< 1 Þessaloníkubréf 5 >
1 Hvenær verður þetta? Reyndar er óþarfi fyrir mig að ræða það, kæru vinir,
But concerning the times and the seasons, brothers, you have no need that anything be written to you.
2 því að ykkur er sjálfum ljóst að það veit enginn. Dagur Drottins kemur fyrirvaralaust – eins og þjófur um nótt.
For you yourselves know well that the day of the Lord comes like a thief in the night.
3 Fólk segir: „Nú er friður og ró og allt í besta lagi, “– en þá mun skelfingin dynja yfir, eins og fæðingarhríðir hjá konu sem er að því komin að ala barn. Fólk þetta mun ekki sjá neina undankomuleið – hvergi mun skjól að finna.
Now when they are saying, "Peace and safety," then sudden destruction will come on them, like birth pains on a pregnant woman; and they will in no way escape.
4 Kæru vinir, ég veit að ykkur er þetta ljóst og þegar dagur Drottins kemur, kemur hann ykkur ekki í opna skjöldu eins og óvinur,
But you, brothers, are not in darkness, that the day should overtake you like a thief.
5 því að öll eruð þið börn ljóssins og börn dagsins. Þið heyrið ekki nóttunni til né myrkrinu.
You are all children of light, and children of the day. We do not belong to the night, nor to darkness,
6 Verið því allsgáð og sofið ekki á verðinum eins og sumir. Vakið og væntið komu Drottins!
so then let us not sleep, as the rest do, but let us watch and be sober.
7 Nóttina nota menn til svefns og sumir til að drekka sig fulla,
For those who sleep, sleep in the night, and those who are drunk are drunk in the night.
8 en við, sem lifum í ljósinu skulum vera allsgáð, vernduð brynju trúar og kærleika og með hjálm hjálpræðisins á höfði.
But let us, since we belong to the day, be sober, putting on the breastplate of faith and love, and, for a helmet, the hope of salvation.
9 Guð hefur ekki kallað okkur til refsingar,
For God did not appoint us to wrath, but to the obtaining of salvation through our Lord Yeshua Meshikha,
10 heldur til eilífs lífs með sér, hvort sem við verðum lífs eða liðin þann dag er Drottinn kemur aftur.
who died for us, that, whether we wake or sleep, we should live together with him.
11 Uppörvið því hvert annað og hjálpist að, hér eftir sem hingað til.
Therefore exhort one another, and build each other up, even as you also do.
12 Kæru vinir, sýnið leiðtogum safnaðar ykkar tilhlýðilega virðingu. Þeir leggja hart að sér ykkar vegna og vara ykkur við öllu því sem rangt er.
But we ask you, brothers, to recognize those who labor among you, and are over you in the Lord, and admonish you,
13 Hugsið vel til þeirra og berið umhyggju fyrir þeim, því að þeir gera sitt besta til að hjálpa ykkur. Haldið svo frið hvert við annað.
and to respect and honor them in love for their work's sake. Be at peace among yourselves.
14 Kæru vinir, áminnið þá sem latir eru og uppörvið þá sem kjarklitlir eru. Sýnið nærgætni og umhyggjusemi þeim sem viðkvæmir eru og verið þolinmóð hvert við annað.
We exhort you, brothers, admonish the disorderly, encourage the fainthearted, support the weak, be patient toward all.
15 Gætið þess að enginn gjaldi illt fyrir illt, en reynið í hvívetna að gera hvert öðru gott og einnig þeim sem ekki eru kristnir.
See that no one returns evil for evil to anyone, but always seek what is good both for each other and for all.
17 Verið stöðug í bæninni.
Pray without ceasing.
18 Þakkið Guði í öllum kringumstæðum, því það er vilji Guðs með þá sem Kristi tilheyra.
In everything give thanks, for this is the will of God in Meshikha Yeshua toward you.
19 Hindrið ekki heilagan anda
Do not quench the Rukha.
20 með því að ávíta þá sem koma með spádóm frá Guði,
Do not treat prophecies with contempt,
21 en sannprófið það sem þeir segja í ljósi Guðs orðs, til að ganga úr skugga um hvort það sé rétt, og ef svo er, þá takið við því.
but test all things; hold firmly that which is good.
22 Haldið ykkur frá öllu sem illt er.
Abstain from every form of evil.
23 Ég bið þess að Guð friðarins hreinsi ykkur algjörlega og varðveiti líkama ykkar, sál og anda, allt til þess dags er Drottinn Jesús Kristur kemur aftur.
May the God of peace himself sanctify you completely. May your whole spirit, soul, and body be preserved blameless at the coming of our Lord Yeshua Meshikha.
24 Guð, sem kallaði ykkur til að verða börn sín, mun koma þessu til leiðar, eins og hann hefur lofað.
He who calls you is faithful, who will also do it.
25 Kæru vinir, biðjið fyrir okkur.
Brothers, pray for us also.
26 Skilið kveðju frá mér til allra bræðranna.
Greet all the brothers with a holy kiss.
27 Ég bið þess og krefst í nafni Drottins að þið látið lesa þetta bréf upp fyrir öllum söfnuðinum.
I solemnly command you by the Lord that this letter be read to all the holy brothers.
28 Drottinn blessi ykkur ríkulega, eitt og sérhvert. Páll
The grace of our Lord Yeshua Meshikha be with you.