< 3 Jóhannesarbréf 1 >

1 Frá Jóhannesi – öldungnum. Til míns kæra Gajusar, sem ég elska í sannleika.
প্ৰাচীনো ঽহং সত্যমতাদ্ যস্মিন্ প্ৰীযে তং প্ৰিযতমং গাযং প্ৰতি পত্ৰং লিখামি|
2 Kæri vinur, það er bæn mín að þér líði vel, að þú sért jafn hraustur líkamlega og þú ert andlega.
হে প্ৰিয, তৱাত্মা যাদৃক্ শুভান্ৱিতস্তাদৃক্ সৰ্ৱ্ৱৱিষযে তৱ শুভং স্ৱাস্থ্যঞ্চ ভূযাৎ|
3 Sumir bræðranna, sem komu hér við, glöddu mig stórlega þegar þeir sögðu mér að þú lifðir hreinu og góðu lífi eftir orði Guðs.
ভ্ৰাতৃভিৰাগত্য তৱ সত্যমতস্যাৰ্থতস্ত্ৱং কীদৃক্ সত্যমতমাচৰস্যেতস্য সাক্ষ্যে দত্তে মম মহানন্দো জাতঃ|
4 Það er ekkert sem gleður mig jafnmikið og slíkar fréttir af börnum mínum.
মম সন্তানাঃ সত্যমতমাচৰন্তীতিৱাৰ্ত্তাতো মম য আনন্দো জাযতে ততো মহত্তৰো নাস্তি|
5 Kæri vinur, þú vinnur Guði gott verk með því að sjá fyrir kennurum þeim og kristniboðum, sem leið eiga um hjá þér.
হে প্ৰিয, ভ্ৰাতৃন্ প্ৰতি ৱিশেষতস্তান্ ৱিদেশিনো ভৃতৃন্ প্ৰতি ৎৱযা যদ্যৎ কৃতং তৎ সৰ্ৱ্ৱং ৱিশ্ৱাসিনো যোগ্যং|
6 Þeir hafa sagt söfnuðinum frá hlýhug þínum og kærleiksverkum. Það gleður mig að þú skulir leysa þá út með gjöfum,
তে চ সমিতেঃ সাক্ষাৎ তৱ প্ৰম্নঃ প্ৰমাণং দত্তৱন্তঃ, অপৰম্ ঈশ্ৱৰযোগ্যৰূপেণ তান্ প্ৰস্থাপযতা ৎৱযা সৎকৰ্ম্ম কাৰিষ্যতে|
7 því að Drottins vegna ferðast þeir um og þiggja hvorki mat, föt, húsaskjól né peninga af heiðingjunum, enda þótt þeir hafi flutt þeim Guðs orð.
যতস্তে তস্য নাম্না যাত্ৰাং ৱিধায ভিন্নজাতীযেভ্যঃ কিমপি ন গৃহীতৱন্তঃ|
8 Af þessari ástæðu ber okkur að annast þá og með því verðum við samstarfsmenn þeirra í verki Drottins.
তস্মাদ্ ৱযং যৎ সত্যমতস্য সহাযা ভৱেম তদৰ্থমেতাদৃশা লোকা অস্মাভিৰনুগ্ৰহীতৱ্যাঃ|
9 Ég sendi söfnuðinum stutt bréf um þessa hluti, en hinn stolti Díótrefes, sem sækist eftir að verða leiðtogi kristinna manna þar, viðurkennir ekki vald mitt og neitar að hlusta á mig.
সমিতিং প্ৰত্যহং পত্ৰং লিখিতৱান্ কিন্তু তেষাং মধ্যে যো দিযত্ৰিফিঃ প্ৰধানাযতে সো ঽস্মান্ ন গৃহ্লাতি|
10 Þegar ég kem mun ég segja þér hvað hann hefur gert, hvernig hann rægir mig og einnig hvers konar orðbragð hann notar. Það er ekki aðeins að hann neiti sjálfur að taka á móti kristniboðunum, sem þar fara um, heldur bannar hann líka öðrum að gera það og hlýði þeir ekki, reynir hann að reka þá úr söfnuðinum.
১০অতো ঽহং যদোপস্থাস্যামি তদা তেন যদ্যৎ ক্ৰিযতে তৎ সৰ্ৱ্ৱং তং স্মাৰযিষ্যামি, যতঃ স দুৰ্ৱ্ৱাক্যৈৰস্মান্ অপৱদতি, তেনাপি তৃপ্তিং ন গৎৱা স্ৱযমপি ভ্ৰাতৃন্ নানুগৃহ্লাতি যে চানুগ্ৰহীতুমিচ্ছন্তি তান্ সমিতিতো ঽপি বহিষ্কৰোতি|
11 Kæri vinur, láttu þetta illa fordæmi ekki hafa áhrif á þig, heldur fylgdu því einu sem gott er. Mundu að þeir, sem gera rétt, sanna með því að þeir séu Guðs börn, en hinir, sem leggja stund á hið illa, sýna að þeir þekkja ekki Guð.
১১হে প্ৰিয, ৎৱযা দুষ্কৰ্ম্ম নানুক্ৰিযতাং কিন্তু সৎকৰ্ম্মৈৱ| যঃ সৎকৰ্ম্মাচাৰী স ঈশ্ৱৰাৎ জাতঃ, যো দুষ্কৰ্ম্মাচাৰী স ঈশ্ৱৰং ন দৃষ্টৱান্|
12 Demetríus fær hins vegar gott orð hjá öllum og einnig hjá sjálfum sannleikanum. Sama segi ég, og þú veist að ég fer með rétt mál.
১২দীমীত্ৰিযস্য পক্ষে সৰ্ৱ্ৱৈঃ সাক্ষ্যম্ অদাযি ৱিশেষতঃ সত্যমতেনাপি, ৱযমপি তৎপক্ষে সাক্ষ্যং দদ্মঃ, অস্মাকঞ্চ সাক্ষ্যং সত্যমেৱেতি যূযং জানীথ|
13 Það er margt sem ég þyrfti að segja þér, en um þá hluti vil ég ekki skrifa,
১৩ৎৱাং প্ৰতি মযা বহূনি লেখিতৱ্যানি কিন্তু মসীলেখনীভ্যাং লেখিতুং নেচ্ছামি|
14 því að ég vona að ég muni sjá þig fljótlega og þá getum við rætt saman. Ég kveð þig hér með í þetta sinn. Vinirnir, sem hér eru, biðja kærlega að heilsa þér. Skilaðu sérstakri kveðju frá mér til allra vinanna, hvers um sig. Jóhannes
১৪অচিৰেণ ৎৱাং দ্ৰক্ষ্যামীতি মম প্ৰত্যাশাস্তে তদাৱাং সম্মুখীভূয পৰস্পৰং সম্ভাষিষ্যাৱহে| তৱ শান্তি ৰ্ভূযাৎ| অস্মাকং মিত্ৰাণি ৎৱাং নমস্কাৰং জ্ঞাপযন্তি ৎৱমপ্যেকৈকস্য নাম প্ৰোচ্য মিত্ৰেভ্যো নমস্কুৰু| ইতি|

< 3 Jóhannesarbréf 1 >