< 1 Jóhannesarbréf 2 >

1 Börnin mín, þetta segi ég til þess að þið haldið ykkur frá syndinni. En ef einhver syndgar, þá skuluð þið vita að við höfum talsmann hjá Guði föður, sem biður fyrir okkur. Þessi talsmaður er Jesús Kristur. Hann er óaðfinnanlegur í öllu og Guði velþóknanlegur.
Anak-anakku! Saya menulis ini kepada kalian supaya kalian jangan berbuat dosa. Tetapi kalau ada yang berbuat dosa, maka kita mempunyai seorang pembela, yaitu Yesus Kristus yang adil itu; Ia akan memohon untuk kita di hadapan Bapa.
2 Það er hann sem tók á sig reiði Guðs vegna synda okkar og leiddi okkur til samfélags við Guð. Hann er fyrirgefning synda okkar, og ekki aðeins okkar synda, heldur einnig alls heimsins.
Dengan perantaraan Yesus Kristus itulah dosa-dosa kita diampuni. Dan bukannya dosa-dosa kita saja, melainkan dosa seluruh umat manusia juga.
3 Hvernig getum við verið viss um að við tilheyrum Guði? Með því að rannsaka okkur sjálf og komast að því hvort við hlýðum hans vilja í raun og veru.
Kalau kita taat kepada perintah-perintah Allah, itu tandanya bahwa kita mengenal Allah.
4 Sá sem segir: „Ég er kristinn. Ég á eilíft líf, “en hlýðir þó ekki boðum hans og vilja er lygari.
Orang yang berkata, "Saya mengenal Allah," tetapi tidak taat kepada perintah-perintah-Nya, orang itu pendusta, dan Allah tidak berada di dalam hatinya.
5 Þeir sem gera hins vegar það sem Kristur býður þeim, vaxa í kærleika til Guðs og á því er hægt að sjá hvort þeir eru kristnir eða ekki.
Tetapi orang yang taat kepada perkataan Allah, orang itu mengasihi Allah dengan sempurna. Itulah tandanya bahwa kita hidup bersatu dengan Allah.
6 Sá sem segist vera kristinn á að breyta eins og Kristur breytti.
Barangsiapa berkata bahwa ia hidup bersatu dengan Allah, ia harus hidup mengikuti jejak Kristus.
7 Kæru vinir, það er ekki nýtt boðorð sem ég ætla að gefa ykkur. Þið kunnið það. Það er gamalt boðorð og þið hafið þekkt það frá öndverðu.
Saudara-saudara yang tercinta! Yang saya tulis ini bukanlah suatu perintah yang baru. Ini perintah lama yang sudah disampaikan kepadamu sejak kalian mulai percaya kepada Kristus; yaitu berita dari Allah yang sudah kalian dengar sebelumnya.
8 Samt er það alltaf nýtt og gildir eins fyrir ykkur og Krist, en það er svona: Elskið hvert annað. Þegar við hlýðum þessu boðorði hverfur myrkrið úr lífi okkar og hið nýja ljós – ljós Krists – skín inn í sál okkar.
Meskipun begitu, perintah yang saya tulis ini baru juga; karena kebenarannya dapat dilihat pada diri Kristus dan pada diri kalian. Sebab kegelapan semakin lenyap dan terang yang benar sudah mulai bersinar.
9 Ef einhver segist ganga í ljósi Krists, en ber illan hug til meðbróður síns, þá er hann enn í myrkrinu.
Orang yang berkata bahwa ia berada di dalam terang tetapi orang itu masih membenci saudaranya, orang itu masih berada dalam kegelapan sampai sekarang.
10 En sá sem elskar meðbróður sinn og gengur í ljósi Krists, kemst leiðar sinnar án þess að hrasa í myrkri og synd.
Orang yang mengasihi saudaranya, hidup dalam terang sehingga tidak ada sesuatu pun padanya yang akan menyebabkan orang lain jatuh dalam dosa.
11 Hafi einhver óbeit á meðbróður sínum, er hann í andlegu myrkri og veit ekki hvert hann fer. Þá hefur myrkrið blindað hann svo að hann sér ekki veginn.
Tetapi orang yang membenci saudaranya, berada dalam kegelapan. Ia berjalan dalam kegelapan, dan tidak tahu ke mana ia pergi, sebab kegelapan itu membuat dia tidak bisa melihat.
12 Þetta skrifa ég ykkur öllum, börnin mín, vegna þess að syndir ykkar eru nú þegar fyrirgefnar, í nafni Jesú frelsara okkar.
Saya menulis kepadamu, Anak-anak, sebab dosamu sudah diampuni karena Kristus.
13 Við ykkur sem eldri eruð segi ég þetta, af því að þið þekkið Krist, hann, sem hefur verið til frá upphafi. Og þið ungu menn, ég beini orðum mínum til ykkar, því að þið hafið unnið sigur á Satan. Ungu drengir og stúlkur, ykkur skrifa ég einnig, því að þið þekkið Guð, föðurinn.
Saya menulis kepadamu, Bapak-bapak, sebab kalian mengenal Dia yang sudah ada sejak awal mula. Saya menulis kepadamu, Orang-orang muda, sebab kalian sudah mengalahkan Si Jahat.
14 Nú ávarpa ég ykkur, feður, sem þekkið hinn eilífa Guð, og ykkur ungu menn, sem eruð styrkir vegna orðs Guðs, sem er í hjörtum ykkar, – þið hafið sigrað Satan.
Saya menulis kepadamu, Anak-anak, sebab kalian mengenal Allah Bapa. Saya menulis kepadamu, Bapak-bapak, sebab kalian mengenal Sabda yang sudah ada sejak awal mula. Saya menulis kepadamu, Orang-orang muda, sebab kalian kuat. Perkataan Allah ada di dalam hatimu, dan kalian sudah mengalahkan Si Jahat.
15 Elskið ekki þennan vonda heim og það sem í honum er, því að ef þið gerið það, þá elskið þið ekki Guð af heilum hug.
Janganlah mencintai dunia ini, atau apa saja yang ada di dalam dunia ini. Kalau kalian mencintai dunia, kalian tidak mencintai Bapa.
16 Heimurinn er fullur af illsku – illum nautnum, spilltu kynlífi, lífsgæðakapphlaupi og hroka sem fylgir auðæfum og upphefð – ekkert af þessu er frá Guði.
Segala sesuatu yang ada di dalam dunia ini--yang diinginkan oleh tabiat manusia yang berdosa, yang dilihat lalu diingini dan yang dibangga-banggakan--semuanya adalah hal-hal yang tidak berasal dari Bapa, melainkan dari dunia.
17 Þessi heimur mun líða undir lok og með honum allt það illa sem í honum er, en sá sem gerir Guðs vilja, mun lifa að eilífu. (aiōn g165)
Dunia dan segala sesuatu di dalamnya yang diinginkan oleh manusia, sedang lenyap. Tetapi orang yang menuruti kemauan Allah, tetap hidup sampai selama-lamanya. (aiōn g165)
18 Kæru börn, þessi heimur á stutt eftir. Þið hafið heyrt að andkristurinn – sá sem berst gegn Kristi – muni koma. Margir slíkir eru þegar komnir fram og það styrkir þá vissu okkar að endir þessa heims er skammt undan.
Anak-anakku, akhir zaman sudah dekat! Sudah diberitahukan kepadamu sebelumnya bahwa Musuh Kristus akan datang; dan sekarang sudah muncul banyak orang yang memusuhi Kristus. Itu tandanya bahwa akhir zaman sudah dekat.
19 Þessir menn – andkristarnir – voru í söfnuðum okkar, en aðeins að nafninu til, annars hefðu þeir verið kyrrir. Þeir yfirgáfu okkur og það sannaði best að þeir voru af allt öðru sauðahúsi.
Musuh-musuh Kristus itu adalah orang-orang yang sudah meninggalkan kita, karena mereka sebenarnya memang bukan orang-orang kita. Kalau mereka orang-orang kita, tentu mereka tetap bersama-sama kita. Tetapi mereka meninggalkan kita, supaya jelaslah bahwa tidak seorang pun dari mereka yang benar-benar termasuk golongan kita.
20 Því er öðruvísi varið með ykkur. Heilagur andi hefur komið yfir ykkur, þið þekkið sannleikann,
Tetapi kalian sudah menerima Roh Allah yang dicurahkan oleh Yesus Kristus dan itu sebabnya kamu semuanya mengenal ajaran yang benar.
21 og því skrifa ég ykkur ekki eins og þeim sem ekki þekkja sannleikann. Ég veit að þið þekkið muninn á réttu og röngu og þess vegna skrifa ég ykkur á þennan hátt.
Jadi saya menulis ini kepadamu bukannya karena kalian tidak mengenal ajaran yang benar, tetapi malah karena kalian sudah mengenalnya, dan kalian juga tahu bahwa tidak ada dusta dalam ajaran yang benar itu.
22 Hver er lygari ef ekki sá sem segir að Jesús sé ekki Kristur? Slíkur maður er andkristur, því að hann trúir hvorki á Guð föður né son hans.
Yang berdusta adalah orang yang berkata bahwa Yesus bukannya Raja Penyelamat yang dijanjikan Allah. Orang itu Musuh Kristus; ia tidak mengakui Bapa maupun Anak.
23 Sá sem ekki trúir á Krist, Guðs son, getur ekki haft samfélag við Guð föður, en sá sem hefur samfélag við Krist, Guðs son, hefur einnig samfélag við Guð föður.
Orang yang tidak mengakui Anak, berarti tidak menerima Bapa juga. Dan orang yang mengakui Anak, berarti menerima Bapa juga.
24 Haldið áfram að trúa því sem ykkur var kennt í upphafi, því að ef þið gerið það, munuð þið eiga náið samfélag bæði við Guð föður og son hans.
Sebab itu, berita yang sudah kalian dengar sejak kalian mula-mula percaya haruslah kalian jaga baik-baik di dalam hati. Kalau berita itu kalian perhatikan baik-baik, kalian akan selalu hidup bersatu dengan Anak dan dengan Bapa.
25 Guð hefur heitið okkur gjöf og sú gjöf er eilíft líf. (aiōnios g166)
Dan inilah yang dijanjikan Kristus sendiri kepada kita: hidup sejati dan kekal. (aiōnios g166)
26 Þessum skrifum mínum um andkrist, er beint gegn þeim sem reyna að blekkja ykkur og leiða í villu.
Saya tulis ini kepadamu mengenai orang-orang yang sedang berusaha menipu kalian.
27 Þið hafið tekið á móti heilögum anda, hann býr í ykkur og því þarf enginn að segja ykkur hvað sé rétt. Heilagur andi fræðir ykkur um allt. Hann er sannleikurinn. Hann lýgur ekki og því verðið þið, eins og hann sagði, að lifa í Kristi og halda ykkur fast við hann.
Tetapi mengenai kalian sendiri, Kristus telah mencurahkan Roh-Nya padamu. Dan selama Roh-Nya ada padamu, tidak perlu ada orang lain mengajar kalian. Sebab Roh-Nya mengajar kalian tentang segala sesuatu; dan apa yang diajarkan-Nya itu benar, bukan dusta. Sebab itu, hendaklah kalian taat kepada apa yang diajarkan oleh Roh itu, dan hendaklah kalian tetap hidup bersatu dengan Kristus.
28 Börnin mín, rækið samfélagið við Drottin, svo að þið getið verið viss um að ykkur vegni vel þegar hann kemur og að þið þurfið þá ekki að blygðast ykkar eða fara í felur.
Jadi, anak-anakku, tetaplah hidup bersatu dengan Kristus, supaya nanti pada waktu Ia datang, kita menghadap Dia dengan penuh keberanian, dan tidak bersembunyi karena malu.
29 Við vitum að Guð er góður og gerir aðeins rétt. Þess vegna ályktum við réttilega að allir aðrir, sem það gera, séu hans börn.
Kalian sudah tahu bahwa Kristus hidup menurut kemauan Allah. Sebab itu kalian harus tahu pula bahwa setiap orang yang hidup menurut kemauan Allah adalah anak Allah.

< 1 Jóhannesarbréf 2 >