< 2 Korintubréf 9 >

1 Ég veit reyndar að það er óþarfi að nefna við ykkur þessa aðstoð við söfnuði Guðs.
It is indeed unnecessary for me to write to you concerning the service to the saints,
2 Mér er ljóst að áhugi ykkar fyrir þeim er óskiptur. Ég hrósaði ykkur fyrir vinunum í Makedóníu og sagði að fyrir ári hefðuð þið verið reiðubúin að senda gjöf. Sannleikurinn er sá að það var áhugi ykkar, sem varð hinum hvatning til að veita aðstoð.
for I know your readiness, of which I boast on your behalf to them of Macedonia, that Achaia has been prepared for a year past. Your zeal has stirred up very many of them.
3 Nú sendi ég þessa menn til þess eins að ganga úr skugga um að þið séuð reiðubúin, eins og ég sagði þeim að þið væruð, og hvort söfnunarféð lægi þegar fyrir. Ég vona að sú verði ekki reyndin, að í þetta sinn hafi ég tekið of djúpt í árinni með hrósyrðum mínum um ykkur.
But I have sent the brothers that our boasting on your behalf may not be in vain in this respect, that, just as I said, you may be prepared,
4 Mikið myndi ég blygðast mín – og þið reyndar líka – ef einhverjir þeirra frá Makedóníu yrðu mér samferða og sæju, að þegar allt kæmi til alls, þá væruð þið ekki tilbúin þrátt fyrir allt lofið sem ég hef borið á ykkur.
so that I won't by any means, if there come with me any of Macedonia and find you unprepared, we (to say nothing of you) should be disappointed in this confidence.
5 Við töldum því nauðsynlegt að hvetja bræðurna til að fara á undan til ykkar og undirbúa þessa gjöf, sem þið höfðuð áður lofað, svo að hún gæti verið til taks þegar á þyrfti að halda. Ég vil svo gjarnan að hér sé um raunverulega gjöf að ræða, gjöf sem ekki hafi á sér nískublæ.
I thought it necessary therefore to entreat the brothers that they would go before to you, and arrange ahead of time the generous gift that you promised before, that the same might be ready as a matter of generosity, and not of greediness.
6 Nú ætla ég að minna ykkur á eitt: Ef þið gefið lítið, þá fáið þið lítið. Bóndi sem sáir sparlega fær rýra uppskeru, en sái hann miklu, fær hann mikla uppskeru.
Remember this: he who sows sparingly will also reap sparingly. He who sows bountifully will also reap bountifully.
7 Hver um sig verður að ákveða hve mikið hann gefur. Reynið ekki að þvinga neinn til að gefa meira en hann sjálfur vill. Guð elskar glaðan gjafara.
Each person should give according as he has determined in his heart; not grudgingly, or under compulsion; for God loves a cheerful giver.
8 Guð mun uppfylla þarfir ykkar með því að veita ykkur allt sem þið þurfið, og meira til, svo að þið hafið nóg fyrir ykkur sjálf og getið gefið öðrum með gleði.
And God is able to make all grace abound to you, that you, always having all sufficiency in everything, may abound to every good work.
9 Um þetta segir Biblían: „Hinn guðrækni gefur fátækum með gleði. Góðverk hans munu verða honum til heiðurs í eilífðinni.“ (aiōn g165)
As it is written, "He has scattered, he has given to the poor; his righteousness endures forever." (aiōn g165)
10 Guð, sem gefur bóndanum útsæði og síðan góða uppskeru honum til framfæris, mun einnig gefa ykkur útsæði og margfalda uppskeru, svo að þið getið gefið æ meira.
Now he who supplies seed to the sower and bread for food, will supply and multiply your seed for sowing, and increase the fruits of your righteousness;
11 Hann mun gefa ykkur mikið til þess að þið getið verið rausnarleg við aðra. Þegar við afhendum gjöf ykkar þeim sem hana eiga að fá, þá mun streyma fram lofgjörð og þökk til Guðs fyrir hjálp hans.
you being enriched in everything to all liberality, which works through us thanksgiving to God.
12 Þið sjáið að tvennt gott hlýst af gjöf ykkar. Í fyrsta lagi fá þeir sem þurfandi eru hjálp og í öðru lagi fyllast þeir þakklæti til Guðs.
For this service of giving that you perform not only makes up for lack among the saints, but abounds also through many thanksgivings to God;
13 Þeir sem fá aðstoð ykkar, gleðjast ekki aðeins vegna þessarar miklu gjafar, heldur munu þeir einnig lofa Guð, því að þetta mun sanna að verk ykkar eru í samræmi við orð ykkar.
seeing that through the proof given by this service, they glorify God for the obedience of your confession to the Good News of Meshikha, and for the liberality of your contribution to them and to all;
14 Þeir munu einnig biðja fyrir ykkur og hugsa hlýtt til ykkar vegna þess hve Guð hefur verið ykkur góður.
while they themselves also, with petition on your behalf, yearn for you by reason of the exceeding grace of God in you.
15 Guði séu þakkir fyrir son sinn – þá gjöf sem engin orð fá lýst.
Thanks be to God for his inexpressible gift.

< 2 Korintubréf 9 >