< 1 Korintubréf 5 >

1 Það er á allra vörum að viðbjóðslegir hlutir eigi sér stað á meðal ykkar, já verri en meðal nokkurra heiðingja – að í söfnuði ykkar sé maður sem lifir í synd með konu föður síns.
It is actually reported that there is fornication among you, a kind of fornication that is not even named among the Gentiles, for a man has his father's wife.
2 Eruð þið enn jafn montin og „andleg“? Hvers vegna fyllist þið ekki heldur hryggð og blygðun og gerið gangskör að því að víkja þessum manni úr söfnuði ykkar?
And you are puffed up! You should have mourned instead and removed the man who did this from among you.
3 Þótt ég sé ekki hjá ykkur, þá hef ég hugsað mikið um þetta og í nafni Drottins Krists, hef ég nú þegar ákveðið hvað gera skal, rétt eins og ég væri þarna hjá ykkur. Kallið saman fund safnaðarins – kraftur Drottins Jesú mun vera með ykkur er þið komið saman, og ég mun verða viðstaddur í andanum –
For though I am absent in body, I am present in spirit. And I have already judged the man who did this, just as though I were present.
4
So when you are gathered together in the name of our Lord Jesus Christ and I am with you in spirit, along with the power of our Lord Jesus Christ,
5 og víkið þessum manni úr samfélagi kirkjunnar í hendur Satans, honum til refsingar, í þeirri von að sál hans frelsist við endurkomu Jesú Krists.
hand this man over to Satan for the destruction of his flesh, so that his spirit may be saved in the day of the Lord Jesus.
6 Það er þokkalegt eða hitt þó heldur að þið skulið vera að hrósa ykkur af dyggðum ykkar og látið slíkt samt eiga sér stað! Vitið þið ekki að sé einum manni leyft að halda áfram að syndga, munu brátt allir flekkast?
Your boasting is not good. Do you not know that a little leaven leavens the whole lump?
7 Fjarlægið þetta illkynjaða mein úr ykkar hópi svo að þið getið verið hrein. Kristi, guðslambinu, hefur verið slátrað fyrir okkur.
Purge out the old leaven so that you may be a new lump of dough, since you really are unleavened. For Christ, our Passover lamb, has been sacrificed for us.
8 Höldum því hátíð með honum og styrkjumst í kristilegu líferni. Snúum algjörlega baki við hinu sýkta, gamla líferni með öllu þess hatri og illsku. Höldum hátíð með hreinu, ósýrðu brauði hreinleikans og sannleikans.
So then, let us celebrate the feast, not with old leaven, nor with the leaven of malice and evil, but with the unleavened bread of sincerity and truth.
9 Í bréfinu, sem ég skrifaði ykkur, sagði ég að þið skylduð halda ykkur frá vondu fólki.
I wrote to you in my letter not to associate with fornicators.
10 En þegar ég sagði það, átti ég ekki við trúleysingja, sem lifa í synd eða ágjarna svindlara og hjáguðadýrkendur, því það er útilokað að lifa í þessum heimi án þess að eiga einhver samskipti við slíkt fólk.
Yet I certainly did not mean the fornicators of this world or the greedy or swindlers or idolaters, since you would then need to go out of the world.
11 Ég átti við að þið eigið ekki að blanda geði við neinn sem telur sig vera bróður í trúnni, en er saurlífismaður eða svindlari, hjáguðadýrkari eða drykkjumaður eða ágjarn. Þið ættuð ekki einu sinni að neyta matar með þess háttar manni.
But now I am writing to you not to associate with anyone who is named as a brother if he is a fornicator or greedy, an idolater or a reviler, a drunkard or a swindler; do not even eat with such a man.
12 Það er ekki okkar að dæma þá sem utan kirkjunnar eru. En vissulega er það okkar að dæma þá sem eru í kirkjunni og sem syndga á þennan hátt.
For what have I to do with judging those who are outside the church? Do you not judge those who are inside the church?
13 Guð einn dæmir þá sem eru utan kirkjunnar en þið verðið sjálf að dæma þennan mann og reka hann úr söfnuðinum.
God will judge those who are outside the church. “Therefore you must remove the evil person from among you.”

< 1 Korintubréf 5 >