< 1 Tímóteusarbréf 3 >

1 Það er rétt og satt að sækist einhver eftir prests- eða biskupsstarfi, þá girnist hann fagurt hlutverk.
ଯଦି କଶ୍ଚିଦ୍ ଅଧ୍ୟକ୍ଷପଦମ୍ ଆକାଙ୍କ୍ଷତେ ତର୍ହି ସ ଉତ୍ତମଂ କର୍ମ୍ମ ଲିପ୍ସତ ଇତି ସତ୍ୟଂ|
2 Slíkur maður skal vera til fyrirmyndar og lifa hreinu og heiðvirðu lífi. Hann verður að vera eiginkonu sinni trúr, tillitssamur, reglusamur og láta jafnan gott af sér leiða. Hann á að vera gestrisinn og góður uppfræðari.
ଅତୋଽଧ୍ୟକ୍ଷେଣାନିନ୍ଦିତେନୈକସ୍ୟା ଯୋଷିତୋ ଭର୍ତ୍ରା ପରିମିତଭୋଗେନ ସଂଯତମନସା ସଭ୍ୟେନାତିଥିସେୱକେନ ଶିକ୍ଷଣେ ନିପୁଣେନ
3 Hann má ekki vera drykkfelldur eða þrasgjarn, heldur prúður og góðgjarn og alls ekki sólginn í fé.
ନ ମଦ୍ୟପେନ ନ ପ୍ରହାରକେଣ କିନ୍ତୁ ମୃଦୁଭାୱେନ ନିର୍ୱ୍ୱିୱାଦେନ ନିର୍ଲୋଭେନ
4 Fjölskylda hans verður að sýna góða hegðun og börn hans eiga að hlýða strax og athugasemdalaust,
ସ୍ୱପରିୱାରାଣାମ୍ ଉତ୍ତମଶାସକେନ ପୂର୍ଣୱିନୀତତ୍ୱାଦ୍ ୱଶ୍ୟାନାଂ ସନ୍ତାନାନାଂ ନିଯନ୍ତ୍ରା ଚ ଭୱିତୱ୍ୟଂ|
5 því að hvernig á maður að stjórna heilum söfnuði, sem ekki getur stjórnað eigin fjölskyldu?
ଯତ ଆତ୍ମପରିୱାରାନ୍ ଶାସିତୁଂ ଯୋ ନ ଶକ୍ନୋତି ତେନେଶ୍ୱରସ୍ୟ ସମିତେସ୍ତତ୍ତ୍ୱାୱଧାରଣଂ କଥଂ କାରିଷ୍ୟତେ?
6 Biskup eða safnaðarleiðtogi á ekki að vera nýr í trúnni, svo að hann ofmetnist ekki og rógberarnir fái höggstað á honum.
ଅପରଂ ସ ଗର୍ୱ୍ୱିତୋ ଭୂତ୍ୱା ଯତ୍ ଶଯତାନ ଇୱ ଦଣ୍ଡଯୋଗ୍ୟୋ ନ ଭୱେତ୍ ତଦର୍ଥଂ ତେନ ନୱଶିଷ୍ୟେଣ ନ ଭୱିତୱ୍ୟଂ|
7 Hann verður einnig að hafa gott orð á sér meðal þeirra sem ekki eru kristnir, svo að Satan ásaki hann ekki og hann missi kjarkinn til að leiða söfnuðinn.
ଯଚ୍ଚ ନିନ୍ଦାଯାଂ ଶଯତାନସ୍ୟ ଜାଲେ ଚ ନ ପତେତ୍ ତଦର୍ଥଂ ତେନ ବହିଃସ୍ଥଲୋକାନାମପି ମଧ୍ୟେ ସୁଖ୍ୟାତିଯୁକ୍ତେନ ଭୱିତୱ୍ୟଂ|
8 Aðrir þjónar og starfsmenn safnaðarins eiga líka að vera góðir og traustir. Ekki óáreiðanlegir, drykkfelldir eða gráðugir í peninga.
ତଦ୍ୱତ୍ ପରିଚାରକୈରପି ୱିନୀତୈ ର୍ଦ୍ୱିୱିଧୱାକ୍ୟରହିତୈ ର୍ବହୁମଦ୍ୟପାନେ ଽନାସକ୍ତୈ ର୍ନିର୍ଲୋଭୈଶ୍ଚ ଭୱିତୱ୍ୟଂ,
9 Þeir verða að taka hlutina alvarlega og fylgja Kristi heils hugar, því að hann er uppspretta trúar þeirra.
ନିର୍ମ୍ମଲସଂୱେଦେନ ଚ ୱିଶ୍ୱାସସ୍ୟ ନିଗୂଢୱାକ୍ୟଂ ଧାତିୱ୍ୟଞ୍ଚ|
10 Látið þessa menn sinna fyrst öðrum minni háttar störfum fyrir söfnuðinn, til að reyna staðfestu þeirra og hæfileika, áður en þeim er fengið fullt starf. Ef þeir standa sig vel, þá má gjarnan velja þá sem safnaðarþjóna.
ଅଗ୍ରେ ତେଷାଂ ପରୀକ୍ଷା କ୍ରିଯତାଂ ତତଃ ପରମ୍ ଅନିନ୍ଦିତା ଭୂତ୍ୱା ତେ ପରିଚର୍ୟ୍ୟାଂ କୁର୍ୱ୍ୱନ୍ତୁ|
11 Konur eiga að vera siðprúðar, en ekki raupsamar. Þær stjórnist af hófsemi og séu trúar í öllu.
ଅପରଂ ଯୋଷିଦ୍ଭିରପି ୱିନୀତାଭିରନପୱାଦିକାଭିଃ ସତର୍କାଭିଃ ସର୍ୱ୍ୱତ୍ର ୱିଶ୍ୱାସ୍ୟାଭିଶ୍ଚ ଭୱିତୱ୍ୟଂ|
12 Safnaðarþjónn á að vera eiginkonu sinni trúr, og reglusemi og gleði skal ríkja á heimili þeirra.
ପରିଚାରକା ଏକୈକଯୋଷିତୋ ଭର୍ତ୍ତାରୋ ଭୱେଯୁଃ, ନିଜସନ୍ତାନାନାଂ ପରିଜନାନାଞ୍ଚ ସୁଶାସନଂ କୁର୍ୟ୍ୟୁଶ୍ଚ|
13 Þeir sem standa sig vel sem safnaðarþjónar, munu njóta virðingar fólksins, þeim mun aukast kjarkur og trú þeirra vaxa.
ଯତଃ ସା ପରିଚର୍ୟ୍ୟା ଯୈ ର୍ଭଦ୍ରରୂପେଣ ସାଧ୍ୟତେ ତେ ଶ୍ରେଷ୍ଠପଦଂ ପ୍ରାପ୍ନୁୱନ୍ତି ଖ୍ରୀଷ୍ଟେ ଯୀଶୌ ୱିଶ୍ୱାସେନ ମହୋତ୍ସୁକା ଭୱନ୍ତି ଚ|
14 Mér finnst rétt að skrifa þér um þessa hluti, enda þótt ég vonist til að hitta þig bráðlega,
ତ୍ୱାଂ ପ୍ରତ୍ୟେତତ୍ପତ୍ରଲେଖନସମଯେ ଶୀଘ୍ରଂ ତ୍ୱତ୍ସମୀପଗମନସ୍ୟ ପ୍ରତ୍ୟାଶା ମମ ୱିଦ୍ୟତେ|
15 því ef mér seinkar, þá veistu hverja þú átt að velja til leiðtogastarfa í söfnuði Guðs – þá sem halda sannleika Guðs hátt á lofti.
ଯଦି ୱା ୱିଲମ୍ବେଯ ତର୍ହୀଶ୍ୱରସ୍ୟ ଗୃହେ ଽର୍ଥତଃ ସତ୍ୟଧର୍ମ୍ମସ୍ୟ ସ୍ତମ୍ଭଭିତ୍ତିମୂଲସ୍ୱରୂପାଯାମ୍ ଅମରେଶ୍ୱରସ୍ୟ ସମିତୌ ତ୍ୱଯା କୀଦୃଶ ଆଚାରଃ କର୍ତ୍ତୱ୍ୟସ୍ତତ୍ ଜ୍ଞାତୁଂ ଶକ୍ଷ୍ୟତେ|
16 Víst er guðrækilegt líferni enginn leikur, en það er þó mögulegt í samfélaginu við Krist. Hann kom til jarðarinnar sem maður. Hann reyndist hreinn og syndlaus í anda sínum og englar þjónuðu honum. Hann var boðaður meðal þjóðanna, hvarvetna trúðu menn á hann og síðan var hann hafinn upp í dýrð himnanna.
ଅପରଂ ଯସ୍ୟ ମହତ୍ତ୍ୱଂ ସର୍ୱ୍ୱସ୍ୱୀକୃତମ୍ ଈଶ୍ୱରଭକ୍ତେସ୍ତତ୍ ନିଗୂଢୱାକ୍ୟମିଦମ୍ ଈଶ୍ୱରୋ ମାନୱଦେହେ ପ୍ରକାଶିତ ଆତ୍ମନା ସପୁଣ୍ୟୀକୃତୋ ଦୂତୈଃ ସନ୍ଦୃଷ୍ଟଃ ସର୍ୱ୍ୱଜାତୀଯାନାଂ ନିକଟେ ଘୋଷିତୋ ଜଗତୋ ୱିଶ୍ୱାସପାତ୍ରୀଭୂତସ୍ତେଜଃପ୍ରାପ୍ତଯେ ସ୍ୱର୍ଗଂ ନୀତଶ୍ଚେତି|

< 1 Tímóteusarbréf 3 >