वत से बता कि तुझे किस ने मारा।”
69 Á meðan þetta fór fram sat Pétur úti í hallargarðinum. Þá kom til hans stúlka og sagði: „Þú varst líka með Jesú og þið eruð báðir frá Galíleu.“
पतरस बाहर सहन में बैठा था, कि एक लौंडी ने उसके पास आकर कहा, “तू भी ईसा गलीली के साथ था।”
70 Þessu neitaði Pétur svo allir heyrðu og hrópaði reiðilega: „Ég veit ekki um hvað þú ert að tala!“
उसने सबके सामने ये कह कर इन्कार किया “मैं नहीं जानता तू क्या कहती है।”
71 Seinna tók önnur stúlka eftir honum úti við hliðið og sagði við nærstadda: „Þessi maður var með Jesú frá Nasaret.“
और जब वो डेवढ़ी में चला गया तो दूसरी ने उसे देखा, और जो वहाँ थे, उनसे कहा, “ये भी ईसा नासरी के साथ था।”
72 Pétur sór og sárt við lagði: „Ég þekki alls ekki manninn.“
उसने क़सम खा कर फिर इन्कार किया “मैं इस आदमी को नहीं जानता।”
73 Stuttu seinna komu þeir, sem þarna stóðu, til Péturs og sögðu: „Við vitum vel að þú ert einn af lærisveinum hans, því við heyrum á málfari þínu að þú ert frá Galíleu.“
थोड़ी देर के बाद जो वहाँ खड़े थे, उन्होंने पतरस के पास आकर कहा, “बेशक तू भी उन में से है, क्यूँकि तेरी बोली से भी ज़ाहिर होता है।”
74 Þá tók Pétur að blóta og sverja og sagði: „Ég þekki alls ekki þennan mann!“Og um leið og hann sleppti orðinu gól hani. Þá minntist Pétur orða Jesú:
इस पर वो ला'नत करने और क़सम खाने लगा “मैं इस आदमी को नहीं जानता!” और फ़ौरन मुर्ग़ ने बाँग दी।
75 „Áður en hani galar, muntu þrisvar afneita mér.“Og hann gekk út fyrir og grét sárt.
पतरस को ईसा' की वो बात याद आई जो उसने कही थी: “मुर्ग़ के बाँग देने से पहले तू तीन बार मेरा इन्कार करेगा।” और वो बाहर जाकर ज़ार ज़ार रोया।