< 1 Pétursbréf 1 >
1 Frá Pétri, sendiboða Jesú Krists. Til ykkar, kristnu Gyðingar, sem hröktust frá Jerúsalem og settust að í Pontus, Galatíu, Kappadókíu, Asíu og Bitýníu.
Peter, an apostle of Jesus Christ, to the chosen sojourners of the dispersion of Pontus, Galatia, Cappadocia, Asia, and Bithynia,
2 Kæru vinir, Guð valdi ykkur samkvæmt áætlun sinni til að verða börn sín og helgaði ykkur með heilögum anda til að fylgja Jesú Kristi og fá fyrirgefningu syndanna vegna krossdauða hans. Guð blessi ykkur ævinlega og gefi ykkur frið sinn í ríkum mæli.
according to [the] foreknowledge of God the Father, by [the] sanctification of the Spirit, to [the] obedience and sprinkling of the blood of Jesus Christ: Grace and peace be multiplied to you!
3 Við skulum þakka Guði, föður Drottins Jesú Krists, sem af mikilli miskunn sinni endurfæddi okkur inn í fjölskyldu sína og gaf okkur lifandi von um nýtt, eilíft líf vegna upprisu Jesú Krists frá dauðum.
Blessed [is] the God and Father of our Lord Jesus Christ, who, according to the abundance of His kindness begot us again to a living hope, through the resurrection of Jesus Christ out of the dead,
4 Guð hefur ætlað okkur börnum sínum dýrlega gjöf, sem er eilíft líf. Þessi gjöf er hrein og flekklaus og hún er geymd ykkur á himnum, þar sem hún mun hvorki skemmast né rýrna.
to an incorruptible inheritance, and undefiled, and unfading, reserved for you in the heavens,
5 Þetta ætlar Guð ykkur, sem treystið honum. Hann, í mætti sínum, mun gæta þess að ykkur verði að trú ykkar og að þið öðlist hjálpræðið. Á efsta degi mun hann kunngera það öllum.
who, in the power of God are being guarded, through faith, to salvation, ready to be revealed in the last time,
6 Gleðjist og fagnið, því að okkar bíður dásamleg gleði, enda þótt við um stund þurfum að mæta erfiðleikum hér á jörðu.
in which you are glad, a little now, if it be necessary, being made to sorrow in various trials,
7 Erfiðleikar þessir eru aðeins til að reyna trú ykkar – til að prófa hvort hún sé sterk og hrein eins og gull, sem hreinsað hefur verið og reynt í eldi. Trú ykkar er samt miklu dýrmætari en skíragull í augum Guðs. Ef trú ykkar stenst slíka eldraun, mun hún verða ykkur til mikils heiðurs og dýrðar þegar Jesús kemur aftur.
so that the proof of your faith—much more precious than gold that is perishing, and being approved through fire—may be found to [result in] praise, and honor, and glory, at the revelation of Jesus Christ,
8 Þið hafið aldrei séð hann en elskið hann þó. Og þótt þið hafið aldrei séð hann, trúið þið á hann. Þið munuð fyllast óumræðilegri og himneskri gleði,
whom, having not seen, you love, in whom, now believing [although] not seeing, you are glad with unspeakable joy and have been filled with glory,
9 þegar þið náið takmarkinu með trú ykkar: Frelsun sálna ykkar.
receiving the outcome of the faith—salvation of your souls;
10 Spámennirnir skildu ekki þetta hjálpræði til fulls og þótt þeir hafi skrifað um það, fengu þeir aldrei svör við sumum spurningum sínum.
concerning which salvation [the] prophets sought out and searched out, who prophesied concerning the grace toward you,
11 Þeir undruðust það sem heilagur andi, sem í þeim bjó, sagði, því að hann bauð þeim að skrifa niður og lýsa atburðum, sem síðar áttu eftir að gerast í lífi Krists: Þjáningum hans og dýrðinni er hann hlyti að lokum. Þeir hugleiddu hvenær þetta yrði og í lífi hvers.
searching in regard to what or what manner of time the Spirit of Christ that was in them was signifying, testifying beforehand of the sufferings of Christ and the glory after these,
12 Að lokum fengu þeir að vita að þessir atburðir myndu ekki gerast meðan þeir lifðu, heldur löngu seinna – einmitt á ykkar dögum. Nú loks höfum við fengið að heyra þessi gleðitíðindi flutt á skýran og einfaldan hátt í krafti heilags anda, þess sama anda sem talað hafði til spámannanna. Allt er þetta svo undarlegt og dýrlegt að jafnvel englarnir á himnum þrá að kynnast því betur.
to whom it was revealed, that not to themselves, but to us they were ministering these, which now were told to you (through those who proclaimed good news to you), by the Holy Spirit sent from Heaven, to which things messengers desire to look into intently.
13 Verið því allsgáð og horfið örugg fram til endurkomu Jesú Krists. Þá munuð þið fá að njóta blessunar Guðs í ríkari mæli en nokkru sinni fyrr.
For this reason, having girded up the loins of your mind, being sober, hope perfectly on the grace that is being brought to you in the revelation of Jesus Christ,
14 Hlýðið Guði, því að þið eruð börn hans. Gætið þess að lenda ekki aftur í sama farinu – ykkar gamla líferni – þegar þið lögðuð stund á hið illa vegna þess að þið þekktuð ekkert betra.
as obedient children, not fashioning yourselves to the former desires in your ignorance,
15 Verið nú heilög í öllu sem þið gerið, rétt eins og Drottinn, sem kallaði ykkur í barnahópinn sinn.
but according as He who called you [is] holy, you also, become holy in all behavior,
16 Það var hann sem sagði: „Verið heilög, því að ég er heilagur.“
because it has been written: “Become holy, because I am holy”;
17 Munið einnig að faðirinn himneski, sem þið biðjið til, fer ekki í manngreinarálit þegar hann kveður upp dóm sinn. Hann mun dæma allt sem þið gerið af fullkominni réttvísi. Lifið því frammi fyrir honum í auðmýkt og ótta, allt þar til þið farið til himna.
and if you call on the Father, who is judging without favoritism according to the work of each, pass the time of your sojourn in fear,
18 Guð hefur greitt lausnargjaldið, til þess að leiða ykkur af þeirri vonlausu leið sem feður ykkar reyndu að fara til himins. Lausnargjald þetta var ekki greitt í silfri eða gulli, það vitið þið vel.
having known that, not with corruptible things—silver or gold—were you redeemed from your foolish behavior inherited from our forefathers,
19 Guð greiddi fyrir ykkur með dýrmætu lífi guðslambsins, sem var óflekkað – án syndar.
but with precious blood, as of a lamb unblemished and unspotted—Christ’s—
20 Það var einmitt til þess verks, sem Guð valdi Krist löngu áður en veröldin varð til, en það var fyrst nú fyrir stuttu, á þessum síðustu tímum, sem heimurinn fékk að sjá hann og það var ykkar vegna.
foreknown, indeed, before the foundation of the world, and revealed in the last times because of you,
21 Af þessari ástæðu getið þið einmitt treyst Guði, sem reisti Krist frá dauðum og hóf hann í dýrð. Nú getið þið sett von ykkar og trú á hann einan.
who through Him believe in God who raised [Him] out of the dead, and gave glory to Him, so that your faith and hope may be in God.
22 Og við það að trúa að Kristur gæti frelsað ykkur, hafa sálir ykkar hreinsast af eigingirni og hatri og því getið þið elskað hvert annað innilega af hjarta.
Having purified your souls in the obedience of the truth through the Spirit to unhypocritical brotherly love, love one another earnestly out of a pure heart,
23 Nú lifið þið nýju lífi! Þetta nýja líf var ekki gjöf frá foreldrum ykkar, því að það líf sem þau gáfu ykkur, mun fjara út. Nýja lífið mun vara að eilífu, því að það er frá Kristi, honum sem er orð lífsins, boðskapur Guðs til mannanna. (aiōn )
being begotten again, not out of corruptible seed, but incorruptible, through a word of God—living and remaining—throughout the age; (aiōn )
24 Hið jarðneska líf okkar mun visna eins og grasið, sem gulnar og deyr. Jarðnesk fegurð er eins og blóm, sem visnar og fellur,
because all flesh [is] as grass, and all glory of man as flower of grass; the grass withered, and the flower of it fell away,
25 en orð Drottins mun vara að eilífu. Boðskapur Guðs er fagnaðarerindið, sem þið hafið fengið að heyra. (aiōn )
but the saying of the LORD remains—throughout the age; and this is the saying of good news that was proclaimed to you. (aiōn )