< 2 Pétursbréf 1 >
1 Frá Símoni Pétri, þjóni og sendiboða Jesú Krists. Til ykkar allra, sem hafið öðlast sömu dýrmætu trú og við, trúna sem Jesús Kristur, Guð okkar og frelsari, gefur. Mikil er miskunn hans og réttlæti að hann skuli hafa gefið okkur öllum þessa trú.
Simon Peter, a slave and apostle of Jesus Christ, to those who have obtained an equally precious faith with us in the righteousness of our God and Saviour Jesus Christ.
2 Langar ykkur til að eignast enn meira af friði og kærleika Guðs? Sækist þá eftir að kynnast honum betur.
Grace and peace be multiplied to you by the God and Father of Jesus our Lord.
3 Þegar þið gerið það mun hann af mætti sínum gefa ykkur allt sem þið þurfið, til að geta lifað sönnu og góðu lífi. Og það sem meira er, hann leyfir okkur að fá hlutdeild í sínum eigin mætti og dýrð.
For his power divine has granted to us everything needful for life and godliness, through the knowledge of him who called us by his own glory and virtue.
4 Fyrir sinn volduga mátt, gat hann gefið okkur öll dýrlegu loforðin, sem við höfum fengið frá honum. Þar á meðal er loforðið um að frelsa okkur frá allri girnd og spillingu, sem alls staðar er, og gefa okkur hlutdeild í sínu eigin guðlega eðli.
By these he has granted his promises to us, precious and splendid; so that through them you may become partners of the divine nature, now that you have escaped the corruption that is in the world through lust.
5 En trúin ein nægir ekki til að fá þessar gjafir. Þið verðið einnig að kappkosta að lifa heiðvirðu lífi og það dugir jafnvel ekki til, því auk þess verðum við að læra að þekkja Guð betur og fá skilning á því sem hann vill að við gerum.
For this very reason do your best to add to your faith manliness, and to manliness knowledge,
6 Því næst þurfið þið að læra að neita ykkur um ýmislegt, til þess að þið verðið þolinmóð og guðrækin og leyfið Guði fúslega að framkvæma vilja sinn í lífi ykkar.
and to knowledge self-control, and to self-control stedfastness, and to stedfastness piety,
7 Þegar þessu marki er náð, getið þið tekið næsta skref og það er að láta ykkur þykja vænt um annað fólk og gleðjast yfir því, en þá munuð þið að lokum elska það af öllu hjarta.
and to piety brotherly love, and to brotherly love, love itself.
8 Eftir því sem þið farið lengra á þessari braut, því sterkari verðið þið andlega og munuð bera ávöxt og verða að gagni fyrir Drottin Jesú Krist.
For if these virtues are yours in abounding measure, they render you not idle nor unfruitful, until you come into the full knowledge of our Lord Jesus Christ.
9 Sá sem ekki vill taka þessi viðbótarskref trúarinnar, er áreiðanlega blindur eða þá að minnsta kosti mjög skammsýnn og hefur gleymt að Guð leysti hann frá fyrra lífi hans, svo að hann gæti lifað helguðu lífi í krafti Drottins.
For the man who lacks these virtues is blind, short-sighted, forgetful of his cleansing from his old sins.
10 Kæru systkini, leitist nú við að sýna að þið séuð í raun og veru meðal þeirra sem Guð hefur kallað og valið, og þá munuð þið aldrei hrasa eða falla.
So, brothers, take diligent care to make your calling and election sure; for if you do this, you will never stumble.
11 Þá mun Guð opna hlið himnanna fyrir ykkur upp á gátt, svo að þið getið gengið inn í hið eilífa ríki Drottins okkar og frelsara Jesú Krists. (aiōnios )
For so the entrance into the eternal kingdom of our Lord and Saviour Jesus Christ will be richly supplied to you. (aiōnios )
12 Ég hef hugsað mér að halda áfram að minna ykkur á þessi atriði, enda þótt þið þekkið þau nú þegar og farið eftir þeim.
I shall therefore be always ready to remind you of all this, even though you know it, and are firmly founded in the truth which is with you.
13 Drottinn Jesús Kristur hefur sýnt mér að jarðvistardagar mínir séu brátt á enda og að ég muni deyja innan skamms. En svo lengi sem ég verð hér, hef ég hugsað mér að halda áfram að senda ykkur áminningar sem þessar.
So I think it right, as long as I am in this "tent," to rouse you by way of reminding you,
since I know that the time for me to strike tent comes swiftly on, even as our Lord Jesus Christ pointed out to me.
15 Ég vona að þær hafi svo sterk áhrif á ykkur, að þið munið þær löngu eftir að ég er horfinn af sjónarsviðinu.
So I will do my best to enable you, even after my departure, continually to call these things to mind.
16 Ekki voru það ævintýri sem við sögðum ykkur, þegar við skýrðum ykkur frá krafti Drottins Jesú Krists og endurkomu hans. Ég sá tign hans með eigin augum.
For we were not following cunningly devised fables, when we told you of the power and presence of our Lord Jesus Christ, but we had been eye-witnesses of his Majesty.
17 Ég var með honum á fjallinu helga, þegar hann ummyndaðist í dýrðinni sem Guð, faðir hans, hafði gefið honum. Ég heyrði hina dýrlegu og hátignarlegu rödd kalla frá himnum og segja: „Þessi er minn elskaði sonur, sem ég hef velþóknun á.“
For he did receive honor and glory from God the Father, when there was borne such a voice to him from the Majestic Glory, This is my Son, my Beloved, in whom I delight;
and this voice we ourselves heard, borne to us out of heaven, when we were with him on the holy hill.
19 Við höfum orðið vitni að því að orð spámannanna hafa ræst. Það er rétt af ykkur að athuga vel allt sem þeir hafa skrifað, því að eins og ljós lýsir upp dimmt herbergi, hjálpa rit þeirra okkur til að skilja ýmislegt, sem annars væri illskiljanlegt. Þegar þið hafið kynnt ykkur hin miklu sannindi sem standa í ritum spámannanna, mun renna upp fyrir ykkur ljós, og Kristur, morgunstjarnan, mun skína inn í hjörtu ykkar.
And so we possess the word of prophecy made yet more sure. Unto this you do well to give heed as to a lamp shining in a dark place, till the day dawns and the morning star rises in your hearts.
20 Biblíuspádómarnir eru ekki uppfinning spámannanna, heldur var það heilagur andi, sem í þeim bjó, sem flutti þeim sannleiksboðskap frá Guði.
But first be assured of this - that no prophecy of Scripture is of private interpretation.
For no prophecy was ever brought by the will of man; but moved by the Holy Spirit, men spoke for God.