< 1 Þessaloníkubréf 1 >
1 Frá Páli, Sílasi og Tímóteusi. Til safnaðarins í Þessaloníku – ykkar, sem tilheyrið Guði föður og Drottni Jesú Kristi. Guð faðir og Jesús Kristur, Drottinn okkar, blessi ykkur ríkulega og gefi ykkur frið í hug og hjarta.
Paul and Silvanus and Timothy to the church of the Thessalonians in God the Father, and in the Lord Jesus Christ. Grace be to you, and peace from God our Father, and from the Lord Jesus Christ.
2 Mikið erum við þakklátir Guði fyrir ykkur. Og við biðjum fyrir ykkur.
We give thanks to God always for you all, making mention of you in our prayers.
3 Þegar við tölum við Guð föður okkar, þá minnumst við kærleiksverka ykkar, sterkrar trúar og hve óhagganleg þið eruð í voninni um endurkomu Drottins Jesú Krists.
Incessantly remembering your work of faith, and labor of love, and patience of hope in our Lord Jesus Christ, before our God and Father:
4 Kæru vinir, við vitum að Guð hefur kallað ykkur og að hann elskar ykkur.
knowing, beloved brethren, your election by God.
5 Þetta segjum við vegna þess að þegar við fluttum ykkur gleðiboðskapinn, þá lituð þið ekki á hann sem eitthvert blaður, heldur hlustuðuð með mikilli athygli. Orð okkar höfðu sterk áhrif á ykkur og heilagur andi gaf ykkur djúpa og einlæga sannfæringu um, að það sem við sögðum væri satt. Þið vitið einnig að framkoma okkar var í fullu samræmi við orð okkar.
For our gospel came not to you in word only, but also in power, and in the holy Ghost, and in much certainty; as ye know what sort of persons we were among you for your sakes.
6 Þannig urðuð þið fylgjendur okkar, og þar með Drottins, því að þið tókuð á móti boðskapnum með gleði heilags anda, þrátt fyrir ofsóknir og erfiðleika sem það færði ykkur.
And ye became imitators of us and of the Lord, having received the word tho' in much affliction, yet with joy of the holy Ghost.
7 Þið urðuð fyrirmynd kristnu fólki um alla Makedóníu og Akkeu.
So that ye became examples to all the believers in Macedonia and Achaia.
8 Nú hefur orð Drottins borist frá ykkur, langt út fyrir landamæri ykkar. Það er sama hvert við förum, alls staðar hittum við fólk sem talar um ykkar sterku trú. Við þurfum ekki að segja neitt,
For the word of the Lord sounded forth from you, not only in Macedonia and Achaia; but also in every place your faith towards God is spread abroad, so that we have no need to say any thing of it.
9 því það segir okkur að fyrra bragði frá þeim stórkostlegu móttökum sem við fengum hjá ykkur. Hvernig þið sneruð ykkur frá skurðgoðunum og til Guðs, og í dag er hann – hinn lifandi og sanni Guð – húsbóndinn í lífi ykkar.
For they themselves declare concerning us what kind of entrance we had among you, and how ye turned to God from idols, to serve the living and true God;
10 Fólk hefur einnig sagt okkur hve mjög þið væntið endurkomu Guðs sonar frá himnum – Jesú sem Guð reisti frá dauðum. Hann einn getur frelsað ykkur frá reiði Guðs, vegna syndarinnar.
and to wait for his Son from heaven, whom He raised from the dead, even Jesus who delivereth us from the wrath to come.