< Markús 13 >
1 Þegar Jesús gekk út úr musterinu þennan dag, sagði einn lærisveinanna við hann: „Meistari, þetta eru fallegar byggingar! Sjáðu til dæmis myndirnar þarna á veggjunum.“
As he went out of the temple, one of his disciples said to him, “Rabbi, see what kind of stones and what kind of buildings!”
2 „Já, “svaraði Jesús, „en hér verður samt ekki skilinn eftir steinn yfir steini, ekkert nema rústir einar.“
Yeshua said to him, “Do you see these great buildings? There will not be left here one stone on another, which will not be thrown down.”
3 Og þegar hann sat í hlíð Olíufjallsins, hinum megin dalsins gegnt musterinu, komu Pétur, Jakob, Jóhannes og Andrés til hans og spurðu: „Hvenær mun þetta verða? Mun eitthvert tákn birtast áður, til viðvörunar?“
As he sat on the Mount of Olives opposite the temple, Peter, Jacob, Yochanan, and Andrew asked him privately,
“Tell us, when will these things be? What is the sign that these things are all about to be fulfilled?”
5 Jesús svaraði: „Látið engan leiða ykkur afvega,
Yeshua, answering, began to tell them, “Be careful that no one leads you astray.
6 því margir munu koma og segjast vera Kristur, og þeir munu leiða ógæfu yfir marga.
For many will come in my name, saying, ‘I am he!’ and will lead many astray.
7 Óttist ekki þótt styrjaldir geisi, það er óhjákvæmilegt, en endirinn er ekki þar með kominn.
“When you hear of wars and rumors of wars, don’t be troubled. For those must happen, but the end is not yet.
8 Þjóðir og ríki munu ráðast hvert gegn öðru, og víða munu verða jarðskjálftar og hungursneyð. Þetta verða fyrirboðar hörmunganna sem framundan eru.
For nation will rise against nation, and kingdom against kingdom. There will be earthquakes in various places. There will be famines and troubles. These things are the beginning of birth pains.
9 Gætið ykkar, því að þið verðið í mikilli hættu! Þið verðið dregnir fyrir rétt, þið verðið barðir í samkomuhúsunum og ákærðir frammi fyrir landstjórum og konungum, vegna þess að þið fylgið mér, en þá fáið þið líka tækifæri til að vitna um mig.
“But watch yourselves, for they will deliver you up to councils. You will be beaten in synagogues. You will stand before rulers and kings for my sake, for a testimony to them.
10 Áður en endalokin koma, verða allar þjóðir að hafa fengið að heyra fagnaðarerindið.
The Good News must first be preached to all the nations.
11 En þegar þið verið yfirheyrðir sem fangar, hafið þá ekki áhyggjur af því hvernig þið eigið að verja ykkur – segið það sem Guð minnir ykkur á. Það verða ekki þið sem talið, heldur heilagur andi!
When they lead you away and deliver you up, don’t be anxious beforehand or premeditate what you will say, but say whatever will be given you in that hour. For it is not you who speak, but the Holy Spirit.
12 Bræður munu svíkja hver annan í dauðann, og sama munu feður gera við sín eigin börn og börnin við foreldrana.
“Brother will deliver up brother to death, and the father his child. Children will rise up against parents and cause them to be put to death.
13 Allir munu hata ykkur af því að þið tilheyrið mér, en þeir sem standa stöðugir allt til enda og afneita mér ekki, munu bjargast.
You will be hated by all men for my name’s sake, but he who endures to the end will be saved.
14 Þegar þið sjáið viðurstyggð eyðingarinnar í musterinu – lesandi, taktu eftir því – þá flýi þeir sem eru í Júdeu til fjalla,
“But when you see the abomination of desolation, spoken of by Daniel the prophet, standing where it ought not” (let the reader understand), “then let those who are in Judea flee to the mountains,
15 og flýtið ykkur! Sértu staddur við þakdyrnar, farðu þá ekki inn í húsið, og sértu úti á akri, farðu þá ekki heim eftir peningum þínum eða fötum.
and let him who is on the housetop not go down, nor enter in, to take anything out of his house.
Let him who is in the field not return back to take his cloak.
17 Þær, sem eiga von á barni, verða illa settar á þeim dögum og einnig þær, sem þá hafa börn á brjósti.
But woe to those who are with child and to those who nurse babies in those days!
18 Biðjið að flótti ykkar verði ekki að vetri til.
Pray that your flight won’t be in the winter.
19 Þessir tímar verða svo miklir hörmungatímar, að þvílíkt hefur aldrei fyrr orðið frá upphafi sköpunarinnar og mun aldrei verða.
For in those days there will be oppression, such as there has not been the like from the beginning of the creation which God created until now, and never will be.
20 Ef Drottinn stytti ekki þennan ógæfutíma, kæmist engin sála af í öllum heiminum, en vegna þeirra, sem hann hefur útvalið, mun hann stytta hann.
Unless the Lord had shortened the days, no flesh would have been saved; but for the sake of the chosen ones, whom he picked out, he shortened the days.
21 Ef einhver segir við ykkur: „Þetta er Kristur, “eða „þarna er hann, “þá gefið því engan gaum.
Then if anyone tells you, ‘Look, here is the Messiah!’ or, ‘Look, there!’ don’t believe it.
22 Margir falskristar og falsspámenn munu koma og gera stórkostleg kraftaverk til þess, ef mögulegt er, að villa um fyrir börnum Guðs.
For false messiahs and false prophets will arise and will show signs and wonders, that they may lead astray, if possible, even the chosen ones.
23 Varið ykkur! Nú hef ég sagt ykkur það!
But you watch. “Behold, I have told you all things beforehand.
24 Eftir þessar þrengingar mun sólin myrkvast og tunglið hætta að skína,
But in those days, after that oppression, the sun will be darkened, the moon will not give its light,
25 stjörnurnar munu hrapa og himnarnir nötra.
the stars will be falling from the sky, and the powers that are in the heavens will be shaken.
26 Þá mun allt mannkynið sjá mig, Krist, koma í skýjunum með mætti og mikilli dýrð.
Then they will see the Son of Man coming in clouds with great power and glory.
27 Og ég mun senda englana út um allan heim til að safna saman mínum útvöldu – út til ystu endimarka heimsins.
Then he will send out his angels, and will gather together his chosen ones from the four winds, from the ends of the earth to the ends of the sky.
28 Þið getið lært af fíkjutrénu: Þið vitið að vorið er komið, þegar brumið er orðið mjúkt og laufin fara að springa út.
“Now from the fig tree, learn this parable. When the branch has now become tender and produces its leaves, you know that the summer is near;
29 Þegar þið sjáið þessa atburði gerast, sem ég nú hef lýst, þá getið þið reitt ykkur á að endurkoma mín er fyrir dyrum.
even so you also, when you see these things coming to pass, know that it is near, at the doors.
30 Þetta eru táknin, sem gefa þessari kynslóð til kynna að endirinn sé kominn.
Most certainly I say to you, this generation will not pass away until all these things happen.
31 Himinn og jörð munu hverfa en orð mín standa að eilífu.
Heaven and earth will pass away, but my words will not pass away.
32 En daginn og stundina er þetta gerist, veit enginn, hvorki englarnir né ég, heldur aðeins faðirinn einn.
“But of that day or that hour no one knows—not even the angels in heaven, nor the Son, but only the Father.
33 Og fyrst þið vitið ekki stundina, verið þá allsgáðir. Vakið og biðjið og verið viðbúnir komu minni.
Watch, keep alert, and pray; for you don’t know when the time is.
34 Endurkomu minni má líkja við mann, sem ferðaðist til annars lands. Hann sagði starfsmönnum sínum hvað hver og einn ætti að gera meðan hann væri í burtu og bað dyravörðinn að vera vel á verði meðan hann biði komu sinnar.
“It is like a man traveling to another country, having left his house and given authority to his servants, and to each one his work, and also commanded the doorkeeper to keep watch.
35 Gætið að! Þið vitið ekki hvenær mín er von, hvort það verður að kvöldi, um miðnætti, undir morgun eða árdegis. Látið mig ekki koma að ykkur sofandi, heldur verið vakandi þegar ég kem! Það sem ég segi ykkur, segi ég öllum: Vakið!“
Watch therefore, for you don’t know when the lord of the house is coming—whether at evening, or at midnight, or when the rooster crows, or in the morning;
lest, coming suddenly, he might find you sleeping.
What I tell you, I tell all: Watch!”