< Markús 14 >

1 Tveim dögum síðar hófst páskahátíðin – en þá neyta Gyðingar ekki brauðs með súru geri. Æðstu prestarnir og aðrir leiðtogar þjóðarinnar voru enn að leita að tækifæri til að handtaka Jesú svo lítið bæri á og lífláta hann.
ܒܬܪ ܕܝܢ ܬܪܝܢ ܝܘܡܝܢ ܗܘܐ ܗܘܐ ܦܨܚܐ ܕܦܛܝܪܐ ܘܒܥܝܢ ܗܘܘ ܪܒܝ ܟܗܢܐ ܘܤܦܪܐ ܐܝܟܢܐ ܒܢܟܠܐ ܢܐܚܕܘܢ ܘܢܩܛܠܘܢܝܗܝ
2 „En það er útilokað á páskahátíðinni, “sögðu þeir, „því þá færi allt í bál og brand.“
ܘܐܡܪܝܢ ܗܘܘ ܠܐ ܒܥܕܥܕܐ ܕܠܡܐ ܢܗܘܐ ܫܓܘܫܝܐ ܒܥܡܐ
3 Jesús var um þessar mundir staddur í Betaníu, heima hjá Símoni holdsveika. Meðan þeir voru að borða kvöldverð, kom kona inn með fallega flösku með dýrri ilmolíu. Hún braut innsiglið af flöskunni og hellti innihaldinu yfir höfuð Jesú.
ܘܟܕ ܗܘ ܐܝܬܘܗܝ ܒܒܝܬ ܥܢܝܐ ܒܒܝܬܗ ܕܫܡܥܘܢ ܓܪܒܐ ܟܕ ܤܡܝܟ ܐܬܬ ܐܢܬܬܐ ܕܐܝܬ ܥܠܝܗ ܫܛܝܦܬܐ ܕܒܤܡܐ ܕܢܪܕܝܢ ܪܫܝܐ ܤܓܝ ܕܡܝܐ ܘܦܬܚܬܗ ܘܐܫܦܥܬܗ ܥܠ ܪܫܗ ܕܝܫܘܥ
4 Sumir, sem þarna voru, hneyksluðust á þessari „sóun“eins og þeir kölluðu það. „Hvað á þetta að þýða, “tautuðu þeir. „Hún hefði getað selt ilmolíuna fyrir stórfé og gefið það fátækum.“
ܐܝܬ ܗܘܘ ܕܝܢ ܐܢܫܐ ܡܢ ܬܠܡܝܕܐ ܕܐܬܒܐܫ ܠܗܘܢ ܒܢܦܫܗܘܢ ܘܐܡܪܘ ܕܠܡܢܐ ܗܘܐ ܐܒܕܢܐ ܕܗܢܐ ܒܤܡܐ
5
ܡܫܟܚ ܗܘܐ ܓܝܪ ܠܡܙܕܒܢܘ ܝܬܝܪ ܡܢ ܬܠܬܡܐܐ ܕܝܢܪܝܢ ܘܠܡܬܝܗܒܘ ܠܡܤܟܢܐ ܘܡܙܕܥܦܝܢ ܗܘܘ ܒܗ
6 „Látið hana í friði, “sagði Jesús. „Af hverju gagnrýnið þið hana fyrir gott verk?
ܗܘ ܕܝܢ ܝܫܘܥ ܐܡܪ ܫܘܒܩܘܗ ܡܢܐ ܡܗܪܝܢ ܐܢܬܘܢ ܠܗ ܥܒܕܐ ܫܦܝܪܐ ܥܒܕܬ ܠܘܬܝ
7 Fátæka hafið þið ávallt hjá ykkur og þeim getið þið liðsinnt hvenær sem þið viljið, en mig hafið þið ekki ávallt.
ܒܟܠܙܒܢ ܓܝܪ ܡܤܟܢܐ ܐܝܬ ܠܟܘܢ ܥܡܟܘܢ ܘܐܡܬܝ ܕܨܒܝܢ ܐܢܬܘܢ ܡܫܟܚܝܢ ܐܢܬܘܢ ܕܬܥܒܕܘܢ ܠܗܘܢ ܕܫܦܝܪ ܐܢܐ ܕܝܢ ܠܐ ܒܟܠܙܒܢ ܐܝܬܝ ܠܘܬܟܘܢ
8 Hún gerði það sem hún gat og hún hefur smurt líkama minn fyrir fram til greftrunar.
ܗܘ ܕܐܝܬ ܗܘܐ ܠܗ ܠܗܕܐ ܥܒܕܬ ܘܩܕܡܬ ܐܝܟ ܕܠܩܒܘܪܬܐ ܒܤܡܬ ܓܘܫܡܝ
9 Ég segi ykkur satt: Hvar sem fagnaðarerindið verður boðað í þessum heimi, mun þess getið sem hún gerði og það lofað.“
ܘܐܡܝܢ ܐܡܪ ܐܢܐ ܠܟܘܢ ܕܟܠ ܐܝܟܐ ܕܬܬܟܪܙ ܤܒܪܬܝ ܗܕܐ ܒܟܠܗ ܥܠܡܐ ܘܐܦ ܡܕܡ ܕܥܒܕܬ ܗܕܐ ܢܬܡܠܠ ܠܕܘܟܪܢܗ
10 Þegar hér var komið, fór Júdas Ískaríot til æðstu prestanna, staðráðinn í að svíkja Jesú í hendur þeirra.
ܝܗܘܕܐ ܕܝܢ ܤܟܪܝܘܛܐ ܚܕ ܡܢ ܬܪܥܤܪ ܐܙܠ ܠܘܬ ܪܒܝ ܟܗܢܐ ܐܝܟ ܕܢܫܠܡܝܘܗܝ ܠܗܘܢ ܠܝܫܘܥ
11 Þegar þeim varð ljóst erindi Júdasar, lifnaði yfir þeim og þeir hétu honum launum. Eftir það leitaði Júdas að hentugu tækifæri til að svíkja Jesú.
ܗܢܘܢ ܕܝܢ ܟܕ ܫܡܥܘ ܚܕܝܘ ܘܐܫܬܘܕܝܘ ܟܤܦܐ ܕܢܬܠܘܢ ܠܗ ܘܒܥܐ ܗܘܐ ܠܗ ܦܠܥܐ ܕܢܫܠܡܝܘܗܝ
12 Á fyrsta degi páskahátíðarinnar, þegar lömbunum var slátrað, spurðu lærisveinar Jesú hann hvar hann ætlaði að neyta páskamáltíðarinnar.
ܘܒܝܘܡܐ ܩܕܡܝܐ ܕܦܛܝܪܐ ܕܒܗ ܕܒܚܝܢ ܝܗܘܕܝܐ ܦܨܚܐ ܐܡܪܝܢ ܠܗ ܬܠܡܝܕܘܗܝ ܐܝܟܐ ܨܒܐ ܐܢܬ ܕܢܐܙܠ ܢܛܝܒ ܠܟ ܕܬܐܟܘܠ ܦܨܚܐ
13 Þá sendi hann tvo þeirra til Jerúsalem til að undirbúa máltíðina. „Þegar þið komið inn í borgina, “sagði hann, „munuð þið sjá mann koma á móti ykkur með vatnskrús. Fylgið honum eftir.
ܘܫܕܪ ܬܪܝܢ ܡܢ ܬܠܡܝܕܘܗܝ ܘܐܡܪ ܠܗܘܢ ܙܠܘ ܠܡܕܝܢܬܐ ܘܗܐ ܦܓܥ ܒܟܘܢ ܓܒܪܐ ܕܫܩܝܠ ܡܐܢܐ ܕܡܝܐ ܙܠܘ ܒܬܪܗ
14 Þar sem hann fer inn í hús, skuluð þið segja við húsráðandann: „Meistari okkar sendi okkur til að líta á herbergið, sem þú ætlaðir okkur til að neyta páskamáltíðarinnar í.“
ܘܠܐܝܟܐ ܕܥܐܠ ܐܡܪܘ ܠܡܪܐ ܒܝܬܐ ܪܒܢ ܐܡܪ ܐܝܟܘ ܒܝܬ ܡܫܪܝܐ ܐܝܟܐ ܕܐܟܘܠ ܥܡ ܬܠܡܝܕܝ ܦܨܚܐ
15 Þá mun hann fara með ykkur upp á loft og inn í stórt herbergi, búið þægindum. Þar skuluð þið undirbúa kvöldmáltíð okkar.“
ܘܗܐ ܡܚܘܐ ܠܟܘܢ ܥܠܝܬܐ ܪܒܬܐ ܕܡܫܘܝܐ ܘܡܛܝܒܐ ܬܡܢ ܬܩܢܘ ܠܢ
16 Lærisveinarnir tveir fóru því til borgarinnar og fundu allt eins og Jesús hafði sagt og undirbjuggu hátíðarverðinn.
ܘܢܦܩܘ ܬܠܡܝܕܘܗܝ ܘܐܬܘ ܠܡܕܝܢܬܐ ܘܐܫܟܚܘ ܐܝܟܢܐ ܕܐܡܪ ܠܗܘܢ ܘܛܝܒܘ ܦܨܚܐ
17 Um kvöldið kom Jesús ásamt lærisveinunum.
ܘܟܕ ܗܘܐ ܪܡܫܐ ܐܬܐ ܥܡ ܬܪܥܤܪܬܗ
18 Þegar þeir voru sestir við borðið sagði Jesús: „Ég segi ykkur satt: Einn ykkar mun svíkja mig, einn ykkar, sem hér sitjið og borðið með mér.“
ܘܟܕ ܤܡܝܟܝܢ ܘܠܥܤܝܢ ܐܡܪ ܝܫܘܥ ܐܡܝܢ ܐܡܪ ܐܢܐ ܠܟܘܢ ܕܚܕ ܡܢܟܘܢ ܕܐܟܠ ܥܡܝ ܗܘ ܢܫܠܡܢܝ
19 Lærisveinunum brá mjög við þessi orð og mikil spenna lá í loftinu. „Er það ég?“spurðu þeir einn af öðrum.
ܗܢܘܢ ܕܝܢ ܫܪܝܘ ܡܬܬܥܝܩܝܢ ܘܐܡܪܝܢ ܠܗ ܚܕ ܚܕ ܠܡܐ ܐܢܐ
20 „Já, það er einn ykkar tólf, sem nú borðið hér með mér, “svaraði Jesús.
ܗܘ ܕܝܢ ܐܡܪ ܠܗܘܢ ܚܕ ܡܢ ܬܪܥܤܪ ܕܨܒܥ ܥܡܝ ܒܠܓܬܐ
21 „Ég verð að deyja eins og spámennirnir sögðu fyrir, en mikil er ógæfa þess sem mig svíkur. Betra væri að hann hefði aldrei fæðst.“
ܘܒܪܗ ܕܐܢܫܐ ܐܙܠ ܐܝܟܢܐ ܕܟܬܝܒ ܥܠܘܗܝ ܘܝ ܕܝܢ ܠܓܒܪܐ ܗܘ ܕܒܐܝܕܗ ܡܫܬܠܡ ܒܪܗ ܕܐܢܫܐ ܦܩܚ ܗܘܐ ܠܗ ܠܓܒܪܐ ܗܘ ܐܠܘ ܠܐ ܐܬܝܠܕ
22 Meðan á máltíðinni stóð tók Jesús brauð, og þakkaði Guði. Hann braut það í bita, rétti þeim og sagði: „Borðið þetta – það er líkami minn.“
ܘܟܕ ܗܢܘܢ ܠܥܤܝܢ ܢܤܒ ܝܫܘܥ ܠܚܡܐ ܘܒܪܟ ܘܩܨܐ ܘܝܗܒ ܠܗܘܢ ܘܐܡܪ ܠܗܘܢ ܤܒܘ ܗܢܐ ܐܝܬܘܗܝ ܦܓܪܝ
23 Síðan tók hann bikar með víni, þakkaði og rétti þeim og þeir drukku allir af honum.
ܘܢܤܒ ܟܤܐ ܘܐܘܕܝ ܘܒܪܟ ܘܝܗܒ ܠܗܘܢ ܘܐܫܬܝܘ ܡܢܗ ܟܠܗܘܢ
24 Síðan sagði hann: „Þetta er blóð mitt, sem úthellt er fyrir marga. Það er innsigli hins nýja sáttmála milli Guðs og manna.
ܘܐܡܪ ܠܗܘܢ ܗܢܘ ܕܡܝ ܕܕܝܬܩܐ ܚܕܬܐ ܕܚܠܦ ܤܓܝܐܐ ܡܬܐܫܕ
25 Ég segi ykkur satt að ég mun ekki bragða vín fyrr en ég drekk nýja vínið í guðsríki.“
ܐܡܝܢ ܐܡܪ ܐܢܐ ܠܟܘܢ ܕܬܘܒ ܠܐ ܐܫܬܐ ܡܢ ܝܠܕܐ ܕܓܦܬܐ ܥܕܡܐ ܠܝܘܡܐ ܗܘ ܕܒܗ ܐܫܬܝܘܗܝ ܚܕܬܐܝܬ ܒܡܠܟܘܬܗ ܕܐܠܗܐ
26 Síðan sungu þeir sálm og að því búnu fóru þeir út til Olíufjallsins.
ܘܫܒܚܘ ܘܢܦܩܘ ܠܛܘܪ ܙܝܬܐ
27 „Þið munuð allir yfirgefa mig, “sagði Jesús, „því Guðs orð segir: „Ég mun slá hirðinn og hjörðin mun tvístrast.“
ܘܐܡܪ ܠܗܘܢ ܝܫܘܥ ܕܟܠܟܘܢ ܬܬܟܫܠܘܢ ܒܝ ܒܗܢܐ ܠܠܝܐ ܟܬܝܒ ܓܝܪ ܕܐܡܚܐ ܠܪܥܝܐ ܘܢܬܒܕܪܘܢ ܐܡܪܘܗܝ
28 En eftir að ég er risinn upp frá dauðum, mun ég fara til Galíleu og hitta ykkur þar.“
ܐܠܐ ܡܐ ܕܩܡܬ ܩܕܡ ܐܢܐ ܠܟܘܢ ܠܓܠܝܠܐ
29 Þá sagði Pétur: „Ég mun aldrei yfirgefa þig, hvað sem hinir gera.“
ܐܡܪ ܠܗ ܟܐܦܐ ܐܢ ܟܠܗܘܢ ܢܬܟܫܠܘܢ ܐܠܐ ܠܐ ܐܢܐ
30 „Pétur, “sagði Jesús, „áður en haninn hefur galað tvisvar í fyrramálið muntu þrisvar afneita mér.“
ܐܡܪ ܠܗ ܝܫܘܥ ܐܡܝܢ ܐܡܪ ܐܢܐ ܠܟ ܕܐܢܬ ܝܘܡܢܐ ܒܠܠܝܐ ܗܢܐ ܩܕܡ ܕܢܩܪܐ ܬܪܢܓܠܐ ܬܪܬܝܢ ܙܒܢܝܢ ܬܠܬ ܬܟܦܘܪ ܒܝ
31 „Nei!“hrópaði Pétur. „Ég mun aldrei afneita þér, jafnvel þótt ég ætti að deyja með þér.“Og allir hinir tóku í sama streng.
ܗܘ ܕܝܢ ܝܬܝܪܐܝܬ ܐܡܪ ܗܘܐ ܕܐܢ ܢܗܘܐ ܠܝ ܠܡܡܬ ܥܡܟ ܠܐ ܐܟܦܘܪ ܒܟ ܡܪܝ ܘܐܟܘܬܗ ܐܦ ܟܠܗܘܢ ܐܡܪܘ
32 Þeir komu í garð sem heitir Getsemane og þar sagði Jesús við lærisveinana: „Setjist hérna og bíðið meðan ég fer og biðst fyrir.“
ܘܐܬܘ ܠܕܘܟܬܐ ܐܝܕܐ ܕܡܬܩܪܝܐ ܓܕܤܡܢ ܘܐܡܪ ܠܬܠܡܝܕܘܗܝ ܬܒܘ ܗܪܟܐ ܥܕ ܡܨܠܐ ܐܢܐ
33 Síðan gekk hann lengra ásamt Pétri, Jakobi og Jóhannesi. Þá varð hann angistarfullur og tók að skjálfa.
ܘܕܒܪ ܥܡܗ ܠܟܐܦܐ ܘܠܝܥܩܘܒ ܘܠܝܘܚܢܢ ܘܫܪܝ ܠܡܬܟܡܪܘ ܘܠܡܬܬܥܩܘ
34 Hann sagði við þá: „Ég er hryggur og fullur örvæntingar á stund dauðans – bíðið hér og vakið með mér.“
ܘܐܡܪ ܠܗܘܢ ܟܪܝܐ ܗܝ ܠܗ ܠܢܦܫܝ ܥܕܡܐ ܠܡܘܬܐ ܩܘܘ ܗܪܟܐ ܘܐܬܬܥܝܪܘ
35 Hann gekk spölkorn lengra, féll til jarðar og bað þess að sú hræðilega stund, sem biði hans, rynni aldrei upp, ef unnt væri.
ܘܩܪܒ ܩܠܝܠ ܘܢܦܠ ܥܠ ܐܪܥܐ ܘܡܨܠܐ ܗܘܐ ܕܐܢ ܡܫܟܚܐ ܬܥܒܪ ܡܢܗ ܫܥܬܐ
36 „Faðir, “sagði hann, „allt er þér mögulegt. Taktu þennan þjáningarbikar frá mér, en verði samt þinn vilji en ekki minn.“
ܘܐܡܪ ܐܒܐ ܐܒܝ ܟܠ ܡܕܡ ܡܫܟܚ ܐܢܬ ܐܥܒܪ ܡܢܝ ܟܤܐ ܗܢܐ ܐܠܐ ܠܐ ܨܒܝܢܝ ܕܝܠܝ ܐܠܐ ܕܝܠܟ
37 Síðan gekk hann þangað sem lærisveinarnir þrír voru og fann þá sofandi. „Símon!“sagði hann. „Ertu sofandi? Gastu ekki einu sinni vakað með mér eina stund?
ܘܐܬܐ ܐܫܟܚ ܐܢܘܢ ܟܕ ܕܡܟܝܢ ܘܐܡܪ ܠܟܐܦܐ ܫܡܥܘܢ ܕܡܟܬ ܠܟ ܠܐ ܐܫܟܚܬ ܚܕܐ ܫܥܐ ܠܡܬܬܥܪܘ
38 Vakið og biðjið til þess að þið fallið ekki í freistni. Þótt andinn sé fús, er holdið veikt.“
ܐܬܬܥܝܪܘ ܘܨܠܘ ܕܠܐ ܬܥܠܘܢ ܠܢܤܝܘܢܐ ܪܘܚܐ ܨܒܝܐ ܘܡܛܝܒܐ ܐܠܐ ܦܓܪܐ ܟܪܝܗ
39 Síðan fór hann aftur frá þeim og bað sömu bænar.
ܘܐܙܠ ܬܘܒ ܨܠܝ ܘܗܝ ܡܠܬܐ ܐܡܪ
40 Eftir það kom hann til þeirra og fann þá enn sofandi. Þeir voru mjög þreyttir og vissu ekki hvað þeir áttu að segja.
ܘܗܦܟ ܐܬܐ ܬܘܒ ܐܫܟܚ ܐܢܘܢ ܟܕ ܕܡܟܝܢ ܡܛܠ ܕܥܝܢܝܗܘܢ ܝܩܝܪܢ ܗܘܝ ܘܠܐ ܝܕܥܝܢ ܗܘܘ ܡܢܐ ܢܐܡܪܘܢ ܠܗ
41 Í þriðja skipti kom hann til þeirra og sagði: „Sofið þið enn og hvílist? Nú er ekki tími til að sofa! Ég hef verið svikinn í hendur vondra manna.
ܘܐܬܐ ܕܬܠܬ ܙܒܢܝܢ ܘܐܡܪ ܠܗܘܢ ܕܡܟܘ ܡܟܝܠ ܘܐܬܬܢܝܚܘ ܡܛܬ ܚܪܬܐ ܘܐܬܬ ܫܥܬܐ ܘܗܐ ܡܫܬܠܡ ܒܪܗ ܕܐܢܫܐ ܒܐܝܕܝܗܘܢ ܕܚܛܝܐ
42 Standið upp, við verðum að fara! Sjáið! Svikari minn er að koma!“
ܩܘܡܘ ܢܐܙܠ ܗܐ ܩܪܒ ܗܘ ܕܡܫܠܡ ܠܝ
43 Áður en hann hafði sleppt orðinu, kom Júdas (einn af lærisveinum hans) með hóp manna vopnaða sverðum og kylfum. Menn þessa höfðu æðstu prestarnir og aðrir leiðtogar þjóðarinnar sent.
ܘܥܕ ܗܘ ܡܡܠܠ ܐܬܐ ܝܗܘܕܐ ܤܟܪܝܘܛܐ ܚܕ ܡܢ ܬܪܥܤܪ ܘܥܡܐ ܤܓܝܐܐ ܥܡ ܤܦܤܪܐ ܘܚܘܛܪܐ ܡܢ ܠܘܬ ܪܒܝ ܟܗܢܐ ܘܤܦܪܐ ܘܩܫܝܫܐ
44 Júdas hafði sagt við þá: „Handtakið þann sem ég heilsa. Það verður auðvelt að ná honum.“
ܘܝܗܒ ܠܗܘܢ ܐܬܐ ܡܫܠܡܢܐ ܗܘ ܕܡܫܠܡ ܘܐܡܪ ܗܘ ܕܢܫܩ ܐܢܐ ܗܘܝܘ ܐܘܚܕܘܗܝ ܙܗܝܪܐܝܬ ܘܐܘܒܠܘܗܝ
45 Jafnskjótt og þeir komu, gekk Júdas til Jesú og sagði glaðlega: „Meistari!“og kyssti hann.
ܘܒܪ ܫܥܬܗ ܩܪܒ ܘܐܡܪ ܠܗ ܪܒܝ ܪܒܝ ܘܢܫܩܗ
46 Og þeir lögðu hendur á Jesú og tóku hann.
ܗܢܘܢ ܕܝܢ ܐܪܡܝܘ ܥܠܘܗܝ ܐܝܕܝܐ ܘܐܚܕܘܗܝ
47 Einhver brá sverði á loft og hjó til þjóns æðsta prestsins og sneið af honum eyrað.
ܚܕ ܕܝܢ ܡܢ ܗܢܘܢ ܕܩܝܡܝܢ ܫܡܛ ܤܝܦܐ ܘܡܚܝܗܝ ܠܥܒܕܗ ܕܪܒ ܟܗܢܐ ܘܫܩܠܗ ܐܕܢܗ
48 Jesús sagði við hópinn: „Er ég þá hættulegur ræningi? Þið komið alvopnaðir til að handtaka mig.
ܗܘ ܕܝܢ ܝܫܘܥ ܥܢܐ ܘܐܡܪ ܠܗܘܢ ܐܝܟ ܕܥܠ ܓܝܤܐ ܢܦܩܬܘܢ ܒܤܝܦܐ ܘܒܚܘܛܪܐ ܕܬܐܚܕܘܢܢܝ
49 Af hverju tókuð þið mig ekki í musterinu? Þar kenndi ég á hverjum degi! En svona á þetta reyndar að fara, til þess að spádómarnir um mig rætist.“
ܟܠܝܘܡ ܠܘܬܟܘܢ ܗܘܝܬ ܟܕ ܡܠܦ ܐܢܐ ܒܗܝܟܠܐ ܘܠܐ ܐܚܕܬܘܢܢܝ ܐܠܐ ܕܢܫܠܡܘܢ ܟܬܒܐ ܗܘܬ ܗܕܐ
50 Meðan Jesús var að tala, yfirgáfu allir lærisveinarnir hann og flýðu.
ܗܝܕܝܢ ܫܒܩܘܗܝ ܬܠܡܝܕܘܗܝ ܘܥܪܩܘ
51 Og hópurinn lagði af stað með Jesú. En ungur maður, klæddur náttslopp einum saman, kom í humátt á eftir og þegar mennirnir ætluðu að grípa hann, rifnaði sloppurinn og hann flýði nakinn.
ܘܥܠܝܡܐ ܚܕ ܐܬܐ ܗܘܐ ܒܬܪܗ ܘܥܛܝܦ ܤܕܘܢܐ ܥܪܛܠ ܘܐܚܕܘܗܝ
ܗܘ ܕܝܢ ܫܒܩ ܤܕܘܢܐ ܘܥܪܩ ܥܪܛܠ
53 Nú var farið með Jesú til hallar æðsta prestsins og þar söfnuðust fljótlega saman allir æðstu prestarnir og aðrir leiðtogar.
ܘܐܘܒܠܘܗܝ ܠܝܫܘܥ ܠܘܬ ܩܝܦܐ ܪܒ ܟܗܢܐ ܘܐܬܟܢܫܘ ܠܘܬܗ ܟܠܗܘܢ ܪܒܝ ܟܗܢܐ ܘܤܦܪܐ ܘܩܫܝܫܐ
54 Pétur kom langt á eftir og smeygði sér, svo lítið bar á, inn fyrir hliðið við bústað æðsta prestsins og settist við eldinn í garðinum ásamt þjónunum sem þar voru.
ܫܡܥܘܢ ܕܝܢ ܡܢ ܪܘܚܩܐ ܐܬܐ ܗܘܐ ܒܬܪܗ ܥܕܡܐ ܠܓܘ ܕܪܬܐ ܕܪܒ ܟܗܢܐ ܘܝܬܒ ܗܘܐ ܥܡ ܡܫܡܫܢܐ ܘܫܚܢ ܠܘܩܒܠ ܢܘܪܐ
55 Inni í húsinu reyndi hæstiréttur Gyðinga að finna einhverja sök á hendur Jesú, sem nægja mundi til dauðadóms, en árangurslaust.
ܪܒܝ ܟܗܢܐ ܕܝܢ ܘܟܠܗ ܟܢܫܗܘܢ ܒܥܝܢ ܗܘܘ ܥܠ ܝܫܘܥ ܤܗܕܘܬܐ ܕܢܡܝܬܘܢܝܗܝ ܘܠܐ ܐܫܟܚܘ
56 Fjöldi falsvitna gaf sig fram, en framburði þeirra bar ekki saman.
ܟܕ ܤܓܝܐܐ ܓܝܪ ܡܤܗܕܝܢ ܗܘܘ ܥܠܘܗܝ ܠܐ ܫܘܝܢ ܗܘܝ ܤܗܕܘܬܗܘܢ
57 Loksins stóðu upp nokkrir menn og báru lognar sakir á Jesú.
ܐܢܫܝܢ ܕܝܢ ܩܡܘ ܥܠܘܗܝ ܤܗܕܐ ܕܫܘܩܪܐ ܘܐܡܪܘ
58 Þeir sögðu: „Við heyrðum hann segja: „Ég mun rífa niður þetta musteri sem byggt er af mannahöndum og byggja annað á þrem dögum, án þess að hönd komi þar nærri“.“
ܕܚܢܢ ܫܡܥܢܝܗܝ ܕܐܡܪ ܕܐܢܐ ܫܪܐ ܐܢܐ ܗܝܟܠܐ ܗܢܐ ܕܥܒܝܕ ܒܐܝܕܝܐ ܘܠܬܠܬܐ ܝܘܡܝܢ ܒܢܐ ܐܢܐ ܐܚܪܢܐ ܕܠܐ ܥܒܝܕ ܒܐܝܕܝܐ
59 En ekki bar þeim heldur saman um þetta.
ܘܐܦܠܐ ܕܝܢ ܗܟܢܐ ܫܘܝܐ ܗܘܬ ܤܗܕܘܬܗܘܢ
60 Þá reis æðsti presturinn upp og spurði Jesú frammi fyrir réttinum: „Þú svarar engu. Hvað viltu segja þér til varnar?“
ܘܩܡ ܪܒ ܟܗܢܐ ܒܡܨܥܬܐ ܘܫܐܠܗ ܠܝܫܘܥ ܘܐܡܪ ܠܐ ܡܦܢܐ ܐܢܬ ܦܬܓܡܐ ܡܢܐ ܡܤܗܕܝܢ ܥܠܝܟ ܗܠܝܢ
61 Jesús svaraði honum ekki einu orði. Þá spurði æðsti presturinn: „Ert þú Kristur, sonur Guðs?“
ܗܘ ܕܝܢ ܫܬܝܩ ܗܘܐ ܘܡܕܡ ܠܐ ܥܢܝܗܝ ܘܬܘܒ ܫܐܠܗ ܪܒ ܟܗܢܐ ܘܐܡܪ ܐܢܬ ܗܘ ܡܫܝܚܐ ܒܪܗ ܕܡܒܪܟܐ
62 Jesús svaraði: „Já, það er ég og þú munt sjá mig sitja við hægri hönd Guðs og birtast öllum mönnum í skýjum himinsins.“
ܗܘ ܕܝܢ ܝܫܘܥ ܐܡܪ ܠܗ ܐܢܐ ܐܢܐ ܘܬܚܙܘܢ ܠܒܪܗ ܕܐܢܫܐ ܕܝܬܒ ܡܢ ܝܡܝܢܐ ܕܚܝܠܐ ܘܐܬܐ ܥܠ ܥܢܢܝ ܫܡܝܐ
63 Þá reif æðsti presturinn föt sín og hrópaði: „Þurfum við framar vitnanna við! Þið heyrðuð sjálfir guðlastið. Hvað finnst ykkur?“Og þeir dæmdu hann til dauða einum rómi.
ܪܒ ܟܗܢܐ ܕܝܢ ܨܪܐ ܟܘܬܝܢܗ ܘܐܡܪ ܡܢܐ ܡܟܝܠ ܡܬܒܥܝܢ ܠܢ ܤܗܕܐ
ܗܐ ܡܢ ܦܘܡܗ ܫܡܥܬܘܢ ܓܘܕܦܐ ܡܢܐ ܡܬܚܙܐ ܠܟܘܢ ܗܢܘܢ ܕܝܢ ܟܠܗܘܢ ܕܢܘ ܕܚܝܒ ܗܘ ܡܘܬܐ
65 Nokkrir viðstaddra tóku að hrækja á Jesú, héldu fyrir augu hans og slógu hann í andlitið. „Spámaður!“æptu þeir hæðnislega, „hver sló þig núna?“Jafnvel verðirnir slógu hann, þegar þeir leiddu hann burt.
ܘܫܪܝܘ ܐܢܫܝܢ ܪܩܝܢ ܒܦܪܨܘܦܗ ܘܡܚܦܝܢ ܐܦܘܗܝ ܘܡܩܦܚܝܢ ܠܗ ܘܐܡܪܝܢ ܐܬܢܒܐ ܘܕܚܫܐ ܡܚܝܢ ܗܘܘ ܠܗ ܥܠ ܦܟܘܗܝ
66 Meðan þetta gerðist var Pétur niðri í garðinum. Ein þjónustustúlka æðsta prestsins tók þá eftir honum, þar sem hann var að ylja sér við eldinn. Hún veitti honum nánari athygli og sagði síðan: „Þú varst áreiðanlega með Jesú frá Nasaret.“
ܘܟܕ ܫܡܥܘܢ ܠܬܚܬ ܒܕܪܬܐ ܐܬܬ ܥܠܝܡܬܐ ܚܕܐ ܕܪܒ ܟܗܢܐ
ܚܙܬܗ ܕܫܚܢ ܘܚܪܬ ܒܗ ܘܐܡܪܐ ܠܗ ܘܐܦ ܐܢܬ ܥܡ ܝܫܘܥ ܗܘܝܬ ܢܨܪܝܐ
68 Pétur neitaði og sagði: „Ég skil ekki hvað þú átt við!“Síðan færði hann sig nær hliðinu. Þá gól haninn!
ܗܘ ܕܝܢ ܟܦܪ ܘܐܡܪ ܠܐ ܝܕܥ ܐܢܐ ܡܢܐ ܐܡܪܐ ܐܢܬܝ ܘܢܦܩ ܠܒܪ ܠܤܦܐ ܘܩܪܐ ܬܪܢܓܠܐ
69 Eftir stundarkorn kom stúlkan aftur auga á Pétur og sagði við nærstadda: „Þarna er hann! Þarna er þessi lærisveinn Jesú.“
ܘܚܙܬܗ ܬܘܒ ܥܠܝܡܬܐ ܗܝ ܘܫܪܝܬ ܕܬܐܡܪ ܠܐܝܠܝܢ ܕܩܝܡܝܢ ܕܐܦ ܗܢܐ ܡܢܗܘܢ ܗܘ
70 En hann neitaði aftur. Stuttu síðar sögðu aðrir, sem stóðu umhverfis eldinn, við Pétur: „Þú ert líka einn af þeim, því þú ert frá Galíleu.“
ܗܘ ܕܝܢ ܬܘܒ ܟܦܪ ܘܒܬܪ ܩܠܝܠ ܬܘܒ ܗܢܘܢ ܕܩܝܡܝܢ ܐܡܪܘ ܠܟܐܦܐ ܫܪܝܪܐܝܬ ܡܢܗܘܢ ܐܢܬ ܐܦ ܓܝܪ ܓܠܝܠܝܐ ܐܢܬ ܘܡܡܠܠܟ ܕܡܐ
71 Þá tók hann að blóta og formæla og sagði: „Ég þekki alls ekki þennan mann!“
ܗܘ ܕܝܢ ܫܪܝ ܗܘܐ ܡܚܪܡ ܘܝܡܐ ܕܠܐ ܝܕܥ ܐܢܐ ܠܓܒܪܐ ܗܢܐ ܕܐܡܪܝܢ ܐܢܬܘܢ
72 Þá gól haninn í annað sinn. Og Pétur minntist orða Jesú: „Áður en haninn galar tvisvar, muntu þrisvar afneita mér.“Þá brast Pétur í grát.
ܘܒܗ ܒܫܥܬܐ ܩܪܐ ܬܪܢܓܠܐ ܕܬܪܬܝܢ ܙܒܢܝܢ ܘܐܬܕܟܪ ܫܡܥܘܢ ܡܠܬܗ ܕܝܫܘܥ ܕܐܡܪ ܗܘܐ ܠܗ ܕܩܕܡ ܕܢܩܪܐ ܬܪܢܓܠܐ ܬܪܬܝܢ ܙܒܢܝܢ ܬܠܬ ܬܟܦܘܪ ܒܝ ܘܫܪܝ ܕܢܒܟܐ

< Markús 14 >