< Postulasagan 13 >

1 Meðal predikara og kennara í söfnuðinum í Antíokkíu voru þessir: Barnabas, Símeon (einnig kallaður Niger eða „svarti maðurinn“), Lúkíus (frá Kýrene), Manaen (uppeldisbróðir Heródesar konungs) og Páll.
ησαν δε τινες εν αντιοχεια κατα την ουσαν εκκλησιαν προφηται και διδασκαλοι ο τε βαρναβας και συμεων ο καλουμενος νιγερ και λουκιος ο κυρηναιος μαναην τε ηρωδου του τετραρχου συντροφος και σαυλος
2 Dag einn, þegar menn þessir tilbáðu Guð og föstuðu, sagði heilagur andi: „Takið Barnabas og Pál frá til þess verkefnis sem ég hef ætlað þeim.“
λειτουργουντων δε αυτων τω κυριω και νηστευοντων ειπεν το πνευμα το αγιον αφορισατε δη μοι τον τε βαρναβαν και τον σαυλον εις το εργον ο προσκεκλημαι αυτους
3 Eftir enn frekari föstu og bæn lögðu þeir hendur yfir þá og sendu þá af stað.
τοτε νηστευσαντες και προσευξαμενοι και επιθεντες τας χειρας αυτοις απελυσαν
4 Samkvæmt ábendingu heilags anda fóru þeir til Selevkíu og sigldu þaðan til Kýpur.
ουτοι μεν ουν εκπεμφθεντες υπο του πνευματος του αγιου κατηλθον εις την σελευκειαν εκειθεν τε απεπλευσαν εις την κυπρον
5 Í borginni Salamis predikuðu þeir í samkomuhúsi Gyðinganna. Jóhannes Markús var aðstoðarmaður þeirra í þessari ferð.
και γενομενοι εν σαλαμινι κατηγγελλον τον λογον του θεου εν ταις συναγωγαις των ιουδαιων ειχον δε και ιωαννην υπηρετην
6 Síðan fóru þeir um alla eyjuna og predikuðu í hverjum bænum á fætur öðrum þar til þeir komu loks til Pafos. Þar hittu þeir Gyðing, falsspámann, sem fékkst við galdra. Hét hann Barjesús. Hann hafði komið sér vel við landstjórann, Sergíus Pál, sem var greindur maður og hafði skilning á ýmsu. Landstjórinn bauð Barnabasi og Páli til sín, því að hann langaði til að heyra boðskapinn frá Guði.
διελθοντες δε την νησον αχρι παφου ευρον τινα μαγον ψευδοπροφητην ιουδαιον ω ονομα βαριησους
7
ος ην συν τω ανθυπατω σεργιω παυλω ανδρι συνετω ουτος προσκαλεσαμενος βαρναβαν και σαυλον επεζητησεν ακουσαι τον λογον του θεου
8 Töframaðurinn Elýmas (en það var hið gríska nafn hans) reyndi að trufla fundinn. Hann hvatti landstjórann til að taka ekki mark á orðum Páls og Barnabasar og reyndi þannig að koma í veg fyrir að hann tæki trú á Drottin,
ανθιστατο δε αυτοις ελυμας ο μαγος ουτως γαρ μεθερμηνευεται το ονομα αυτου ζητων διαστρεψαι τον ανθυπατον απο της πιστεως
9 Þá hvessti Páll augun á töframanninn og sagði fylltur heilögum anda:
σαυλος δε ο και παυλος πλησθεις πνευματος αγιου και ατενισας εις αυτον
10 „Þú sonur Satans, þú ert fullur af svikum og óþokkaskap, óvinur alls sem gott er. Hvenær ætlar þú að hætta andstöðu þinni gegn Drottni?
ειπεν ω πληρης παντος δολου και πασης ραδιουργιας υιε διαβολου εχθρε πασης δικαιοσυνης ου παυση διαστρεφων τας οδους κυριου τας ευθειας
11 Nú mun Drottinn refsa þér og þú verður blindur um tíma.“Þegar í stað tók sjón töframannsins að dvína og eftir stutta stund var hann orðinn algjörlega blindur. Hann ráfaði um og sárbað viðstadda að leiða sig.
και νυν ιδου χειρ του κυριου επι σε και εση τυφλος μη βλεπων τον ηλιον αχρι καιρου παραχρημα δε επεπεσεν επ αυτον αχλυς και σκοτος και περιαγων εζητει χειραγωγους
12 Þegar landstjórinn sá hvað gerðist, tók hann trú og undraðist kraftinn sem fylgdi boðskap Guðs.
τοτε ιδων ο ανθυπατος το γεγονος επιστευσεν εκπλησσομενος επι τη διδαχη του κυριου
13 Eftir þetta fóru Páll og félagar hans með skipi frá Pafos yfir til hafnarborgarinnar Perge í Litlu-Asíu. Þar yfirgaf Jóhannes þá og fór heim til Jerúsalem,
αναχθεντες δε απο της παφου οι περι τον παυλον ηλθον εις περγην της παμφυλιας ιωαννης δε αποχωρησας απ αυτων υπεστρεψεν εις ιεροσολυμα
14 en Barnabas og Páll héldu áfram til Antíokkíu, sem var borg í héraðinu Pisidíu. Á helgideginum fóru þeir í samkomuhús Gyðinga til að vera við guðsþjónustu.
αυτοι δε διελθοντες απο της περγης παρεγενοντο εις αντιοχειαν της πισιδιας και εισελθοντες εις την συναγωγην τη ημερα των σαββατων εκαθισαν
15 Þegar lokið var venjulegum lestri úr ritum Móse og spámannanna, lét sá sem annaðist guðsþjónustuna senda þeim þessi skilaboð: „Bræður, ef þið hafið eitthvað að segja til uppbyggingar, leyfið okkur þá að heyra.“
μετα δε την αναγνωσιν του νομου και των προφητων απεστειλαν οι αρχισυναγωγοι προς αυτους λεγοντες ανδρες αδελφοι ει εστιν λογος εν υμιν παρακλησεως προς τον λαον λεγετε
16 Páll stóð upp, heilsaði og sagði: „Ísraelsmenn og þið aðrir sem tignið Guð. Fyrst langar mig að rifja upp smákafla úr sögu þjóðar okkar.
αναστας δε παυλος και κατασεισας τη χειρι ειπεν ανδρες ισραηλιται και οι φοβουμενοι τον θεον ακουσατε
17 Guð Ísraelsþjóðarinnar útvaldi forfeður okkar og hóf þá til virðingar í Egyptalandi með því að losa þá úr ánauðinni þar, á undursamlegan hátt.
ο θεος του λαου τουτου ισραηλ εξελεξατο τους πατερας ημων και τον λαον υψωσεν εν τη παροικια εν γη αιγυπτω και μετα βραχιονος υψηλου εξηγαγεν αυτους εξ αυτης
18 Síðan annaðist hann þá þau fjörutíu ár sem þeir voru á ferli um eyðimörkina,
και ως τεσσαρακονταετη χρονον ετροποφορησεν αυτους εν τη ερημω
19 útrýmdi sjö þjóðum í Kanaanslandi og gaf Ísraelsmönnum land þeirra til ævinlegrar eignar. Eftir það ríktu dómararnir í um 450 ár en svo kom Samúel spámaður.
και καθελων εθνη επτα εν γη χανααν κατεκληροδοτησεν αυτοις την γην αυτων
και μετα ταυτα ως ετεσιν τετρακοσιοις και πεντηκοντα εδωκεν κριτας εως σαμουηλ του προφητου
21 Þá bað þjóðin Guð um konung og hann gaf þeim Sál Kísson, mann af Benjamínsætt, og hann ríkti í fjörutíu ár.
κακειθεν ητησαντο βασιλεα και εδωκεν αυτοις ο θεος τον σαουλ υιον κις ανδρα εκ φυλης βενιαμιν ετη τεσσαρακοντα
22 En Guð setti hann af og gerði Davíð að konungi í hans stað. Guð sagði um Davíð: „Davíð Ísaíson er maður mér að skapi, því að hann mun hlýða mér.“
και μεταστησας αυτον ηγειρεν αυτοις τον δαβιδ εις βασιλεα ω και ειπεν μαρτυρησας ευρον δαβιδ τον του ιεσσαι ανδρα κατα την καρδιαν μου ος ποιησει παντα τα θεληματα μου
23 Einn af afkomendum Davíðs er Jesús, og hann er frelsarinn, sem Guð hafði lofað að gefa Ísrael.
τουτου ο θεος απο του σπερματος κατ επαγγελιαν ηγειρεν τω ισραηλ σωτηρα ιησουν
24 En áður en Jesús kom, boðaði Jóhannes skírari að allir í Ísrael þyrftu að snúa sér frá syndum sínum og til Guðs.
προκηρυξαντος ιωαννου προ προσωπου της εισοδου αυτου βαπτισμα μετανοιας παντι τω λαω ισραηλ
25 Um líkt leyti og Jóhannes var að ljúka köllunarverki sínu, spurði hann: „Haldið þið að ég sé Kristur? Nei! En hann kemur fyrr en varir og ég er lítils virði samanborið við hann.“
ως δε επληρου ο ιωαννης τον δρομον ελεγεν τινα με υπονοειτε ειναι ουκ ειμι εγω αλλ ιδου ερχεται μετ εμε ου ουκ ειμι αξιος το υποδημα των ποδων λυσαι
26 Bræður! – synir Abrahams og þið aðrir sem tignið Guð – þetta hjálpræði er fyrir okkur öll!
ανδρες αδελφοι υιοι γενους αβρααμ και οι εν υμιν φοβουμενοι τον θεον υμιν ο λογος της σωτηριας ταυτης απεσταλη
27 Gyðingarnir í Jerúsalem og leiðtogar þeirra þekktu hann ekki og skildu ekki að hann væri sá, sem spámennirnir höfðu ritað um, enda þótt þeir heyrðu lesið úr ritum spámannanna á hverjum helgidegi. Þeir tóku hann af lífi og uppfylltu þar með spádómana.
οι γαρ κατοικουντες εν ιερουσαλημ και οι αρχοντες αυτων τουτον αγνοησαντες και τας φωνας των προφητων τας κατα παν σαββατον αναγινωσκομενας κριναντες επληρωσαν
28 Þeir höfðu enga ástæðu til að lífláta hann en samt sem áður heimtuðu þeir að hann yrði deyddur.
και μηδεμιαν αιτιαν θανατου ευροντες ητησαντο πιλατον αναιρεθηναι αυτον
29 Þegar þeir höfðu uppfyllt alla spádómana um dauða hans, var hann tekinn af krossinum og lagður í gröf.
ως δε ετελεσαν απαντα τα περι αυτου γεγραμμενα καθελοντες απο του ξυλου εθηκαν εις μνημειον
30 En Guð reisti hann upp frá dauðum!
ο δε θεος ηγειρεν αυτον εκ νεκρων
31 Mennirnir, sem höfðu orðið honum samferða frá Galíleu til Jerúsalem, sáu hann oftsinnis næstu daga á eftir og nú eru þessir menn vottar hans meðal þjóðarinnar.
ος ωφθη επι ημερας πλειους τοις συναναβασιν αυτω απο της γαλιλαιας εις ιερουσαλημ οιτινες εισιν μαρτυρες αυτου προς τον λαον
32 Við Barnabas erum hingað komnir til að flytja ykkur þær gleðifréttir, að fyrirheit Guðs, sem hann gaf forfeðrum okkar, hafa ræst á okkar dögum, er hann reisti Jesú upp frá dauðum. Um þetta fjallar annar sálmurinn en þar stendur svo um Jesú: „Þú ert sonur minn, ég gat þig í dag.“
και ημεις υμας ευαγγελιζομεθα την προς τους πατερας επαγγελιαν γενομενην οτι ταυτην ο θεος εκπεπληρωκεν τοις τεκνοις αυτων ημιν αναστησας ιησουν
ως και εν τω ψαλμω τω δευτερω γεγραπται υιος μου ει συ εγω σημερον γεγεννηκα σε
34 Guð hafði einmitt heitið því að reisa hann frá dauðum, svo hann þyrfti aldrei að deyja upp frá því. Þannig stendur um þetta í Biblíunni: „Ég mun láta hin heilögu og órjúfanlegu loforð, sem ég gaf Davíð, rætast á meðal ykkar.“
οτι δε ανεστησεν αυτον εκ νεκρων μηκετι μελλοντα υποστρεφειν εις διαφθοραν ουτως ειρηκεν οτι δωσω υμιν τα οσια δαβιδ τα πιστα
35 Í enn öðrum sálmi skýrir hann þetta nánar og segir: „Guð mun ekki láta sinn heilaga verða rotnun að bráð.“
διο και εν ετερω λεγει ου δωσεις τον οσιον σου ιδειν διαφθοραν
36 Þessi orð áttu ekki við Davíð, því að hann dó, var lagður í gröf og líkami hans rotnaði, þegar hann hafði þjónað kynslóð sinni eins lengi og Guð vildi.
δαβιδ μεν γαρ ιδια γενεα υπηρετησας τη του θεου βουλη εκοιμηθη και προσετεθη προς τους πατερας αυτου και ειδεν διαφθοραν
37 Nei, þessi orð áttu við annan – þann sem Guð vakti upp frá dauðum og ekki rotnaði líkami hans.
ον δε ο θεος ηγειρεν ουκ ειδεν διαφθοραν
38 Vinir, takið eftir! Hjá þessum manni, Jesú, getið þið fengið fyrirgefningu synda ykkar.
γνωστον ουν εστω υμιν ανδρες αδελφοι οτι δια τουτου υμιν αφεσις αμαρτιων καταγγελλεται
39 Hver sá, sem trúir á hann, fær fyrirgefningu allra synda sinna og verður réttlátur – saklaus – í augum Guðs – nokkuð sem lög Gyðinga gátu aldrei komið til leiðar.
και απο παντων ων ουκ ηδυνηθητε εν τω νομω μωσεως δικαιωθηναι εν τουτω πας ο πιστευων δικαιουται
40 Gætið ykkar! Látið ekki orð spámannanna rætast á ykkur er þeir sögðu:
βλεπετε ουν μη επελθη εφ υμας το ειρημενον εν τοις προφηταις
41 „Þið sem hallmælið sannleikanum, takið eftir: Það er úti um ykkur, því að á ykkar dögum mun ég vinna verk, sem þið munduð alls ekki trúa, þótt einhver segði ykkur frá því.““
ιδετε οι καταφρονηται και θαυμασατε και αφανισθητε οτι εργον εγω εργαζομαι εν ταις ημεραις υμων εργον ω ου μη πιστευσητε εαν τις εκδιηγηται υμιν
42 Þegar fólkið yfirgaf samkomuhúsið þennan dag, bað það Pál að koma þangað aftur eftir viku.
εξιοντων δε εκ της συναγωγης των ιουδαιων παρεκαλουν τα εθνη εις το μεταξυ σαββατον λαληθηναι αυτοις τα ρηματα ταυτα
43 Margir Gyðingar og guðræknir heiðingjar, sem sóttu guðsþjónustur í samkomuhúsinu, fylgdu Páli og Barnabasi niður götuna og hlustuðu á hvatningu þeirra að taka á móti miskunn Guðs, sem þeim stæði til boða.
λυθεισης δε της συναγωγης ηκολουθησαν πολλοι των ιουδαιων και των σεβομενων προσηλυτων τω παυλω και τω βαρναβα οιτινες προσλαλουντες αυτοις επειθον αυτους επιμενειν τη χαριτι του θεου
44 Að viku liðinni kom nær allur bærinn saman til að hlusta á þá predika Guðs orð.
τω δε ερχομενω σαββατω σχεδον πασα η πολις συνηχθη ακουσαι τον λογον του θεου
45 Þegar leiðtogar Gyðinga sáu allt fólkið, sem flest var heiðingjar, urðu þeir mjög gramir og formæltu Páli og öllu því sem hann hafði að segja.
ιδοντες δε οι ιουδαιοι τους οχλους επλησθησαν ζηλου και αντελεγον τοις υπο του παυλου λεγομενοις αντιλεγοντες και βλασφημουντες
46 Þá sögðu Páll og Barnabas ákveðnir: „Rétt var að þið Gyðingarnir fengjuð fyrst að heyra þennan fagnaðarboðskap, en fyrst þið hafnið honum og sýnið þar með að þið séuð ekki verðir eilífs lífs, þá munum við snúa okkur til heiðingjanna. (aiōnios g166)
παρρησιασαμενοι δε ο παυλος και ο βαρναβας ειπον υμιν ην αναγκαιον πρωτον λαληθηναι τον λογον του θεου επειδη δε απωθεισθε αυτον και ουκ αξιους κρινετε εαυτους της αιωνιου ζωης ιδου στρεφομεθα εις τα εθνη (aiōnios g166)
47 Það var einmitt skipun Drottins, þegar hann sagði: „Ég hef sett þig til að vera ljós heiðinna þjóða og flytja hjálpræðið til ystu endimarka jarðarinnar.““
ουτως γαρ εντεταλται ημιν ο κυριος τεθεικα σε εις φως εθνων του ειναι σε εις σωτηριαν εως εσχατου της γης
48 Þegar heiðingjarnir heyrðu þetta urðu þeir mjög glaðir og tóku fegins hendi við boðskap Páls. Allir þeir, sem vildu eignast eilíft líf, tóku trú, (aiōnios g166)
ακουοντα δε τα εθνη εχαιρον και εδοξαζον τον λογον του κυριου και επιστευσαν οσοι ησαν τεταγμενοι εις ζωην αιωνιον (aiōnios g166)
49 og eftir það breiddist orð Guðs um allt héraðið.
διεφερετο δε ο λογος του κυριου δι ολης της χωρας
50 En leiðtogar Gyðinga æstu upp guðræknar konur og fyrirmenn bæjarins, vöktu þannig múgæsingu gegn Páli og Barnabasi og hröktu þá út fyrir bæinn.
οι δε ιουδαιοι παρωτρυναν τας σεβομενας γυναικας και τας ευσχημονας και τους πρωτους της πολεως και επηγειραν διωγμον επι τον παυλον και τον βαρναβαν και εξεβαλον αυτους απο των οριων αυτων
51 Þá hristu Páll og Barnabas rykið af fótum sér – til vitnis gegn borginni og lögðu af stað til bæjarins Íkóníum,
οι δε εκτιναξαμενοι τον κονιορτον των ποδων αυτων επ αυτους ηλθον εις ικονιον
52 en þeir sem trú höfðu tekið, fylltust gleði og heilögum anda.
οι δε μαθηται επληρουντο χαρας και πνευματος αγιου

< Postulasagan 13 >