< 1 Jóhannesarbréf 4 >
1 Elsku vinir, trúið ekki öllu sem þið heyrið, enda þótt menn segi að það sé boðskapur frá Guði. Sannprófið það fyrst. Margir falskennendur eru nú á ferð um heiminn.
Abokaina ƙaunatattu, ba kowane ruhu za ku gaskata ba, sai dai ku gwada ruhohi don ku ga ko daga Allah ne, domin annabawan ƙarya da yawa sun fito duniya.
2 Til að vita hvort boðskapur þeirra sé frá heilögum anda, skulum við spyrja hvort Jesús Kristur, sonur Guðs, hafi orðið maður og komið í mannslíkama. Ef þeir viðurkenna það, þá er boðskapur þeirra frá Guði,
Ga yadda za ku gane Ruhun Allah, duk ruhun da ya yarda cewa Yesu Kiristi ya zo cikin jiki, to, daga Allah yake.
3 ef ekki, þá er hann frá andstæðingi Krists – andkristinum – sem þið hafið heyrt að koma muni, og áhrifa hans gætir nú þegar í heiminum.
Amma duk ruhun da bai yarda da Yesu ba, ba daga Allah ba ne, ruhun magabcin Kiristi ne, wanda kuka ji yana zuwa, har ma ya riga ya shigo duniya.
4 Kæru ungu vinir, þið tilheyrið Guði og hafið þegar unnið sigur á andstæðingum Krists, því að sá sem er í ykkur, er máttugri en allir falskennendur þessa óguðlega heims.
Ku,’ya’yana ƙaunatattu, ku daga Allah ne, kun kuma yi nasara a kan magabtan Kiristi, domin wanda yake a cikinku ya fi wanda yake a duniya girma.
5 Þeir eru af þessum heimi og hafa þess vegna allan hugann við það sem heimsins er, og heimurinn hefur áhuga á þeim.
Su daga duniya ne saboda haka suke magana yadda duniya take ganin abubuwa, duniya kuwa tana sauraronsu.
6 En við erum Guðs börn og þess vegna vilja þeir einir hlusta á okkur, sem hafa samfélag við Guð. Aðrir hafa ekki áhuga. Við höfum einnig aðra leið til að sannprófa hvort einhver boðskapur sé frá Guði: Ef hann er frá Guði, vill heimurinn ekki hlusta.
Mu daga Allah ne, kuma duk wanda ya san Allah yakan saurare mu. Amma duk wanda ba daga Allah ba, ba ya sauraronmu. Ta haka ne muke gane Ruhun gaskiya, da kuma ruhun ƙarya.
7 Kæru vinir, elskum hvert annað, því kærleikurinn er frá Guði. Þeir sem iðka kærleika og umhyggju, sýna að þeir eru börn Guðs og þekking þeirra á honum fer vaxandi.
Abokaina ƙaunatattu, mu ƙaunaci juna, domin ƙauna tana zuwa daga Allah ne. Duk mai ƙauna, haifaffe ne na Allah, ya kuma san Allah.
8 Sá sem ekki sýnir kærleika, þekkir ekki Guð, því að Guð er kærleikur.
Duk wanda ba ya ƙauna, bai san Allah ba, domin Allah ƙauna ne.
9 Guð hefur sýnt kærleika sinn með því að senda einkason sinn, í þennan hrjáða heim, til að deyja fyrir okkur og gefa okkur eilíft líf.
Ga yadda Allah ya nuna ƙaunarsa a cikinmu, Allah ya aiki makaɗaici Ɗansa zuwa duniya domin mu rayu ta wurinsa.
10 Kærleikurinn birtist ekki í því að við elskuðum Guð, heldur í því að hann elskaði okkur og sendi son sinn til að afplána refsingu fyrir syndir okkar.
Wannan ita ce ƙauna, wato, ba mu ne muka ƙaunaci Allah ba, sai dai shi ne ya ƙaunace mu, ya kuma aiko Ɗansa yă zama hadaya ta kafara saboda zunubanmu.
11 Kæru vinir, fyrst Guð hefur elskað okkur svo heitt, ber okkur einnig að elska hvert annað,
Abokaina ƙaunatattu, da yake Allah ya ƙaunace mu haka, ya kamata mu ma mu ƙaunaci juna.
12 Enginn hefur nokkru sinni séð Guð eins og hann er í raun og veru, en samt lifir hann í okkur, það er að segja, þegar við elskum hvert annað og leyfum kærleika hans að vaxa í okkur.
Ba wanda ya taɓa ganin Allah; amma in muna ƙaunar juna, Allah yana raye a cikinmu, ƙaunarsa kuwa ta zama cikakkiya a cikinmu ke nan.
13 Guð hefur einnig gefið okkur heilagan anda og það sýnir að við lifum í samfélagi við hann.
Mun san cewa muna rayuwa a cikinsa shi kuma a cikinmu, domin ya ba mu Ruhunsa.
14 Við höfum séð með eigin augum og vitnum fyrir öllum heiminum, að Guð sendi son sinn til að verða frelsara allra manna.
Mun gani, mun kuma shaida cewa Uba ya aiko Ɗansa domin yă zama Mai Ceton duniya.
15 Hver sá sem trúir og játar að Jesús sé sonur Guðs, á Guð í hjarta sínu og lifir í samfélagi við hann.
Duk wanda ya yarda cewa Yesu Ɗan Allah ne, Allah yana raye a cikinsa, shi kuma a cikin Allah.
16 Við vitum að Guð elskar okkur – við höfum fundið kærleika hans! Við vitum það einnig vegna þess að við trúum orðum hans, að hann elski okkur. Guð er kærleikur og sá sem sýnir kærleika í verki, lifir í Guði og Guð í honum.
Ta haka muka sani, muke kuma dogara ga ƙaunar da Allah yake mana. Allah ƙauna ne. Duk wanda yake rayuwa cikin ƙauna, yana rayuwa a cikin Allah ne, Allah kuma a cikinsa.
17 Ef við lifum í Kristi, vex kærleikur okkar og nær fullkomnun og þá verðum við okkur ekki til skammar eða háðungar á degi dómsins. Þá getum við glöð og hugrökk horfst í augu við hann, því að hann elskar okkur og við elskum hann.
Ta haka, ƙauna ta zama cikakkiya a cikinmu domin mu kasance masu ƙarfin hali a ranar shari’a, domin a wannan duniya muna kama da shi.
18 Okkur er óþarft að óttast þann, sem elskar okkur, því að hans fullkomni kærleikur rekur burt allan ótta. Ef við erum hrædd, þá er það vegna þess að við höldum að Guð muni refsa okkur – við erum ekki fyllilega sannfærð um að hann elski okkur.
Babu tsoro cikin ƙauna. Cikakkiyar ƙauna dai takan kawar da tsoro, domin hukunci ne yake kawo tsoro. Mai jin tsoro ba cikakke ba ne a cikin ƙauna.
19 Af þessu má sjá að kærleikur okkar til hans er afleiðing af kærleika hans til okkar.
Muna ƙauna, domin ya ƙaunace mu da farko.
20 Ef einhver segir: „Ég elska Guð, “og heldur áfram að hata bróður sinn, sem hann umgengst og sér, hvernig getur hann þá elskað Guð, sem hann hefur aldrei séð?
Duk wanda ya ce, “Ina ƙaunar Allah,” amma yana ƙin ɗan’uwansa, maƙaryaci ne. Gama duk wanda ba ya ƙaunar ɗan’uwansa da yake gani, ba zai iya ƙaunar Allah wanda ba ya gani ba.
21 Boðorð Guðs er svona: „Sá, sem elskar Guð, á einnig að elska bróður sinn.“
Ya kuma ba mu wannan umarni cewa duk wanda yake ƙaunar Allah, dole yă ƙaunaci ɗan’uwansa.